Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna Kjartan Kjartansson skrifar 4. október 2024 08:40 Hafnarverkamenn í verkfalli í Míamí í Flórída. Þeir krefjast ekki aðeins launahækkunar heldur einnig að hætt verði við aðgerðir sem eiga að auka sjálfvirkni sem þeir óttast að eigi eftir að fækka störfum. Vísir/EPA Samkomulag hefur náðst á milli stéttarfélaga hafnarverkamanna og eigenda hafna um að binda enda á þriggja daga langt verkfall sem hefur stöðvað skipaflutninga til stórra hafna á austurströnd Bandaríkjanna og við Mexíkóflóa.
Tugir flutningaskipa biðu í röðum fyrir utan hafnir í gær þar sem ekki var hægt að afferma þau vegna umfangsmesta verkfalls hafnarverkamanna í Bandaríkjunum í áratugi. Verkamennirnir lögðu niður störf á sunnudag. Bráðabirgðasamkomulag sem deiluaðilar gerðu í nótt felur í sér launahækkanir upp á 62 prósent á næstu sex árum, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Það er engu að síður nokkuð undir kröfum stéttarfélagsins sem vildi 77 prósent hækkun. Núverandi kjarasamningur verður framlengdur fram í janúar á meðan samið er um önnur mál. Það helsta er andstaða hafnarverkamanna við aðgerðir til þess að auka sjálfvirkni sem þeir óttast að fækki störfum fyrir manneskjur af holdi og blóði. Verkfallið hafði ekki veruleg áhrif á starfsemi íslensku skipafélaganna á meðan á því stóð. Í skriflegu svari frá Samskipum við fyrirspurn Vísis kom fram að fyrirtækið hefði undirbúið sig vel og beint flutningum sínum til annarra hafna sem verkfallið náði ekki til. Eimskip segja að verkfallið hafi ekki haft nein áhrif á siglingar félagsins til Portland í Maine á austurströndinni. Óttast var að það gæti tekið vikur eða jafnvel mánuði að vinna upp raskanirnar á vöruflutningum ef verkfallið drægist á langinn. Í millitíðinni hefði þá mögulega þurft að sigla flutningaskipum þúsundir kílómetra til vesturstrandar Bandaríkjanna, líklega í gegnum Panamaskurðinn. Við það hefði flutningskostnaður stóraukist og afhendingartími lengst verulega.
Bandaríkin Skipaflutningar Mest lesið Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Viðskipti innlent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Viðskipti erlent Íbúðum í byggingu fækkar Viðskipti innlent Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Viðskipti innlent Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Viðskipti innlent Gleymdi að skrá sig úr stæðinu og því rukkuð um 48 þúsund Neytendur Um forvitna yfirmanninn Atvinnulíf Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Viðskipti innlent Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Viðskipti innlent Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira