Mikil gleði er sögð ríkja í útsendingum ríkismiðla Rússlands, þar sem viðmælendur hafa meðal annars rætt hvernig Rússar eigi að refsa Úkraínumönnum.
BBC hefur eftir Oksönu Markaróvu, sendiherra Úkraínu í Bandaríkjunum, að Repúblikanar í öldungadeildinni hafi lýst því yfir að þeir væru ekki að greiða atkvæði gegn Úkraínu. Viðræður eiga sér stað í öldungadeildinni en skili það árangri í formi frumvarps, þyrfti það einnig að vera samþykkt af fulltrúadeildinni. Þar hafa Repúblikanar nauman meirihluta en þeir þykja tregari í taumi en flokksmeðlimir þeirra í öldungadeildinni, þegar kemur að aðstoð handa Úkraínumönnum.
Fulltrúadeildin fer þar að auki í frí þann 14. desember, samkvæmt áætlunum og er lítill tími til stefnu.
Blaðamaður Bloomberg hafði í kvöld eftir heimildarmönnum sínum á þingi að engar líkur væru á samkomulagi fyrir jól.
UKRAINE: Lawmakers tell me there is no way House will pass Ukraine aid in 2023. @SpeakerJohnson is firm on House leaving by Dec. 15 and no Senate deal in sight
— Erik Wasson (@elwasson) December 7, 2023
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefur farið fram á 110 milljarða pakka til öryggismála frá þinginu. Þar af færi 61 milljarður til Úkraínu. Aðrir hlutar færu til Ísraels og í aðstoð handa Palestínumönnum. Pakkinn inniheldur einnig nokkra milljarða fjárveitingar vegna eftirlits og löggæslu á landamærunum.
Fjöldi þeirra sem fara yfir landamærin er í hæstu hæðum og hafa Repúblikanar krafist þess að umfangsmiklar breytingar verði gerðar varðandi það hvernig tekið er á móti hælisleitendum og að haldið verði áfram að byggja múrinn fræga.
Mikil óreiða hefur ríkt á bandaríska þinginu undanfarna mánuði. Hópur þingmanna Repúblikanaflokksins velti Kevin McCarthy, fyrrverandi þingforseta, úr sessi og það tók Repúblikana langan tíma að finna nýjan forseta í Mike Johnson.
Síðan þá hefur lítið sem ekkert gerst á þinginu. Þingmenn Repúblikanaflokksins hafa deilt sín á milli og jafnvel sakað hvorn annan um ofbeldi.
Biden sagði í gærkvöldi að hann væri tilbúinn til málamiðlana en sakaði Repúblikana um að hafa engan áhuga á að finna lausnir. Þess í stað sagði Biden að þeir væru að reyna að fella pólitískar keilur.
Oleksí Danílóv, meðlimur í þjóðaröryggisráði Úkraínu, sagði á X í morgun að burtséð frá öllum atkvæðagreiðslum í öðrum ríkjum myndu Úkraínumenn ekki hætta að verja sig og þeir myndu ekki gefa eftir landsvæði. Hann sagði að þeir myndu hlaða vopn sín á nýjan leik og halda áfram að „eyða rússneska skrímslinu“.
Composure and firmness. Regardless of who, where and how they voted in any country in the world, we will not stop defending our country, we will not give up a single piece of our land and we will not forgive anyone killed or injured. We will focus, draw conclusions, reload our
— Oleksiy Danilov (@OleksiyDanilov) December 7, 2023
Í greiningu CNN segir að núna sé augnablikið sem Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hafi verið að bíða eftir. Á sama tíma og alþjóðlegur stuðningur við Úkraínu virðist í hættu, berist fregnir af deilum Vólódímrs Selenskí, forseta Úkraínu, og Valerí Salújsní, yfirmanni úkraínska hersins.
Þá eigi Úkraínumenn í deilum við nágranna sína í Póllandi og Slóvakíu vegna vöruflutninga og Viktor Orban, forsætisráðherra, Ungverjalands þykir líklegur til að reyna að koma í veg fyrir frekari aðstoð Evrópusambandsins handa Úkraínumönnum.
Rússar séu ekki lengur að tapa stríðinu eða þeim landsvæðum sem þeir hafi hernumið í Úkraínu.
Rússum vex ásmegin
Litlar breytingar hafa orðið á víglínunum í Úkraínu um langt skeið. Hvorki rússneski herinn né sá úkraínski hafa sýnt fram á að getu til að sækja fram svo máli skiptir og fregnir berast af miklu mannfalli á báða bóga.
Rússar eru þó að auka forskot sitt á nokkrum sviðum og þá sérstaklega þeim sem kemur að hergagnaframleiðslu. Má þar nefna framleiðslu á skotfærum, sjálfsprengidrónum og eldflaugum.
Hergagnaiðnaður Rússlands er á yfirsnúningi og þar að auki fá Rússar vopn og hergögn frá Íran og Norður-Kóreu. Á meðan hefur lítið breyst hjá bakhjörlum Úkraínu og þá sérstaklega í Evrópu.
Stríðið í Úkraínu einkennist þessa dagana, og hefur gert um nokkuð skeið, af hörðum átökum víðsvegar í Úkraínu, sem skila þó litlum breytingum á víglínunum sjálfum.
Fumio Kishida, forsætisráðherra Japans, hét Úkraínu 4,5 milljörðum dala í aðstoð í dag. Þar er að mestu um fjárhagsaðstoð að ræða en frá því innrás Rússa hófst hafa Japanir gefið Úkraínumönnum aðstoð fyrir um sjö milljarða dala.
Hún hefur að mestu verið bundin við fjárhagsaðstoð og ekki í formi hergagna. AP fréttaveitan segir að Sergí Korsúnskí, sendiherra Úkraínu í Japan, hafi tilkynnt í dag að viðræður ættu sér stað milli ráðamanna ríkjanna um mögulegar sendingar loftvarnarkerfa gegn eldflaugum og drónum.
Búist er við umfangsmiklum dróna- og eldflaugaárásum á orkuinnviði Úkraínu í vetur.
Fagna í sjónvarpi
Í Rússlandi virðist sigur óhjákvæmilegur, ef marka má ummæli í spjall- og umræðuþáttum á ríkisreknum sjónvarpsstöðvum. Julia Davis, sem vaktar rússneska miðla, skrifaði í grein í morgun um að fögnuður ríkti í áðurnefndum sjónvarpsþáttum.
Sjá einnig: Borgarar pyntaðir í haldi Rússa og neyddir til þrælkunarvinnu
Einn gestur 60 mínútna, vinsæls umræðuþáttar, sagði fall Úkraínu óhjákvæmilegt og það sama ætti við Joe Biden. Annar þekktur maður lýsti því yfir að nú yrði ráðamönnum heimsins ljóst að það væri hættulegra að vera vinur Bandaríkjanna en óvinur.
Sjá einnig: Þvinga fjölskyldur til að hlusta á nauðganir
Hér að neðan má sjá umræðu í 60 mínútum í Rússlandi frá því fyrr í vikunni um það hvernig Rússar eigi að refsa Úkraínumönnum fyrir mótspyrnuna, þegar stríðið er unnið.