„Maður er aldrei búinn að syrgja. Setningin „Tíminn læknar öll sár“ er eitthvert mesta bull sem ég hef heyrt. Því tíminn breytir eingöngu tíðni grátkasta og sorgarviðbragða, en læknar ekki neitt,“ segir Edda Björgvinsdóttir leikkona.
Edda, ásamt fleirum, vinnur nú að því að koma á fót listasmiðju fyrir börn í sorg, sem rekin verður af Sorgarmiðstöðinni. Í tilefni af því verða á þriðjudag haldnir góðgerðartónleikar í Sky Lagoon og mun allur ágóði af tónleikunum renna beint í þetta nýja verkefni.
Í listasmiðjunni verður boðið upp á styðjandi samverustundir þar sem fagaðilar, listamenn og listmeðferðarfræðingar vinna með börnum sem orðið hafa fyrir missi.
Allur ágóði rennur í listasmiðjuna
Viðburðurinn er skipulagður af góðgerðasamtökunum 1881. Söngkonurnar Salka Sól og GDRN munu báðar koma fram á tónleikunum auk þess sem plötusnúðurinn Dóra Júlía mun spila tónlist.

Edda er verndari verkefnisins og mun hún, ásamt Hrannari Má Ásgeirs Sigrúnarsyni, formanni Sorgarmiðstöðvarinnar, opna viðburðinn á þriðjudaginn.
Edda hefur sjálf upplifað sáran og óvæntan missi þegar hún missti eiginmann sinn, leikarann Gísla Rúnar Jónsson, árið 2020.
Hún segist telja það lykilatriði fyrir marga að nýta harminn sem þau upplifa í að skapa eitthvað sem geti hjálpað öðrum.
„Sumir stofna minningarsjóði, aðrir skrifa sig í gegn um tilfinningaflóðið og enn aðrir nota tónlist eða skapa allskonar listaverk eða starfa í góðgerðarverkefnum. Við stofnum listasmiðju fyrir börn sem syrgja,“ segir Edda.
Fleiri úrræði fyrir fullorðna en börn
Hún segir ótrúlega mikilvægt að góð þjónusta sé í boði fyrir syrgjendur. Sjálf hafi hún notið þjónustu Sorgarmiðstöðvarinnar sem hafi reynst henni ómetanlegt á erfiðum tíma.
„Það eru miklu fleiri úrræði fyrir fullorðið fólk, þó svo að heilbrigðiskerfið sé afar laskað þegar kemur að því að grípa fólk sem upplifir alvarleg áföll og missi,“ segir Edda og heldur áfram:
„Ég á sjálf afkomendur á öllum aldri sem hafa upplifað allskonar sorgarviðbrögð og litlu börnin í kring um mig - barnabörnin - voru ljóslifandi dæmi um hvernig sorg bara getur birst. Það var oft svo átakanlegt að fylgjast með þeim í miklum sársauka og söknuði, en birtingarmyndin var stundum eins og þau væru að ganga í gegn um veikindi eða hreinlega væru algjörlega horfin í eigin heim.“

Hún segir að þannig hafi hún upplifað að sorgarferli barna birtist með allt öðrum hætti en fullorðinna.
„Stundum heldur maður hreinlega að þau séu búin að jafna sig ótrúlega fljótt eftir alvarlegan missi, en tilfellið er að sorgarferlið þeirra birtist á annan hátt en sorgarferli okkar sem fullorðin erum. Þau geta til dæmis tekið sér „hvíld“ frá sorginni og gjörsamlega gleymt sér í leik. Svo hellist sorgin yfir þau aftur. Börn tjá sorg sína líka oft á þann hátt að fullorðnir ná ekki alltaf því að börnin séu að sýna sorgarviðbrögð. Þau tjá sig ekkert endilega um söknuð og sársauka heldur getur sorgin birst í líkamlegum einkennum eins og höfuðverkjum, svefntruflunum, magaverkjum, mikilli þreytu, andþyngslum og allskonar líkamlegum einkennum. Þau glíma líka mörg hver við kvíða og ótta og geta verið að kljást við samviskubit og depurð. Aðstandendur eru oft ráðþrota gagnvart sorg barnanna,“ segir Edda.
Hún segir listina geta hjálpað.
„Að tjá tilfinningar sínar í gegn um hin ýmsu listform reynist börnum oft miklu auðveldara en að tala um tilfinningar sínar. Líðan þeirra birtist oft á svo skýran hátt í því sem þau eru að skapa. Allskonar rannsóknir um allan heim sýna okkur að það er hægt að hjálpa börnum gríðarlega mikið með því að vinna skapandi verkefni með þeim í sorgarferli,“ segir Edda.
Hún segir áríðandi að grípa inn í og veita börnum viðeigandi hjálp þegar þau upplifa missi.
„Tilfellið er að ef börn ná ekki að tjá sorg sína og fá viðeigandi hjálp þá geta sálræn áföll birst löngu eftir að þau fullorðnast og valdið óskaplegum sársauka og haft alvarlegar heilsufarslegar afleiðingar,“ segir Edda.
Mörg börn án stuðnings
Hún segir allt of mörg börn fara á mis við sorgarstuðning því aðstandendur séu sjálfir svo brotnir.
„Þess vegna erum við að safna fyrir þessu verkefni. Aðstandendur eru oft svo brotnir sjálfir að þeir eiga fullt í fangi með að halda sér og fjölskyldunni gangandi. Það þarf mjög sértæka fagaðila til að hjálpa syrgjandi börnum og Listasmiðja fyrir börn í sorg gæti bjargað mörgum mannssálum.“
Spurð hvernig hún upplifi sorg og missi segir Edda: „ Ef ég gæti með nokkru móti lýst því í fáum setningum, minni sorg og afleiðingum missis, þá finndist mér ég vera komin töluvert langt í að ná minni lífs- og starfsorku, en ég á engin orð enn þá.“

Katrín Sigríður Þorsteinsdóttir Bachmann, framkvæmdastýra 1881, segir verkefnið alfarið hugarfóstur Eddu.
„Því miður er enginn ónæmur fyrir sorginni. Við upplifum öll missi einhverntíman á lífsleiðinni. Verkefnið er hugarfóstur Eddu, en hún horfði upp á fjölskyldumeðlimi á öllum aldri tækla sorgina á mismunandi hátt og með stuðningi frá Sorgarmiðstöðinni og námi í Sálgæslu fannst henni þetta úrræði vanta á íslandi. Það sýnir sig að ef börn eru ekki gripin þegar þau upplifa áföll í æsku líkt og að missa náin ástvin geta þau lent á vegg síðar meir og þetta er í raun forvörn fyrir það.“
Hún lofar einstakri stemningu í lóninu á þriðjudaginn.
„Við erum svo heppin að hafa liðsauka frá DJ Dóru Júlíu sem er stemningskona með meiru auk GDRN og Sölku Sól sem munu með sínum undirfögru röddum skapa hugljúfa og ógleymanlega stund í þágu góðs málefnis. Sorgarmiðstöðin vinnur einstaklega faglegt starf og var aldrei spurning að gera þetta með einhverjum öðrum aðilum.“