Skoðun

Tími til að skreppa í skimun!

Svanheiður Lóa Rafnsdóttir skrifar

Í tilefni að bleikum október og árlegri vitundarvakningu um brjóstakrabbamein stendur Brjóstamiðstöð Landspítala fyrir átaksverkefninu „skrepp í skimun“ í samstarfi við Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins og Félag kvenna í atvinnulífinu. Markmið átaksins er að draga fram hversu mikilvægt og einfalt það er að mæta í brjóstaskimun og fjölga þeim sem koma í skimun.

Brjóstakrabbamein er algengasta krabbamein hjá konum og mikilvægasta forvörnin gegn því er regluleg mæting í brjóstaskimun. Rannsóknir sýna að vel skipulögð brjóstaskimun bjargar mannslífum og getur lækkað dánartíðni af völdum brjóstakrabbameins um 20–30%.

Nýgengi brjóstakrabbameins hefur aldrei verið hærra hérlendis. Að meðaltali greinast um 260 einstaklingar með brjóstakrabbamein á hverju ári og jafngildir það fimm nýgreiningum á viku. Því fyrr sem mein greinast, því betri líkur eru á góðum árangri í meðferð og lækningu krabbameins. Staðan er hins vegar sú að meirihluti þeirra sem greinast eru með einkenni og þar með komin af forstigi sjúkdómsins, sem dregur úr bæði lífslíkum og lífsgæðum. Enn fremur svarar einungis um helmingur kvenna boði í brjóstaskimun.

Það er von okkar að „skrepp í skimun“ átakið hvetji konur til þess að mæta í brjóstaskimun. Boðskapnum er miðlað í gegnum auglýsingaherferð og á Brjóstamiðstöð hanga nú veggspjöld sem kynna herferðina og hvetja konur sem koma í skimun til að leggja okkur lið. Í gegnum Instagram síðu herferðarinnar er hægt að hvetja vini og vandamenn til að bregðast jákvætt við boði í brjóstaskimun. Á síðunni má finna fjölda af deilimyndum og fróðleik. Við hvetjum því sem flest til að skella í eina sjálfu og dreifa boðskapnum!

Brjóstaskimun er framkvæmd á Brjóstamiðstöð Landspítala, á sjúkrahúsinu á Akureyri og einnig fer Brjóstamiðstöð í skipulagðar ferðir um landsbyggðina með brjóstaskimunartæki eftir auglýstum dagsetningum.

Samhliða reynum við á Brjóstamiðstöð sífellt að bæta þjónustuna. Skipulagning brjóstaskimunar milli stofnana hefur verið til endurskoðunar og nú er verið að færa allar tímabókanir yfir til Brjóstamiðstöðvar. Með þessari tilfærslu verkefna mun Brjóstamiðstöð sjá bæði um framkvæmd brjóstaskimunar ásamt tímabókun í brjóstaskimun. Þessi breyting á verklagi mun auka enn frekar aðgengi í brjóstaskimun sem vonandi skilar sér í betra mætingarhlutfalli.

Önnur nýjung á Brjóstamiðstöð og sem liður í því að færa aðgengi að þjónustu að þörfum nútímans er í gengum Landspítala smáforritið sem má nú nota til að senda skilaboð með ósk um aðstoð eða samband við brjóstateymið. Í tilefni bleiks októbers höfum við einnig framleitt nýja fræðslumynd um brjóstmein með áherslu á að upplýsa um brjóstaskimun, greiningu og meðferðir brjóstmeina ásamt því að skjólstæðingar gáfu innsýn inn í sýna reynslu og baráttu við brjóstakrabbamein.

Brjóstamiðstöð hvetur öll sem fá boð í brjóstaskimun að svara kallinu og mæta í skimun. Mikilvægasta forvörnin gegn brjóstakrabbameini er regluleg mæting í brjóstaskimun. Skreppum í skimun, dreifum boðskapnum og björgum mannslífum! Átt þú tíma?

Höfundur er yfirlæknir brjóstaskurðlækningadeild Landspítala og Brjóstamiðstöðvar Landspítala. 19. október 2023.




Skoðun

Skoðun

21 blár

Jón Pétur Zimsen skrifar

Sjá meira


×