Óskar Smári: „ Ánægður með varnarleikinn, stigin og úrslitin“ Þorsteinn Hjálmsson skrifar 30. maí 2026 16:34 Stjörnukonur unnu góðan sigur gegn ÍBV í dag. vísir/Anton „Mjög sáttur. Eins og ég sagði fyrir leikinn þá gæti þetta orðið þolinmæðisvinna og þetta var það í dag,“ sagði Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir 2-0 sinna kvenna á liði ÍBV í dag á Samsung vellinum, í Bestu deildinni.
Eftir markalausan fyrri hálfleik og eitt klúðrað víti, tókst heimakonum í Stjörnunni að skora snemma í síðari hálfleik og ganga svo frá leiknum á lokakaflanum með öðru marki. „Mér fannst við spila að mörgu leyti vel í dag. Smá doði í okkur eftir að við skoruðum fyrsta markið, þá fannst mér við hleypa ÍBV liðinu aðeins inn í leikinn. Mér fannst við samt vera með stjórn á öllu sem við vorum að gera allan leikinn og sköpum urmul af færum og eigum að skora fleiri, en Guðný var frábær í markinu hjá þeim í dag og mikið hrós á hennar frammistöðu. Ég var ánægður með varnarleikinn, stigin og úrslitin.“ „Við töluðum um það í hálfleik að vera þolinmóðar og halda áfram að banka og reyna að komast á bak við þær og komast í svæðin sem við viljum komast í. Geggjað mark hjá Fanney Lísu. ÍBV fékk svo tvö þrjú upphlaup og eitt dauðafæri að mínu mati. Þær voru hættulegar við vissum það alveg. Mér fannst þetta vera faglegt hjá stelpunum í dag og mér fannst við eiga skilið þennan sigur.“ Óskar Smári var léttur aðspurður út í framhaldið, en nú er komin landsliðspása í deildina. Stjarnan hefur nú unnið tvo leiki í röð og haldið hreinu í þeim báðum og liðið því komið á skrið. „Ég er gríðarlega óánægður að það sé komin pása, vil helst bara fá leik núna á miðvikudaginn eða fimmtudaginn. Mér finnst bara góður stígandi og góður kraftur í okkur. Erum með stóran og góðan hóp líka þannig að við getum dreift álaginu betur en önnur lið. Við komum bara til baka vonandi ferskar. Breiðablik úti í næsta leik, það verður erfiður leikur, við höfum góðan tíma til að undirbúa okkur undir það,“ sagði Óskar Smári að lokum.
Besta deild kvenna Stjarnan Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira