Innherji

Eftir hækkun Moo­dy´s er láns­hæfi Ís­lands einum flokki neðar en Bret­lands

Hörður Ægisson skrifar
Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra. Stjórnvöld hafa átt í viðræðum við lífeyrissjóðina um samkomulag um úrvinnslu skulda ÍL-sjóðs en bókfært virði þeirra er um 15,5 prósent af landsframleiðslu.
Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra. Stjórnvöld hafa átt í viðræðum við lífeyrissjóðina um samkomulag um úrvinnslu skulda ÍL-sjóðs en bókfært virði þeirra er um 15,5 prósent af landsframleiðslu. Samsett

Náist samkomulag við lífeyrissjóðina um úrvinnslu skulda ÍL-sjóðs og salan á Íslandsbanka klárast ætti það að leiða til meiri lækkunar á skuldahlutfalli ríkissjóðs en núverandi áætlun Moody´s gerir ráð fyrir, en lánshæfismatsfyrirtækið hefur hækkað einkunn Íslands í A1, einum flokki neðar en hjá löndum á borð við Bretland og Írland. Vaxtabyrði íslenska ríkisins í hlutfalli af tekjum er umtalsvert meiri í samanburði við önnur ríki með sama lánshæfismat en Moody´s telur að það muni lækka nokkuð á komandi árum.


Tengdar fréttir

Seðla­banka­stjóri: Láns­hæfis­mat Ís­lands „lægra en við eigum skilið“

Seðlabankastjóri segist vera þeirrar skoðunar að lánshæfismat íslenska ríkisins sé „lægra en við eigum skilið“ en þar spilar meðal annars í að alþjóðlegu matsfyrirtækin virðast hafa vantrú á ferðaþjónustunni. Ef áætlanir fyrirtækja í hugverkaiðnaði um stórauknar útflutningstekjur á komandi árum ganga eftir þá mun það hins vegar hafa veruleg áhrif fyrir allt íslenska hagkerfið.

Mats­fyrir­tækin „ekki mjög ör­lát“ í ein­kunna­gjöf sinni á ís­lenska ríkið

Umrót og krefjandi aðstæður á alþjóðlegum fjármálamörkuðum síðustu misseri hefur undirstrikað vel að efnahagslegur styrkleiki íslenska hagkerfisins er meiri heldur en endurspeglast í lánshæfiseinkunn ríkissjóðs, að mati eins af stjórnendum Seðlabankans, sem telur að ríkið muni bráðlega skoða að ráðast í erlenda skuldabréfaútgáfu. Framkvæmdastjóri hjá Barclays tekur í svipaðan streng og segir að lánshæfiseinkunn íslensku bankanna ætti „líklega“ að vera hærri en hún er um þessar mundir.

Banka­stjóri Arion: Ættum að njóta sömu láns­kjara og önnur nor­ræn ríki

Ísland ætti á komandi árum að geta séð fram á betri fjármögnunarkjör á erlendum lánamörkuðum samhliða væntingum um að hugverkaiðnaður verði brátt ein helsta útflutningsstoð hagkerfisins, að sögn bankastjóra Arion. Fyrirliggjandi þjóðhagsspár vanmeta áætlanir um vöxt útflutningstekna og því eru líkur á að „hagvaxtarhorfur séu allt aðrar og miklu betri“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×