Óli Valur aftur í raðir Stjörnunnar Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 18. mars 2024 21:16 Óli Valur í leik með U-21 árs landsliði Íslands. vísir/Diego Óli Valur Ómarsson mun spila með uppeldisfélagi sínu Stjörnunnar í Bestu deild karla í knattspyrnu á komandi tímabili. Hann kemur á láni frá sænska félaginu Sirius. Frá þessu greinir Stjarnan á samfélagsmiðlum sínum nú í kvöld.
Í yfirlýsingu Stjörnunnar segir: „Stjarnan og Sirius hafa komist að samkomulagi um að Óli Valur muni koma á láni til félagsins út keppnistímabilið 2024.“ Hinn 21 árs gamli Óli Valur er gríðarlega sóknarsinnaður bakvörður sem lék frábærlega með Stjörnunni sumarið 2022. Var hann keyptur til Sirius sama ár en þar hafa hlutirnir ekki gengið nægilega vel enda Óli Valur verið mikið meiddur síðan hann færði sig til Svíþjóðar. „Óli Valur er einn af fjölmörgum leikmönnum sem félagið hefur selt á undanförnum árum. Sökum meiðsla þá hefur Óli verið inn og út úr liðinu hjá Sirius og hafa félögin því komist að samkomulagi um að Óli snúi aftur í búninginn bláa og spili með sínu uppeldisfélagi á komandi keppnistímabili. Við viljum þakka Sirius fyrir sérstaklega fagleg samskipti og gott samstarf hingað til”, segir Helgi Hrannarr Jónsson formaður meistaraflokks karla hjá Stjörnunni. Ásamt því að fá Óla Val þá sótti Stjarnan einnig Guðmund Baldvin Nökkvason á láni frá sænska félaginu Mjällby. Guðmundur Baldvin er einnig uppalinn hjá Stjörnunni en var keyptur til Svíþjóðar síðasta sumar. Stjarnan hefur leik í Bestu deild karla þann 6. apríl næstkomandi þegar liðið sækir Íslands- og bikarmeistara Víkings heim í Víkina. Leikurinn verður að sjálfsögðu í beinni útsendingu Stöðvar 2 Sport.
Fótbolti Íslenski boltinn Besta deild karla Stjarnan Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira