Í tilkynningu sem Guðrúnar Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra sendi frá sér í dag segir hún að pólitísk afskipti af rannsóknum sakamála væru til þess fallin að grafa undan réttarríkinu. Sigurður Ingi segir þessa yfirlýsingu áhugaverða. Hann sem fjármálaráðherra fari með yfirstjórn á einkarétti ríkisins á smásölu áfengis, heildsölu tóbaks og framkvæmd laga þar um.
Það væri því fullkomlega eðlilegt að hann kæmi ábendingum til sjálfstæðra eftirlitsaðila um möguleg brot gegn þeim einkarétti. Þegar hann tók við fjármálaráðuneytinu hafi ársskýrsla ÁTVR verið nýkomin út með ábendingum. Þá þyrfti að horfa til þess að ÁTVR væri ríkisstofnun.

„Það eru einnig jafnframt sérstaklega tilgreind í lögunum markmið um bætta lýðheilsu, samfélagslega ábyrgð, að takmarka og stýra aðgengi að áfengi og draga þannig úr skaðlegum áhrifum áfengis og tóbaksneyslu. Sem og að vernda ungt fólk gegn neyslu áfengis og tóbaks,” segir Sigurður Ingi.
Þá hafi heilbrigðisráðherra skrifað honum um þessi mál og því eðlilegt að bregðast við með þeim hætti sem hann hafi gert með bréfi sínu til Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Með því væri hann ekki að hvetja til sakamálarannsóknar á þeim fyrirtækjum sem flyttu inn áfengi og seldu á netinu.
„Engan veginn. Við erum bara að vekja athygli á þessari stöðu. Ég fékk utanaðkomandi lögfræðiálit sem ég hef einnig látið birta vegan þess að það er nokkuð skýrt,” segir fjármálaráðherra.

Dómsmálaráðherra segir í tilkynningu sinni að íslenskt sakamálaréttarfar byggi á því grundvallarsjónarmiði að meðferð sakamála eigi ekki að lúta pólitískum afskiptum valdhafa. Skilaboðin gætu varla verið skýrari.
Þegar ráðherrar eru farnir að skensa svona á milli sín í fjölmiðlum og með yfirlýsingum á heimasíðum ráðuneyta sinna, er þá ekki orðið svolítið pirringslegt á stjórnarheimilinu?
„Eins og ég sagði í upphafi, mér fannst þetta bréf áhugavert. En ég horfi einfaldlega á þetta út frá þeim skyldum sem ég ber sem fjármálaráðherra. Hefði frekar litið á það sem athafnaleysi að minni hálfu að bregðast ekki við með nokkrum hætti,” segir Sigurður Ingi.
Í bréfi hans til lögreglu sé á engan hátt fjallað um lögbrot. „Enda eins og ég segi; innflutningur er heimill og sala svo fremi að það sé augljós innflutningur.“ Það hafi ekki hvarlað að honum að draga bréf sitt til lögreglunnar til baka.
Er þetta til að bæta móralinn á stjórnarheimilinu?
„það er svo önnur saga sem ég ætla heldur ekki að tjá mig um,“ segir fjármálaráðherra.
Heldur þú að ríkisstjórnin lifi af næsta vetur?
„Já, ég hef fulla trú á því. Það eru mörg áhugaverð mál sem við höfum verið að undirbúa á grundvelli stjórnarsáttmálans sem liggja fyrir þinginu núna. Kannski náum við ekki að klára þau öll og þá er ágætt að hafa næsta vetur til að ljúka því. Sem og að koma áframhaldandi góðum verkefnum fram sem þessi ríkisstjórn hefur svo sannarlega gert á sínum líftíma,” segir Sigurður Ingi Jóhannsson sem reiknar með að eiga eftir að ræða þessi mál frekar við dómsmálaráðherra.