Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Valur Páll Eiríksson skrifar 4. júní 2026 10:00 Danijel Djuric, leikmaður KA, á töluvert inni en lætur umræðuna ekki hafa mikil áhrif á sig. Vísir/Bjarni Danijel Djuric lætur skort á mörkum með KA í upphafi tímabils ekki trufla sig um of. Hann er fullviss um að Norðanmenn blandi sér í Evrópubaráttu eftir landsleikjahlé.
Eftir krefjandi tíma með liði Istra í Króatíu var það heldur óvænt að Danijel skildi semja við KA í upphafi tímabils, en það flosnaði til að mynda upp úr viðræðum við uppeldisfélagið Breiðabliki auk þess sem lið í Skandinavíu sýndu áhuga áður en hann flutti norður. Mikil keyrsla hefur verið í upphafi móts, níu deildarleikir að baki, og eftir hana er gott að koma aðeins heim í Kópavoginn á meðan landsleikjahléinu stendur yfir. „Það er það. Þetta er búið að vera skemmtilegt en það er gott að koma aðeins heim og fá mömmumat og hafa smá gaman,“ segir Danijel sem líður vel norðan heiða. „KA-fólkið og fólkið á Akureyri er bara geggjað fólk. Maður er bara eins og einn af þeim. Maður fer út í búð og það er bara knús eins og ég sé sonur þinn. Maður metur þetta miklu meira en margt annað. Ég bara get ekki beðið eftir því að borga þeim til baka,“ segir Danijel sem virðist þá meðvitaður um að eiga svolítið inni. Leitar fyrsta marksins Hann hefur enn hvorki lagt upp né skorað í fyrstu átta leikjum sínum fyrir KA í Bestu deildinni. Fyrir framliggjandi og skapandi leikmann getur það tekið á sálina. Aðspurður hvort það svíði að sjá núll mörk og stoðsendingar hlær Danijel, hugsar sig aðeins um og segir: „Nei… jú, og nei,“ segir Danijel og hlær. „Mér líður eins og þetta svíði, en þá miklu meira fyrir fólkið í kringum mig. Veistu hvað ég meina? Það er það sem ég meina. Ég er á einhverri vegferð sem er í hausnum á mér,“ segir Danijel og bætir við: „Þetta svíður miklu meira fyrir fjölskylduna og fólkið í KA. Eins og þjálfarana sem eru oft að segja eitthvað við. En ég pæli voða lítið í þessu. Þetta meiðir þannig, en meiðir ekki mig. Þið munuð sjá.“ Evrópubarátta framundan Boltinn fer svo aftur að rúlla um aðra helgi þegar yfirstandandi landsleikjahléi lýkur. KA tapaði síðustu tveimur leikjum fyrir hlé og situr í áttunda sæti deildarinnar með tíu stig. Eftir gloppótta byrjun KA á tímabilinu er Danijel ekki hræddur um annað en að allt sé á uppleið. „Ég sé KA fara upp í topp þrjú. Það er ekkert annað í þessu. Það er það eina sem ég veit.“ Viðtal við Danijel má sjá í heild í spilaranum að neðan. Klippa: Einlægur Danijel ræðir markaleysið og lífið á Akureyri
KA Besta deild karla Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira