Innlent

Bein út­sending: Mál­þing um fóstur- og ný­bura­skimanir

Atli Ísleifsson skrifar
Málþinginu er ætlað að vera samtalsvettvangur um fóstur- og nýburaskimanir og hvaða tækifæri og áskoranir fylgja tækniframframförum á þessu sviði.
Málþinginu er ætlað að vera samtalsvettvangur um fóstur- og nýburaskimanir og hvaða tækifæri og áskoranir fylgja tækniframframförum á þessu sviði. Getty

Heilbrigðisráðuneytið og félags- og vinnumarkaðsráðuneytið standa saman að málþingi um fóstur- og nýburaskimanir milli klukkan 13 og 16:30 í dag. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi.

Í tilkynningu segir að málþinginu sé ætlað að vera samtalsvettvangur um fóstur- og nýburaskimanir og hvaða tækifæri og áskoranir fylgi tækniframframförum á þessu sviði, auk þess sem áleitnum siðferðilegum álitaefnum verði velt upp. 

Fjallað verður um hvernig skimunum er háttað í dag, ávinning þeirra, áhættu og um þau sjónarmið sem huga þarf að þegar metið er hvort og þá hvaða fósturskimanir heilbrigðisyfirvöld eigi að bjóða. Þingið verður haldið á Hilton Reykjavík Nordica og stendur frá kl. 13.00-16.30. 

Hægt verður að fylgjast með þinginu í beinu streymi í spilaranum að neðan. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×