Þeim fækkar sem lesa og skrifa skilaboð við akstur Lovísa Arnardóttir skrifar 12. nóvember 2024 09:02 Gunnar Geir segir ánægjulegt að herferðin um skjáhættu hafi skilað árangri. Vísir/Einar Hlutfall fólks sem á það til að lesa skilaboð við akstur lækkar úr 40,1 prósent í 35,8 prósent á milli ára. Hlutfall þeirra sem á það til að skrifa skilaboð við akstur lækkar úr 31,8 prósent í 27,7 prósent.
Gunnar Geir Gunnarsson deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu segir sameiginlegt átak Samgöngustofu og Sjóvá í fyrra um skjáhættu hafa skilað miklum árangri. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýjum niðurstöðum Samgöngustofu úr árlegri umferðarkönnun þeirra. Spurt er um ýmsa hegðun og viðhorf ökumanna og hjólreiðamanna. Í könnuninni er til dæmis spurt um ýmsa hegðun tengdri farsímanotkun undir stýri. Þeim fækkar á milli ára sem skoða samfélagsmiðla, skrifa skilaboð, lesa skilaboð, stjórna tónlist og taka myndir en þeim fjölgar á sama tíma sem nota handfrjálsan búnað til að tala í síma á meðan þau keyra. Alls segjast 31 prósent tala oft í símann með handfrjálsum búnaði, 37 prósent stundum og 19 prósent sjaldan. Þá segja 13 prósent að þau tali aldrei í símann með handfrjálsum búnaði. Fólk er einnig spurt í könnuninni hversu hættulegt þau telja að gera það og segja sem dæmi 64 prósent þeirra sem tala oft í handfrjálsan búnað að þau telji það alveg hættulaust. Ekki er mælt með því að nota farsíma á meðan fólk ekur. Enn gera það þó nokkuð margir.Vísir/Getty „Þegar við sáum niðurstöður könnunarinnar í fyrra fannst okkur ekki annað hægt en að bregðast við,“ segir Gunnar Geir í samtali við fréttastofu. Það hafi svo leitt til átaksins um skjáhættu. „Núna er svo komin ný könnun og við sjáum að allar mælingar um farsímanotkun undir stýri eru á niðurleið á milli ára. Við metum það svo að ef við hefðum ekkert gert hefði þetta haldið áfram að aukast og viljum meina að herferðin hafi sett stopp í þróun og snúið henni við.“ Gunnar Geir segir eina undantekningin vera notkun handfrjáls búnaðar undir stýri. Áherslan sé ekki á það í herferð Samgöngustofu en að slíkri notkun fylgi þó einnig truflun. „Það er eina hegðunin af þessum sem spurt er um sem er lögleg,“ segir Gunnar Geir. Áhyggjuefni þeirra sé hugræna truflunin og það sé ekki endilega það að halda á símanum sem sé að trufla, heldur frekar símtalið og innihald þess. Ekki bara síminn sem truflar Gunnar Geir segir farsímann þó alls ekki það eina sem geti truflað fólk. Í mörgum nýjum bílum séu skjáir þar sem fólk stýrir ýmsu varðandi til dæmis tónlist eða hitastig í bílunum. „Sumir bílar virka ekki nema með skjánum. Það er ekki hægt að breyta miðstöðinni nema með skjánum og það er slæmt. Í venjulegum bílum geturðu gert þetta án þess að líta af veginum.“ Í sumum nýjum bílum þurfi fólk að finna valmynd á skjá og leita að réttu möguleikanum. „Þú ert kominn með augun af veginum og dýpra inn í aðgerðina sem þú ert að reyna að framkvæma.“ Hann segir tónlist annað sem Samgöngustofa hefur áhyggjur af. Fólk er einnig í könnuninni spurt um það hvort þau noti símann við akstur til að stjórna tónlist. 50 prósent segjast aldrei gera það en sama hlutfall var 49 prósent í fyrra. Átta prósent segjast oft gera það, 22 prósent stundum og 20 prósent sjaldan. „Við höfum ekki áhyggjur af því að fólk sé að velja næsta lag í stýrinu en þegar fólk er farið að leita að nýjum lagalista eða hlaðvarpi þvi lagið er leiðinlegt þá ertu algjörlega hættur að keyra á meðan. Þú ferð dýpra inn í símann en jafnvel þegar þú ert að lesa skilaboðin,“ segir Gunnar Geir og að við þessar aðstæður sé fólk að leggja meira í símann en aksturinn. Í átaki Samgöngustofu var fólki einnig bent á að setja síma sína á akstursstillingu þannig hann hringi ekki eða trufli þau með öðrum hætti á meðan þau aka bíl. Í könnuninni var spurt um þekkingu á þessari stillingu. Flestir sem svara segjast ekki þekkja til stillingarinnar, eða 63 prósent. Um 10,7 prósent segjast nota akstursstillingu alltaf, oft eða stundum á meðan 22 prósent segjast þekkja stillinguna en ekki nota hana. „Herferðin var tvíþætt og helmingurinn var að benda á þessa akstursstillingu. Þú þarft bara að stilla þetta einu sinni og þá truflar síminn þig ekki á meðan þú ert að keyra,“ segir Gunnar Geir og hvetur fólk til að nýta þessa stillingu.
Samgöngur Umferðaröryggi Umferð Slysavarnir Bílar Tækni Tengdar fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Notkun samfélagsmiðla við akstur er sívaxandi vandamál að mati lögreglu. Vel er fylgst með símanotkun ökumanna þessa dagana auk þess sem fjölmargir hafa að undanförnu fengið himinháa sekt vegna nagladekkja. 18. maí 2024 23:01 Mest lesið Reynslubolti kveður lögregluna Innlent Íslendingar í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku Innlent Morðinginn í Brown háskóla fannst látinn Erlent Leitaði á lögreglustöð til að komast úr járnunum Innlent Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Erlent Fjögur vilja stöðu ríkislögreglustjóra Innlent Herða reglur og ráðast í endurkaup á skotvopnum Erlent Starfslokasamningar undirstofnana kostað hátt í 175 milljónir Innlent Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Erlent Þrír karlmenn handteknir fyrir þjófnað í Laugarneshverfi Innlent Fleiri fréttir Kennarar beittir ofbeldi af nemanda á jólaskemmtun Halla forseti opnar sig um kynferðisbrot í æsku Íslendingar í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku Fjögur vilja stöðu ríkislögreglustjóra Þrír karlmenn handteknir fyrir þjófnað í Laugarneshverfi Starfslokasamningar undirstofnana kostað hátt í 175 milljónir Reynslubolti kveður lögregluna Leitaði á lögreglustöð til að komast úr járnunum Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Magnús Þór sjálfkjörinn Fimm ára dómur fyrir hnífaárás á fjölskylduföður Telur hagræðingaráformin þau metnaðarfyllstu Nauðsyn að skýra betur hvort eða hvenær læknar megi rjúfa þagnarskyldu Selfyssingar í 60 plús heilsueflingu klárir í jólin Skoða að koma á ferjusamgöngum milli Skotlands og Seyðisfjarðar Viðreisn gæti reynst í lykilstöðu milli blokkanna Frumvarp um kílómetragjald samþykkt og þingmenn komnir í jólafrí Barnavernd fylgist með fleiri ófrískum konum í neyslu en síðustu ár Fleiri óléttar konur í neyslu á borði barnaverndar og spennandi kosningar framundan Langvarandi einangrun ungrar konu gagnrýnd af Amnesty Selfoss stöðvaður í Bretlandi Þrettán nýir rafknúnir strætisvagnar teknir í notkun Zuism tekið af trúfélagaská eftir áralöng svik og pretti Mun áfram leiða lista Framsóknar í Múlaþingi Töpuðu 133 milljónum króna á kosningaári Reyndu að koma útlendingafrumvarpi að á síðustu stundu Súlunesmálið: Skoða þurfi lög er varða þagnarskyldu Samþykktu tillögu um uppbyggingu á Sorpu-lóð við Dalveg Spurningum Sigmundar Ernis svarað og málið ekki aftur í nefnd Þingstörfin á lokametrunum og styttist í jólafrí Sjá meira
Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Notkun samfélagsmiðla við akstur er sívaxandi vandamál að mati lögreglu. Vel er fylgst með símanotkun ökumanna þessa dagana auk þess sem fjölmargir hafa að undanförnu fengið himinháa sekt vegna nagladekkja. 18. maí 2024 23:01