Gunnleifur og Kjartan fylla skarð Ásmundar Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 30. ágúst 2023 20:45 Gunnleifur og Kjartan koma inn í teymið hjá Blikum. Vísir/Breiðablik Breiðablik hefur ráðið þá Gunnleif Gunnleifsson og Kjartan Stefánsson inn í meistaraflokks kvenna teymið. Það verða því fjórir þjálfarar sem munu stýra Blikum út tímabilið í Bestu deild kvenna þar sem Ana Cate og Ólafur Pétursson voru fyrir í teyminu.
Breiðablik hefur verið í þjálfaraleit síðan Ásmundur Arnarsson var látinn fara nýverið. Ekki var árangur sumarsins talinn nægilega góður en liðið er sem stendur í 2. sæti, átta stigum á eftir Íslandsmeisturum Vals og þá tapaði Breiðablik fyrir Víking í úrslitum Mjólkurbikarsins. Í kvöld staðfesti félagið komu Gunnleifs og Kjartans en Kristófer Sigurgeirsson óskaði eftir því að hætta sem aðstoðarþjálfari eftir að Ásmundur var látinn fara. „Gunnleif þarf vart að kynna, hann spilaði með Breiðabliki, 2013-2020 og var fyrirliði liðsins frá árin 2016. Undanfarin ár hefur hann sinnt þjálfun hjá Breiðabliki á öllum stigum allt frá 8. flokki til 2. flokks,“ segir í tilkynningu Breiðabliks um ráðningu Gunnleifs. „Kjartan Stefánsson hefur víðtæka reynslu af þjálfun en hann hefur á undanförnum árum þjálfað bæði Fylki og Hauka í meistaraflokki kvenna. Kjartan mun að loknu tímabilinu hjá Breiðabliki taka við þjálfun Augnabliks kvenna en samkomulag um þá ráðningu lá þegar fyrir,“ segir um ráðningu Kjartans. Breiðablik á fimm leiki eftir af tímabilinu. Liðið mætir Þrótti Reykjavík á heimavelli, Þór/KA á Akureyri, Stjörnunni og FH á heimavelli áður en liðið lýkur leik á Hlíðarenda í lokaumferð Íslandsmótsins.
Fótbolti Íslenski boltinn Besta deild kvenna Breiðablik Mest lesið Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Atli og Eiður í KR Fótbolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Fótbolti Chicago Bears leita nýrra leiða til að tapa leikjum Sport Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Fótbolti Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Fótbolti Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Enski boltinn Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Enski boltinn Fleiri fréttir Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn „Velkomin í dal draumanna“ Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Sjá meira