Lífið

Eins og gleðisprauta í rass­kinnina

Stefán Árni Pálsson skrifar
Heldur betur skemmtilegir heimatímar.
Heldur betur skemmtilegir heimatímar.

Edda Björgvins segir að nokkrar mínútur af dansi með Önnu Claessen sé eins og gleðisprauta í rassinn.

Það þarf oft ekki margar mínútur til að hreyfa sig heima á morgnana og fá þannig nettan skammt af náttúrulegu morfíni líkamans endorfíni og við það gleði og jákvæðni inn í daginn.

Anna Claessen frumkvöðull og danskennari með meiru kennir hvernig má hreyfa sig í örfáar mínútur á morgnana og fá þannig gleði sprautu fyrir daginn. Vala Matt leit við hjá henni í Íslandi í dag á Stöð 2 og fengu áhorfendur að sjá afraksturinn í innslagi gærkvöldsins.

Hér að neðan má sjá brot úr innslaginu en áskrifendur geta horft á það í heild sinni á Stöð 2+ og í frelsiskerfi Stöðvar 2.

Klippa: Eins og gleði sprauta í rasskinnina





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.