Ágreiningur um kött og hótanir gegn börnum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 25. júlí 2024 06:19 Lögregla sinnti ýmsum verkefnum í gærkvöldi og í nótt. Vísir/Vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í gærkvöldi vegna ágreinings um kött, þar sem tveir deildu um það hvor væri réttmætur eigandi kattarins. Rannsókn lögreglu á vettvangi varð til þess að kötturinn endaði að lokum í höndunum á réttum eiganda.
Frá þessu er greint í yfirliti lögreglu yfir verkefni gærkvöldsins og næturinnar. Lögregla var einnig kölluð til vegna einstaklings sem var sagður í annarlegu ástandi. Var hann sagður hafa haft í hótunum við börn í póstnúmerinu 107. Málið er í rannsókn. Þá var tilkynnt um einstakling í annarlegu ástandi sem var sagður brjóta rúður í fjölbýli í miðborginni til að reyna að komast inn. Sá var handtekinn og er það mál einnig í rannsókn. Lögregla var einnig kölluð til vegna nokkurra einstaklinga sem voru sagðir reyna að komast inn í kyrrstæðar og mannlausar bifreiðar. Tókst að hafa uppi á þeim og var málið afgreitt á vettvangi. Í póstnúmerinu 108 var lögregla kölluð til vegna ungmenna sem voru í leyfisleysi í „menntastofnun“. Grunur leikur á um að þau hafi brotist þar inn og er málið í rannsókn. Þá aðstoðaði leigubílstjóri eftir aðstoð vegna líkamsárásar í sama hverfi og er það mál einnig í rannsókn. Einn var handtekinn í póstnúmerinu 105 grunaður um akstur undir áhrifum og að aka sviptur ökuréttindum en við nánari athugun reyndist viðkomandi eftirlýstur. Þá var ökumaður handtekinn í Kópavogi eftir að hafa reynt að stinga lögreglu af en hann er grunaður um akstur undir áhrifum, um að aka ítrekað án ökuréttinda, um óheimila notkun nagladekkja og að aka bifreið í óöruggu ástandi. Lögreglan í Kópavogi var einnig kölluð til vegna ágreinings í heimahúsi og þá var tilkynnt um þjófnað í verslun.
Lögreglumál Kettir Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Innlent Lítil bjartsýni á úrslitastundu Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Innlent Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Innlent Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Fleiri fréttir Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Óskiljanleg áfengissala, óvissa fyrir úrslitastund og úrkoman endalausa Dæmdur fyrir heimilisofbeldi en sagðist sjálfur hafa verið eins og gísl Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana „Stundum koma upp atvik“ Langflestir umsækjendur frá Úkraínu „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið Sjá meira