Segir Sinatra hafa verið „risavaxinn“ neðan beltis Magnús Jochum Pálsson skrifar 2. desember 2025 09:59 Anka staðfesti loksins langlífan orðróm um Sinatra. Dægurlagasöngvarinn Paul Anka tjáði sig óvænt um typpastærð Franks Sinatra í nýlegu viðtali. Sagðist Anka stundum hafa átt erfitt með að halda augnsambandi í sánunni með Rottugenginu en stærð Sinatra hafi þó ekki átt neitt í grínistann Milton Berle.
Hinn 84 ára Anka ræddi við gula dagblaðið Page Six í tilefni af frumsýningu heimildarmyndarinnar Paul Anka: My Way í gær, 1. desember og nýrri plötu sem kemur á næsta ári. Anka ræddi þar ýmislegt sem tengdist ferlinum og staðfesti langvarandi orðróm um að Fran Sinatra hafi verið vel vaxinn fyrir neðan belti. „Já, hann var risavaxinn,“ sagði Anka og bætti við: „Ég veit ekki hvað það gerir fyrir ykkur.“ Frank Sinatra var hluti af hinu fræga Rottugengi. Leikkonan Ava Gardner, fyrrverandi eiginkona Sinatra, hefur áður ýjað að þessu þegar hún sagði eitt sinn að Sinatra hefði verið með 19 punda (átta kílóa) getnaðarlim. Anka hékk oft með Sinatra og félögum hans í Rottugenginu (e. The Rat Pack) í Las Vegas þar sem þeir tróðu upp og í viðtalinu lýsir hann sánuferðunum sem þeir fóru í saman. „Ég átti erfitt með að halda augnsambandi,“ sagði Anka glettinn en bætti við að Sinatra hefði þó ekki komist í hálfkvisti við grínistann Milton Berle sem hefur greinilega verið hvalkynja neðanbeltis. Anka talaði þó ekki bara um limastærðir heldur lýsti því einnig hvernig kom til að hann skrifaði textann fyrir „My Way,“ stærsta slagara Sinatra. Anka hafði verið í fríi í Frakklandi þegar hann heyrði lagið „Comme d’habitude“ og keypti strax réttinn að því. Þegar heim var komið settist hann niður við ritvélina, bombaði út textanum og sendi á Sinatra. Þá var ekki aftur snúið.
Bandaríkin Hollywood Tónlist Mest lesið Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Lífið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Lífið samstarf Fleiri fréttir Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Sjá meira