Koma upp neyslurými í einingahúsum Lovísa Arnardóttir skrifar 21. nóvember 2023 07:01 Sigurbjörg Birgisdóttir segir að unnið sé að umsókn um stöðuleyfi hjá Rauða krossinum. Vísir/Vilhelm Rauði krossinn leggur nú lokahönd á umsókn til Reykjavíkurborgar um afnot af lóð í Reykjavík. Á lóðinni á að koma fyrir einingahúsum þar sem hægt verður að setja upp neyslurými.
Rauði krossinn vinnur nú aftur að því að koma upp neyslurými í einingahúsum. Greint var frá því í sumar, eftir að neyslurýminu Ylju var lokað, að Terra einingar hefðu boðið Rauða krossinum einingar án endurgjalds. Reykjavíkurborg sagði í kjölfarið að þeim litist ekki á hugmyndina og vildu frekar koma starfseminni fyrir í einhverju húsnæði. Nokkur húsnæði hafa verið til skoðunar hjá borginni en það aldrei komist lengra en í grenndarkynningu vegna mótmæla. „Nú erum við komin heilan hring og það er verið að skoða ákveðna lóð í Reykjavík fyrir þessa þjónustu,“ segir Sigurbjörg Birgisdóttir deildarstjóri Rauða krossins á höfuðborgarsvæðinu. Svona líta einingahúsin út sem Terra einingar hafa boðið Rauða krossinum. Vísir/Sigurjón Hún segir Rauða krossinn tilbúinn í verkefnið. Þau séu nú að safna gögnum í umsóknina sem þarf að senda umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar um stöðuleyfi. „Ríkið á það land sem nú er til skoðunar en sótt erum stöðuleyfi til umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar um afnotin.“ Þurfa ekki að fara í grenndarkynningu Sigurbjörg segist ekki geta gefið upp hvar í Reykjavík lóðin sé en að þau séu bjartsýn að umsóknin verði tekin fyrir um leið og hún berst. „Ég held að allir séu núna einhuga um að drífa þetta í gegn,“ segir Sigurbjörg. Hún segir Terra einingar geta komið einingahúsunum upp á um átta vikum. „Það þarf stöðuleyfi og afgreiða hluti eins og skólp og rafmagn,“ segir hún og tekur fram að miðað við það svæði sem þau eru að skoða þurfi ekki að fara í grenndarkynningu. Neyslurýminu Ylju var lokað í mars á þessu ári. Rýmið var rekið í bíl í það ár sem það var rekið sem tilraunaverkefni. Mikið aðsókn var í úrræðið. Sigurbjörg segir það neyslurými sem verði rekið í einingunum töluvert betra og rýmra. „Við erum komin með teikningar sem við erum sátt við. Sérfræðingarnir okkar sem hafa starfað í skaðaminnkun hafa metið þörfina út frá þekkingu sinni og reynslu. Þær eru sáttar við þá möguleika sem einingarnar bjóða upp á. Það er verið að bæta þjónustuna að miklu leyti og aðstaðan er miklu mannúðlegri,“ segir Sigurbjörg. Heiða Björg segir það hafa verið erfitt verkefni að finna húsnæði sem hægt væri að nýta fyrir þjónustuna. Vísir/Arnar Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar, segir fullan vilja hjá borginni að vinna að þessu verkefni áfram með Rauða krossinum. Fyrst það hafi ekki gengið að finna húsnæði sem þegar sé til hafi þau sett það í hendur Rauða krossins að koma einingahúsunum upp. „Það hefur verið ótrúlega flókið að finna húsnæði. Um leið og eitthvað húsnæði hefur fundist hefur því verið mótmælt. Að einhverju leyti skilur maður það því það er verið þá að stefna fólki sem notar vímuefni í æð á staðinn, en að einhverju leyti ekki, því fólk er auðvitað að nota vímuefni í æð víða um borgina. Umhverfið verður betra og fallegra ef það fólk býr við meira öryggi og hefur einhvern stað til að leita ráðgjafar og fá heilbrigðisþjónustu. Maður því bæði skilur viðbrögðin, og ekki,“ segir Heiða Björg og heldur áfram: „Ég held við Reykvíkingar séum í einhverju þroskaferli. Þetta gekk mjög vel í bílnum og ég hef enga trú á öðru en að þetta gangi vel upp um leið og við finnum nýja staðsetningu og getum opnað.“
Fíkn Reykjavík Félagsmál Heilbrigðismál Tengdar fréttir Skilur sársaukann og áföllin að baki neyslunni Halldóra Mogensen segist skilja vel áföllin og sársaukann sem keyrir marga vímuefnanotendur áfram. Sjálf hafi hún leitað í vímuefni sem ung manneskja. Það ferðalag hafi endað á erfiðum stað en hefur orðið til þess að fíkniefnalöggjöf og afglæpavæðing hefur verið þingkonunni afar hugleikin. Svo hugleikin að nú hefur hún í fimmta sinn mælt fyrir frumvarpi um afglæpavæðingu. 23. október 2023 07:00 Líst illa á að lífsbjargandi neyslurými verði í bifreið: „Fólk er að deyja“ Reykjavíkurborg skoðar að opna færanlegt neyslurými aftur á meðan leitað er að varanlegu rými. Rauði krossinn segir hugmyndina afleita. Að þjóðfélagshópurinn sem sæki sér þjónustuna eigi skilið betri húsakost en bíl. 4. október 2023 20:03 Hundrað sinnum á bráðamóttökuna vegna sýkinga á einu ári Dæmi eru um að einn einstaklingur hafi leitað 100 hundrað sinnum á bráðamóttökuna vegna sýkinga í kjölfar neyslu vímuefna í æð. Hjúkrunarfræðingur á smitsjúkdómadeild segir fleiri leita þangað og neyta vímuefna í ótryggum aðstæðum eftir að neyslurýminu Ylju var lokað. 24. ágúst 2023 19:57 Heyrir af fíkniefnatengdu andláti í hverri viku Kona sem nýtti neyslurými Ylju reglulega segist heyra af fíkniefnatengdu andláti í hverri viku. Það sé mikil synd að ekki takist að opna nýtt úrræði. Ekkert neyslurými hefur verið rekið í um hálft ár og ráðherra segir einungis vanta húsnæði. 14. ágúst 2023 20:30 Mest lesið Verkföll hafin í sex skólum Innlent Ætlar að tjalda í Kópavogi þangað til meirihlutinn springur Innlent Áfastir tappar dragi úr lífsvilja Innlent Árásarmaðurinn hafi átt í samskiptum við lykilvitni Innlent Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Erlent Þóra Tómasdóttir strýkur Tesla-eigendum öfugt Innlent Zúistabræður telja sig ekki hafa fengið sanngjarna meðferð Innlent Uggur í fólki og Hinsegin kórinn hættur við að taka þátt í World Pride í Washington Innlent Segir menntuð fífl hættuleg fífl Innlent Heiða Björg verður borgarstjóri Innlent Fleiri fréttir Algengt að rútubílstjórar keyri á túninu Búrfellslundur verður Vaðölduver Uggur í fólki og Hinsegin kórinn hættur við að taka þátt í World Pride í Washington Ætlar að tjalda í Kópavogi þangað til meirihlutinn springur Zúistabræður telja sig ekki hafa fengið sanngjarna meðferð Verkföll hafin í sex skólum Kennaraverkföll skella á Skólameistari gengur út frá því að kennarar leggi niður störf Óvissa um verkföll eftir frestunarbeiðni Áfastir tappar dragi úr lífsvilja Árásarmaðurinn hafi átt í samskiptum við lykilvitni „Hún verður örugglega afbragðsborgarstjóri“ Heiða Björg verður borgarstjóri Ögurstund, staða Play og óreyndur rútubílstjóri Hellti kveikjarabensíni yfir mann og hótaði að kveikja í Ökklasnúnum Esjufara komið til bjargar Banaslys á Þingvallavegi Samræði við þrettán ára nauðgun eftir allt saman Nýr borgarstjóri kynntur á morgun Kennarar samþykkja innanhússtillögu Segir menntuð fífl hættuleg fífl Kókaínsmygl systkina og maka þeirra út um þúfur Fleinn rekinn í hjarta Evrópu verði Úkraína beygð í duftið Þóra Tómasdóttir strýkur Tesla-eigendum öfugt Refsing Dagbjartar þyngd verulega Sameinar sýslumenn: Róar taugar starfsmanna og segir ekkert að óttast Sama rúta olli skemmdum á bannsvæði í hádeginu Hugmyndir Þorgríms séu litaðar vanþekkingu og fordómum Segir karla í forréttindastöðu hafa stofnað Háskólann Stórskemmdi grasflötina við Höfða Sjá meira
Skilur sársaukann og áföllin að baki neyslunni Halldóra Mogensen segist skilja vel áföllin og sársaukann sem keyrir marga vímuefnanotendur áfram. Sjálf hafi hún leitað í vímuefni sem ung manneskja. Það ferðalag hafi endað á erfiðum stað en hefur orðið til þess að fíkniefnalöggjöf og afglæpavæðing hefur verið þingkonunni afar hugleikin. Svo hugleikin að nú hefur hún í fimmta sinn mælt fyrir frumvarpi um afglæpavæðingu. 23. október 2023 07:00
Líst illa á að lífsbjargandi neyslurými verði í bifreið: „Fólk er að deyja“ Reykjavíkurborg skoðar að opna færanlegt neyslurými aftur á meðan leitað er að varanlegu rými. Rauði krossinn segir hugmyndina afleita. Að þjóðfélagshópurinn sem sæki sér þjónustuna eigi skilið betri húsakost en bíl. 4. október 2023 20:03
Hundrað sinnum á bráðamóttökuna vegna sýkinga á einu ári Dæmi eru um að einn einstaklingur hafi leitað 100 hundrað sinnum á bráðamóttökuna vegna sýkinga í kjölfar neyslu vímuefna í æð. Hjúkrunarfræðingur á smitsjúkdómadeild segir fleiri leita þangað og neyta vímuefna í ótryggum aðstæðum eftir að neyslurýminu Ylju var lokað. 24. ágúst 2023 19:57
Heyrir af fíkniefnatengdu andláti í hverri viku Kona sem nýtti neyslurými Ylju reglulega segist heyra af fíkniefnatengdu andláti í hverri viku. Það sé mikil synd að ekki takist að opna nýtt úrræði. Ekkert neyslurými hefur verið rekið í um hálft ár og ráðherra segir einungis vanta húsnæði. 14. ágúst 2023 20:30