Lífið

Sjóð­heitar og ein­hleypar inn í haustið

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Listinn samanstendur af einhleypum og glæsilegum konum en er síður en svo tæmandi! Hvaða konu vantar á listann að þínu mati?
Listinn samanstendur af einhleypum og glæsilegum konum en er síður en svo tæmandi! Hvaða konu vantar á listann að þínu mati?

Haustið er mætt í allri sinni dýrð, með gulum veðurviðvörunum og notalegum stundum innandyra. Árstíðin er oft talin sú rómantískasta þar sem kertaljós og notaleg stemning ræður ríkjum. Í samstarfi við álitsgjafa hefur Lífið á Vísi tekið saman lista af einhleypum, sjóðheitum og glæsilegum konum.

Guðrún Svava Egilsdóttir, áhrifavaldur - 21 árs

Guðrún, sem er betur þekkt sem Gugga í gúmmíbát, er uppalin Hafnarfjarðarmær. Hún starfar sem ritari og aðstoðarkona hjá Kirópraktorstofu Íslands samhliða því að nema viðskiptafræði við Háskólann á Bifröst. Gugga er mikil stemningskona sem er gaman að vera í kringum.

Gugga er með tæplega 11 þúsund fylgjendur á Instagram og er síminn henni mikilvægur.Aðsend

Bríet Ísis Elfar, tónlistarkona - 25 ára

Bríet er ein skærasta stjarna landsins og hefur vakið mikla athygli í íslensku tónlistarlífi á undanförnum árum. Hún er ekki aðeins stórglæileg heldur ein hæfileikaríkasta kona landsins! 

Birta Abiba, fyrirsæta - 24 ára

Birta er sjarmerandi ofurskvísa sem er búsett í New York, þar sem hún starfar sem fyrirsæta. Ekki nóg með það að vera ein farsælasta fyrirsæta okkar Íslendinga, átti hún stórleik í tónlistarmynbandi við lagið Krumla með strákabandinu IceGuys. 

Inga Lind Karlsdóttir, framleiðandi og fjölmiðlakona - 48 ára

Inga Lind er einn af eigendum framleiðslufyrirtækisins Skot productions og hefur farið mikinn í framleiðslu undanfarin ár. Þar áður var starfaði hún í fjölmiðlum. Inga Lind er ein glæsilegasta kona landsins líkt, í toppformi og mikil útivistarkona. 

Ásdís Mercedes Spanó, myndlistarkona og kennari - 51 árs

Ásdís hefur áralanga reynslu í listheiminum og hefur þróað sérkenni sem endurspeglast í verkum hennar. Eftir útskrift frá Listaháskóla Íslands, þar sem hún lagði grunninn að ferlinum, stundaði hún framhaldsnám í Bretlandi og á Ítalíu. Samhliða listsköpuninni rekur hún Multis.is, vettvang sem sameinar skapandi greinar og listmannaþjónustu, og þjónar sem miðpunktur fyrir listamenn að tengjast og þróa verk sín.

Ásdís er stórglæsileg og mikil fyrirmynd fyrir aðrar konur!

Kristín Ásta Kristinsdóttir

Anna Guðný Ingvarsdóttir, áhrifavaldur og flugfreyja - 25 ára

Anna Guðný starfar sem flugfreyja hjá Icelandair. Hún er sannkölluð ofurskvísa með einstaklega flottan stíl líkt og fylgjendur hennar á Instagram fá að kynnast. Anna Guðný er algjört fiðridi sem elskar ferðalög, tísku og förðun. 

Inga María Hjartardóttir, markaðssérfræðingur - 30 ára

Inga María er ekki bara glæsileg, heldur líka einstaklega klár og skapandi. Hún var áberandi í kosningateymi Höllu Tómasdóttur forseta Íslands, þar sem hún lagði áherslu á að ná til unga fólksins í landinu. Með nýstárlegum hugmyndum og aðferðum tókst henni að skapa áhuga og þátttöku meðal yngri kjósenda. 

Kristín Ólafsdóttir fjölmiðlakona- 31 árs

Stína er ljóshærð, hnyttin og sjarmerandi fjölmiðlakona sem laðar að sér athygli með skemmtilegum persónutöfrum og einstöku orðfæri. Hún er þekkt fyrir lipurleika sinn í fjölmiðlastarfi og hæfileikann til að hrífa fólk með sér, bæði á skjánum og utan hans. Stína er ekki bara hæfileikarík heldur líka fyndin og hefur einstakt lag á að setja bros á andlit fólks.

Arnar Halldórsson

Tinna Aðal­björns­dótt­ir casting director - 43 ára

Tinna hefur lengi verið áhrifavaldur í tískuheiminum og hefur með árunum fest sig í sessi sem ein helsta fyrirmynd kvenna þegar kemur að stíl og framkomu. Sem eigandi og Casting Director hjá Ey Agency hefur hún ekki aðeins haft mikil áhrif á þróun módelskrifstofunnar heldur einnig mótað feril margra fyrirsæta. Tinna er þekkt fyrir einstakan smekk og þor til að prófa nýja strauma og stefnur! 

Tinna segir að það séu engar reglur í tískunni.Aðsend

Kolbrún Pálína Helgadóttir sér­fræðing­ur í miðlun og markaðsmá­l­um - 44 ára

Kolbrún Pálína er sérfræðingur í miðlun og markaðsmálum hjá Ósum og er þekkt fyrir að heilla fólk upp úr skónum með persónutöfrum sínum. Hún er ekki aðeins falleg og eldkár heldur leggur hún mikla áherslu á heilsusamlegan lífsstíl. Kolbrún stundar reglulega fjallgöngur og jóga, og er mikið náttúrubarn sem elskar ferðalög.

Kolbrún Pálína vinnur að þáttum að skilnaði ásamt Kristborgu Bóel.fréttablaðið/vilhelm

Helena Hafþórsdóttir O’Connor fegurðardrottning - 20 ára

Helena hlaut titilinn Miss Supranational 2023 í Ungfrú Ísland og komst í topp 20 í Miss Supranational í Póllandi í sumar. Hún starfaði sem fyrirsæta erlendis í sumar, en hefur nú snúið aftur í skóla til að læra sálfræði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×