Skiptin til ÍA marka endurkomu Rúnars, sem hefur spilað sem atvinnumaður erlendis síðan árið 2013, í íslenska boltann og ljóst að um mikla styrkingu er að ræða fyrir lið ÍA. Þaulreyndur atvinnu- og landsliðsmaður snúinn aftur heim en Rúnar Már lék síðast hér á landi árið 2013, þá með liði Vals.
„Auðvitað hafði þetta kannski legið í loftinu í einhvern tíma,“ segir Rúnar Már. „Maður hafði hótað því að koma aftur heim síðastliðin eitt til tvö ár. Ég var því alveg undirbúinn fyrir þetta. Tilfinningin er mjög góð. Að vera kominn aftur af stað er bara frábært. Ég hlakka bara mikið til.“
Erfið og stór ákvörðun
Þú hefur sem sagt hugsað um það í dágóðan tíma núna að snúa aftur heim?
„Bæði og. Þetta var spurning sem ég þurft að velta fyrir mér. Ég er að verða 34 ára gamall. Var með þriggja ára samning úti hjá liði mínu þar. Þetta var í rauninni bara spurning um það hvort ég vildi bara taka næstu þrjú til fimm árin þarna úti og enda ferilinn þar eða koma aftur heim.
Það er mjög erfið og stór ákvörðun þegar að ég er með þrjú lítil börn líka sem er erfitt að taka úr sínu umhverfi. Á endanum datt þetta þannig að við fjölskyldan myndum flytja heim. Að ég myndi gera þetta af alvöru hér.“
Og var ÍA ekki eina félagið hér á landi sem spurðist fyrir um stöðuna hjá Rúnari og hafði hann áður verið nálægt því að snúa aftur í íslenska boltann.
„Það voru alveg fleiri félög. Þar síðasta sumar byrjuðu félög hér heima að heyra í mér. Ég myndi segja að síðasta sumar hafi ég verið nálægt því að koma heim. Það varð hins vegar ekkert úr því. Núna um áramótin tók ég samtalið við tvö til þrjú lið. Á endanum bý ég hér á Akranesi með fjölskyldu minni og það var því nokkuð auðvelt, þannig lagað, að fara í ÍA. Verkefnið sem er í gangi hér er spennandi. Framtíðin björt.“

Hafa verið með annan fótinn á Skaganum
Tengingin í fjölskyldu Rúnars við Akranes er sterk.
„Konan mín er héðan. Við höfum verið með annan fótinn hér á Akranesi í gegnum árin. Ferilinn minn hefur að einhverju leiti einkennst af miklu flakki um heiminn. Stundum er fjölskyldan með mér og stundum hafa þau haldið til hér. Hér er mjög gott að vera.“
Í rauninni snýst bara allt um að gera allt fyrir börnin. Hér er mjög gott fyrir þau að vera. Haldið vel utan um þau og hér njóta þau sín. Það gerði ákvörðunina, um að snúa aftur heim, auðveldari.“
Aðgerð setti strik í reikninginn
Það leið dágóður tími frá því að það reyndist ljóst að Rúnar Már myndi skipta yfir til ÍA þar til að félagsskiptin voru frágengin og skrifað undir samninga. Hvað olli því?

„Þetta hefði löngu verið klárað hefði ég ekki þurft að fara í þessa aðgerð seint í janúar. Eftir það lá í rauninni ekkert á. Ég vildi líka sjálfur sjá hvort að ég hefði neistann í að vinna í því að koma aftur til baka. Af því að maður vill gera þetta vel ef maður er á annað borð að koma aftur heim. Ég vildi ekki koma hingað í eitthvað frí. Ef að ég myndi finna neistann til að virkilega gera þetta af alvöru þá yrði þetta raunin. Ég ákvað bara að gefa þessu tíma.“
Því staðreyndin er sú að Rúnar hefur verið að glíma við krefjandi meiðsli í nára sem hafa gert honum erfitt fyrir.
„Á meðan var samtalið við ÍA alltaf virkt. Félagið gerði allt fyrir mig, leyfði mér að æfa með sér. Nýta alla sína aðstöðu. Samkomulagið við félagið var í rauninni alltaf klárt. Svo fer ég bara í gegnum gott próf um miðjan aprílmánuð. Til þess að athuga stöðuna á náranum. Hvort það væri ekki allt í standi.“

„Það próf kemur allt mjög vel út og í kjölfarið var ákveðið að skrifa undir samninginn og tilkynna svo komu mína á herrakvöldi félagsins. Það liðu kannski fleiri dagar en þurftu en gaman að tilkynna þetta á kvöldi þar sem að margar af helstu goðsögnum ÍA voru samankomnar.
Þetta er erfið aðgerð sem að ég var í. Það tekur tíma að vinna sig til baka eftir hana. En um leið og aðgerðin var frá var mér tjáð möguleg dagsetning á endurkomu inn á völlinn. Þá sá ég að ég ætti eftir að ná þessum FH leik í fjórðu umferð Bestu deildarinnar. Það væri fyrsti leikurinn sem ég gæti mögulega tekið þátt í. Ef það kæmi ekkert bakslag.“
Rúnar Már bætti um betur og kom inn á sem varamaður undir lok leiks þegar að ÍA mætti uppeldisfélagi hans, Tindastól, í Mjólkurbikarnum, nokkrum dögum fyrir leikinn gegn FH.
„Auðvitað var það mjög gaman að geta tekið þátt í þeim leik. Hugmyndin að því kom hins vegar frá Jóni Þóri þjálfara og þeim. Að það væri ákveðin rómantík í þessu. Það var aldrei planið hjá mér að ná þessum bikarleik. En þegar að maður sá dráttinn og þetta æxlaðist svona. Þá var allt í lagi að ná einhverjum tíu mínútum á móti Tindastól. Þetta var mjög gaman og ábyggilega stund sem maður horfir skemmtilega á þegar að skórnir fara upp á hilluna.“

Hvað er langt í að við getum séð þig spila heilan leik í Bestu deildinni?
„Ég er kominn til baka. Mér líður mjög vel. Er í frábæru standi. Núna þarf ég bara mínútur inn á vellinum. Það er mjög stutt í að ég geti spilað heilan leik. Kannski ekki í næstu eða þarnæstu umferð. En eftir það ættum við að vera búnir að vera byggja ofan á mínúturnar sem ég er að fá. Mér líður mjög vel. Vonandi vinnur liðið bara leikina á meðan að ég er á bekknum og þurfa ekki á mér að halda alveg strax.
Og er hann spenntur fyrir komandi tímum hjá ÍA.

„Byrjunin er kannski svolítið upp og niður hjá okkur í deildinni. Ég held að tímabilið verði kannski svolítið þannig. ÍA er stórveldi. Var að koma aftur upp í deild. Það sem ÍA þarf og vill gera núna er að festa sig í sessi aftur í efstu deild. Þetta má ekki vera tvö til þrjú ár hér og falla svo. Ég kem inn í þetta núna. Er að vinna í sömu markmiðum og félagið. Við erum alveg með liðið í það að vera ekki í fallbaráttu í sumar. Það er eitthvað sem við höfum engan áhuga á. Ég held að það muni ganga þokkalega hjá okkur.“
Þú verður þrjátíu og fjögurra ára á þessu ári. Ertu alfarið kominn heim núna og reiðubúinn í að klára ferilinn á Íslandi?
„Já ég held að það sé nokkuð augljóst. Maður á náttúrulega aldrei að segja aldrei. Ekki nema að eitthvað ævintýri skildi koma inn á borð til mín. Ég held hins vegar að það sé nokkuð ljóst að ég sé ekki að fara neitt út aftur. Ég er ánægður með það.“