Beitti piparúða á dyraverði sem hleyptu honum ekki inn Árni Sæberg skrifar 21. október 2023 07:36 Lögreglan hafi nóg að gera í miðbænum í nótt. Vísir/Kolbeinn Tumi Lögregla aðstoðaði dyraverði skemmtistaðar í miðborginni vegna manns sem hafði spreyjað piparúða á þá, eftir að þeir hleyptu honum ekki inn laust fyrir klukkan 04 í nótt.
Þetta segir í dagbókarfærslu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir gærkvöldið og nóttina sem leið. Þar segir einnig að lögregla hafi haft afskipti af ungmennum sem voru inni á skemmtistað án þess að hafa til þess aldur og að tilkynnt hefi verið um slagsmál í miðborginni á fimmta tímanum. Málið hafi verið leyst á vettvangi. Eldur í nýbyggingu og maður í runna Þá segir að á þriðja tímanum hafi lögregla farið á vettvang í Kópavogi þar sem eldur hafði kviknað í nýbyggingu. Talsvert tjón hafi orðið af og loka hafi þurft svæðinu á meðan á slökkvistarfi stóð. Eldsupptök séu ókunn og málið í rannsókn. Loks segir að í umdæmi lögreglustöðvar fjögur, sem nær yfir Árbæ, Grafarholt, Grafarvog, Norðlingaholt, Mosfellsbæ, Kjósarhrepp og Kjalarnes, hafi verið tilkynnt um ölvaðan mann að sparka í bíla á þriðja tímanum. Lögregla hafi rætt við manninn, málið verið leyst á vettvangi og maðurinn lofað að koma sér heim. Rúmum klukkutíma síðar hafi verið tilkynnt um mann sofandi í runna og vegfarendur hafi haft áhyggjur af honum. Í ljós hafi komið að um sama mann var að ræða og honum komið heim til sín.
Lögreglan Reykjavík Næturlíf Kópavogur Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Fleiri fréttir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Sjá meira