Höfðu ekki orku í að halda áfram fyrr en í upphafi árs Lovísa Arnardóttir skrifar 29. nóvember 2023 08:54 Ásthildur Lóa Þórsdóttir er formaður Hagsmunasamtaka heimilanna og þingmaður Flokks fólksins. Vísir/Vilhelm Þingkona Flokks fólksins og eiginmaður hennar hafa stefnt sýslumanninum vegna fyrndra vaxta sem þau þurftu að greiða í tengslum við uppboð á heimili þeirra árið 2017. Málið á uppruna sinn að rekja til Hrunsins árið 2008. Ásthildur Lóa segir málið mikið réttlætismál og að sýslumaður hafi brotið á jafnræði. Það hafi ekki allir greitt þessa fyrndu vexti.
Ásthildur Lóa Þórsdóttir þingkona Flokks fólksins og eiginmaður hennar, Hafþór Ólafsson, ákváðu fyrir um hálfu ári síðan að stefna ríkinu vegna fjárhagslegs tjóns sem þau segjast hafa orðið fyrir „vegna lögbrota embættis sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu“ í tengslum við uppboð á heimili þeirra vorið 2017.“ Ásthildur Lóa skrifaði til sýslumanns opið bréf um málið í síðustu viku og var svo í Bítinu á Bylgjunni í morgun til að ræða bæði bréfið og málið. „Það að berjast fyrir réttlæti fyrir sjálfan sig. Það hefur alltaf víðtækari áhrif líka og það eru ekkert allir sem geta það, sagði Ásthildur Lóa á Bylgjunni í morgun. „Það voru fyrndir vextir í útreikningum sem sýslumaður gerði ekki ráð fyrir,“ sagði Ásthildur Lóa og að bankinn hefði heldur ekki gert ráð fyrir þessum vöxtum. Vextirnir hefðu verið fyrndir og þá hefðu þau ekki átt að borga þá. Þegar þau bentu sýslumanni á þetta sagði hann þau þurfa að fara í mál. Fram kom í máli Ásthildar að þau hafi sent málið til ríkislögmanns sem hafi svarað þeim nokkrum vikum síður og sagst vera með álit frá dómsmálaráðuneyti og sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. Ásthildur óskaði þá eftir því að fá að sjá það álit en ríkislögmaður hafnaði þeirri beiðni og vísaði til upplýsingalaga. „Þá þurftum við að sækja það til úrskurðarnefndar upplýsingamála. Hún hefur haft það í fimm mánuði og hefur enn ekki úrskurðað í málinu og við ekki enn fengið skjölin í hendurnar. Þessi hliðarvinkill kostaði 650 þúsund,“ sagði Ásthildur og að kerfið væri hreinlega oft byggt þannig upp að láta fólk gefast upp. Hún segir sýslumann hafa brotið á jafnræðisreglu með því að láta þau greiða fyrndu vextina og að hún hafi sannanir fyrir því að hann hafi ekki látið fólk greiða fyrnda vexti í öðrum svipuðum málum. Það eigi ekki að vera hægt að rífast um þetta því í grunninn snúist þetta um dagsetningar. Hún sagði þau hafa fara í gegnið allt réttarkerfið með mál sitt en aldrei hafi verið úrskurðað um fyrndu vextina. Telja málið ekki fyrnt Spurð hvort þetta sé vonlaus barátta og málið fyrnt segir Ásthildur að fyrningin sé þeirra helsta vandamál. Það séu meira en fjögur ár síðan sýslumaður úrskurðaði og sagði þeim að fara fyrir dómstóla. Þau hafi gert það og það tók tvö ár og því telji þau að þessi tími, sem þau voru í baráttu við kerfið, eigi ekki að telja. Það eigi frekar að miða við dagsetninguna sem er þegar þau undirrita samning við Arion banka og bankinn fær peninginn. Það sé í desember árið 2019. Þau hafi svo bara lagst í hýði og þurft að jafna sig andlega og líkamlega á þessu. „Það var svo ekki fyrr en í upphafi þessa árs. Það var fyrstu möguleikinn sem við höfðum, fjárhagslega, andlega, og allt saman, til að leggja af stað aftur. Við veltum því alveg fyrir okkur að gera það ekki en eins og ég segi í greininni þá höfum við stundum lýst þessu sem lengsta þrjóskukasti sem við höfum tekið. Þetta er gríðarlegt réttlætismál,“ sagði Ásthildur Lóa Hún sagði svona mál hafa verið þögguð, fólk ekki hafa möguleika á að fara lengra með málin andlega, eða vegna fjárhags. „Ég hefði aldrei getað þetta ef ég væri ekki orðin þingmaður. Ég ætti ekki fræðilegan möguleika.“ Ásthildur Lóa hefur oft sem formaður Hagsmunasamtaka heimilanna gagnrýnt fjölmiðla fyrir skeytingarleysi í garð málaflokksins. Spurð um ástæður þess sagðist hún hafa velt því mikið fyrir sér en það sé mjög sérstakt að það sé brotið á svo mörgum með þessum hætti og það sé ekki fjallað um það. „Af hverju les ekki einhver þess grein og spyr sýslumanninn á höfuðborgarsvæðinu um þetta?“ spurði Ásthildur og sagðist hafa sent sýslumanni bréf þar sem hún sagði henni að henni væri frjálst að tala um mál hennar opinberlega.
Fjármál heimilisins Flokkur fólksins Hrunið Stjórnsýsla Dómsmál Bítið Mest lesið Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Innlent Fleiri fréttir Leita enn að meintum geranda í stungumáli Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Sjá meira