Sparkaði í hreðjar manns í miðborginni Magnús Jochum Pálsson skrifar 19. júní 2023 17:41 Ekki kemur fram í dagbók lögreglu hvar í miðborginni líkamsárás, þar sem sparkað var í hreðjar, átti sér stað. Mynd tengist frétt því ekki beint. Vísir/Vilhelm Óskað var eftir aðstoð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í dag vegna líkamsárásar þar sem maður hafði sparkað í hreðjar annars manns.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar fyrir eftirmiðdaginn í dag en ekki segir hvort viðkomandi hafi verið handtekinn eða hvort hann hafi sloppið. Ökumenn af ýmsu tagi Þar segir einnig að ökumaður hafi verið handtekinn í Laugardalnum grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna og vegna vörslu fíkniefna. Hann var látinn laus að lokinni blóðsýna- og skýrslutöku. Í sama hverfi var ökumaður sektaður fyrir að aka gegn rauðu umferðarljósi. Í Múlunum, hverfi 108, hafði lögreglan afskipti af þriðja ökumanninum, sá var sektaður fyrir að aka um á nagladekkjum en reyndist einnig vera próflaus. Þá var aðstoðar lögreglu óskar vegna einstaklings sem hafði dottið af rafskútu og rotast við. Viðkomandi var fluttur með sjúkrabíl á Landspítalann til aðhlynningar. Vinnuslys og umferðarslys Aðstoðar lögreglu var einnig óskað í Breiðholtinu vegna vinnuslyss þar sem starfsmaður hafði dottið og hlotið áverka á fæti. Í Árbænum var hringt á lögreglu vegna líkamsárásar en ekki kemur fram hvernig það mál endaði. Ekki var mikið um að vera í Hafnarfirðinum fyrir utan eitt umferðarslys þar sem ekið var á starfsmann bensínstöðvar sem hlaut minniháttar áverka. Í Kórahverfinu í Kópavoginum var ökumaður grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna en hann hafði orðið valdur að umferðarslysi. Hann var látinn laus að lokinni blóðsýnatöku.
Lögreglumál Reykjavík Kópavogur Hafnarfjörður Mest lesið Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Innlent Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Innlent „Það átti að taka mig í karphúsið“ Innlent „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Innlent Selenskí undir miklum þrýstingi Innlent Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Innlent „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Innlent Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Fleiri fréttir „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Sjá meira