Allt alltaf alls staðar í allra besta lagi Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 3. desember 2025 10:01 Rokkóperan Birtíngur verður frumsýnd á nýju ári á Akureyri. Aðsend Það er sannkallaður kraftur í Leikfélagi Akureyrar um þessar mundir og enga lognmollu að finna í líflegu leikári félagsins. Félagið fjöruga frumsýnir hér tónlistarmyndband við eldhressa rokkóperu sem verður sýnd í Samkomuhúsinu á nýju ári.
Hér má sjá myndbandið: Klippa: Birtingur - Allt er alltaf alls staðar Í fréttatilkynningu segir: „Nú eru tvær jólasýningar í fullum gangi hjá leikfélaginu. Jóla Lóla, fjörug, fyndin og hjartnæm barna- og fjölskyldusýning sem hefur notið mikilla vinsælda, og Jólaglögg, nýtt sketsaleikrit sem kitla mun hláturtaugarnar þar sem hefðir jólanna fá heldur betur á baukinn. Á sama tíma fer fram umfangsmikið skapandi ferli á bakvið tjöldin. Verið er að semja 12 ný lög fyrir rokkóperettuna Birtíngur sem er uppsetning byggð á klassísku verki Voltaires, nú í nýrri og kraftmikilli leikgerð Bergs Þórs Ingólfssonar. Þar er heldur betur verið að blása fersku lífi í söguna með nýjum lögum eftir meistara söngleikjanna, Þorvald Bjarna Þorvaldsson, sem samdi tónlistina fyrir til að mynda Ávaxtakörfuna, Benedikt Búálf, Hafið Bláa og Gosa.“ Þorvaldur Bjarni endurgerði lögin fyrir þessa sögulegu sýningu.Aðsend Leikstjórn er í höndum Bergs Þórs Ingólfssonar og verður hópur af úrvalsleikurum í aðalhlutverkum, þar á meðal Níels (Nilli) Thibaud Girerd, Hjalti Rúnar Jónsson, Hólmfríður Hafliðadóttir, Sólveig Guðmundsdóttir og Urður Bergsdóttir. Fyrsta lag sýningarinnar, Allt er alltaf alls staðar í allra besta lagi, er nú tilbúið og í kjölfarið var tekin ákvörðun um að gera tónlistarmyndband við lagið. Leikstjórn var í höndum Kristjáns Kristjánssonar og var einn af tökustöðum inn í miðjum Vaðlaheiðargöngum. Lagið er sungið af Urði Bergsdóttur og leikhópnum. Hér má finna nánari upplýsingar um sýninguna.
Leikhús Tónlist Akureyri Sýningar á Íslandi Leikfélag Akureyrar Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið John Frieda er látinn Tíska og hönnun Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak Lífið „Líklega eina löglega rave-ið á Íslandi“ Tónlist Setning Iceland Airwaves: Forsetinn og ljúfir tónar á Grund Tónlist Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið „Götustelpan“ glöð Lífið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Lífið samstarf „Þetta eru allt krakkar í íþróttum“ Lífið samstarf Fleiri fréttir „Líklega eina löglega rave-ið á Íslandi“ Setning Iceland Airwaves: Forsetinn og ljúfir tónar á Grund Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira