Sú fyrsta sem fær tíu í einkunn fyrir meistaravörn Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 23. maí 2023 15:17 Frá vinstri: Víðir Smári Petersen, Guðrún Sólveig Sigríðardóttir Pöpperl og Þorgeir Örlygsson. Háskóli Íslands Guðrún Sólveig Sigríðardóttir Pöpperl, laganemi við Háskóla Íslands, hlaut í gær 10 í einkunn fyrir vörn á meistararitgerð sinni í greininni. Þetta er í fyrsta sinn sem hæsta einkunn er gefin fyrir meistararitgerð við deildina.
Guðrún Sólveig er öllu vön þegar kemur að háum einkunnum og jafnvel sögulegum. Fyrir tveimur árum brautskráðist hún með BA próf frá deildinni með hæstu einkunn sem gefin hefur verið í lagadeild Háskóla Íslands, 9,33. Sjálf segist Guðrún ekki hafa búist við slíkum árangri. „Maður býst alltaf við því að ganga verr en gengur síðan,“ segir hún í samtali við Vísi. Prófdómari var Þorgeir Örlygsson, fyrrverandi forseti hæstaréttar. Vernd eignarréttar skoðuð Ritgerð Guðrúnar ber titilinn Sambúð 72. gr. stjórnarskrárinnar og 1. gr. 1. viðauka við mannréttindasáttmála Evrópu: Standa rök til breytinga á nálgun íslenskra dómstóla? og fjallar um samspil 72. greinar stjórnarskrárinnar og 1. greinar 1. viðauka við mannréttindasáttmála Evrópu. Í ritgerðinni er vernd eignarréttar samkvæmt íslenskum rétti borin saman við vernd eignarréttar samkvæmt mannréttindasáttmála Evrópu. Hún kannar hvort rök standi til þess að breyta aðferð íslenskra dómstóla við mat á stjórnskipulegu gildi eignarskerðinga með hliðsjón af nýlegri þróun á vettvangi Mannréttindadómstólsins. Áhugasamir geta lesið hana á Skemmunni. Lokamarkmiðið að verða dómari Samhliða laganáminu hefur Guðrún unnið á LEX lögmannastofu síðastliðin tvö ár. „Mér líður mjög vel þar þannig að ég ætla að halda áfram að vinna þar, örugglega í málum á sviði eignarréttar.“ Guðrún heldur því opnu að þreyta lögmannsréttindin næsta vor. Jafnvel fari hún til Bandaríkjanna í LL.M nám eftir að hafa aflað sér smá reynslu heima á Íslandi. Aðspurð hvort hún eigi sér eitthvað draumastarf í lagaheiminum segist hún eiga það lokamarkmið að verða dómari. En það verði þó ekki strax. Keppir í málflutningi á dönsku Að auki mun Guðrún ásamt fjórum öðrum laganemum Háskóla Íslands keppa í norrænu málflutningskeppninni í næsta mánuði. Þar flytja þau mál á dönsku í kappi við nema frá hinum Norðurlöndunum. „Við erum að keppa á dönsku sem er mjög fyndið því maður kann eiginlega bara einhverja menntaskóladönsku,“ segir Guðrún sem þó talar sex tungumál. Góður leiðbeinandi lykilatriði Guðrún tekur það sérstaklega fram að hún á leiðbeinanda sínum Víði Smára Petersen, dósent við lagadeild Háskóla Íslands mikið að þakka. „Hann vakti áhuga minn algjörlega á þessu efni og í rauninni bara eignarréttinum sem réttarsviðs. Það væri erfitt að gera þetta með einhverjum öðrum leiðbeinanda.“ Hún brýnir mikilvægi góðs og áhugasams leiðbeinanda.
Háskólar Skóla - og menntamál Tímamót Lögmennska Tengdar fréttir Útskrifaðist með hæstu meðaleinkunn sem gefin hefur verið í lögfræðinni Guðrún Sólveig Pöpperl gerði sér lítið fyrir og útskrifaðist með hæstu meðaleinkunn á BA-prófi í lögfræði sögu Háskóla Íslands. 21. júní 2021 11:54 Kláraði háskólagráðuna í skiptinámi frá Svíþjóð í stofunni heima Ísak Valsson útskrifaðist með hreina tíu í meðaleinkunn í hagnýtri stærðfræði frá Háskóla Íslands síðastliðinn laugardag. Ísak hefur fengið inngöngu í háskólann í Oxford á Bretlandi í haust og segist hann nokkuð kvíðinn fyrir því, enda kórónuveirufaraldurinn enn í mikilli sókn þar í landi. 3. júlí 2020 22:00 Dúxinn orðið fyrir ómeðvituðum fordómum Ivana Anna Nikolic útskrifaðist með hæstu meðaleinkunn á meistaraprófi í sögu Lagadeildar Háskóla Íslands þegar hún útskrifaðist með meistaragráðu, Mag. Jur., á laugardaginn síðastliðinn. 2. júlí 2020 10:00 Mest lesið Svona verður röð laganna á laugardaginn Lífið Einhleypir þokkasveinar Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Þessi tíu lög komust í úrslit Lífið Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Lífið Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Lífið Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið Pub Quiz hvar sem er, hvenær sem er! Lífið samstarf Fleiri fréttir Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir? Herra Hnetusmjör í aðalhlutverki hjá Laufeyju Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Einhleypir þokkasveinar Svona verður röð laganna á laugardaginn Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Þessi tíu lög komust í úrslit VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Sjá meira
Útskrifaðist með hæstu meðaleinkunn sem gefin hefur verið í lögfræðinni Guðrún Sólveig Pöpperl gerði sér lítið fyrir og útskrifaðist með hæstu meðaleinkunn á BA-prófi í lögfræði sögu Háskóla Íslands. 21. júní 2021 11:54
Kláraði háskólagráðuna í skiptinámi frá Svíþjóð í stofunni heima Ísak Valsson útskrifaðist með hreina tíu í meðaleinkunn í hagnýtri stærðfræði frá Háskóla Íslands síðastliðinn laugardag. Ísak hefur fengið inngöngu í háskólann í Oxford á Bretlandi í haust og segist hann nokkuð kvíðinn fyrir því, enda kórónuveirufaraldurinn enn í mikilli sókn þar í landi. 3. júlí 2020 22:00
Dúxinn orðið fyrir ómeðvituðum fordómum Ivana Anna Nikolic útskrifaðist með hæstu meðaleinkunn á meistaraprófi í sögu Lagadeildar Háskóla Íslands þegar hún útskrifaðist með meistaragráðu, Mag. Jur., á laugardaginn síðastliðinn. 2. júlí 2020 10:00