Óskar í Óskataki sér fram á að vinna fyrir 5,4 milljarða króna Kristján Már Unnarsson skrifar 9. maí 2023 20:10 Óskar Ólafsson er eigandi og framkvæmdastjóri Óskataks ehf., sem átti lægsta boð í gerð Arnarnesvegar. Einar Árnason Lægsta boð í gerð Arnarnesvegar um Vatnsendahæð í efri byggðum Kópavogs reyndist 718 milljónum króna undir kostnaðaráætlun. Boðið kom frá verktökunum Óskataki og Háfelli og er upp á 5,4 milljarða króna.
Í fréttum Stöðvar 2 voru birt myndskeið sem Verkfræðistofan Verkís gerði fyrir Vegagerðina. Þau sýna hvernig þessi austasti kafli Arnarnesvegar milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar mun líta út að verki loknu. Þetta er stærsta útboðsverk Vegagerðarinar á árinu til þessa. Svona verða gatnamót Breiðholtsbrautar og Arnarnesvegar. Vegagerðin/Verkís Þegar tilboð voru opnuð í dag reyndist verktakakostnaður vera áætlaður 6.150 milljónir króna. Sameiginlegt boð Óskataks og Háfells, upp á 5.433 milljónir króna, reyndist það lægsta, 88,3 prósent af kostnaðaráætlun. Tilboð Jarðvals, upp á 5.685 milljónir króna, var 92,4 prósent af áætluðum kostnaði. Hin þrjú tilboðin, frá risunum í verktakageiranum, voru öll yfir kostnaðaráætlun. Fimm tilboð bárust í verkið.Grafík/Sara Rut Fannarsdóttir Lægstbjóðandann, Óskar Ólafsson, framkvæmdastjóra Óskataks ehf., hittum við í jarðvinnu á Dalvegi í Kópavogi síðdegis, og við spyrjum hvort þetta yrði langstærsta verkið þeirra. „Já, þetta er svona í stærri kantinum. En við erum margir sem komum að þessu þannig að þetta verður bara fínt,“ svarar Óskar. Arnarnesvegur um Vatnsendahæð séður frá Rjúpnavegi.Vegagerðin/Verkís Vegagerðin miðar við að framkvæmdir hefjist í sumar, sem hentar Óskari vel, fái hann verkið. „Það leggst bara mjög vel í okkur. Við erum að skila af okkur núna í júlí flestöllum verkunum. Þannig að við getum farið með allan flotann í þetta. Við erum með 32 tæki sem þurfa að komast í vinnu,“ segir Óskar. Vegarkaflinn er nærri tveggja kílómetra langur en honum fylgja tvö hringtorg, brúarmannvirki og göngu- og hjólastígar með tvennum undirgöngum og tveimur brúm fyrir gangandi og hjólandi. Stærsti hluti verksins er akstursbrú yfir Breiðholtsbraut, tengd með slaufu en ljósastýrðum gatnamótum. Ný göngu- og hjólabrú verður reist yfir ána Dimmu í Víðidal.Vegagerðin/Verkís Nýir göngu- og hjólastígar verða tengdir stígakerfi Elliðaárdals og ný göngu- og hjólabrú reist yfir Elliðaár eða Dimmu eins og áin nefnist á þessum kafla. Samtök sem nefnast Vinir Vatnsendahvarfs börðust gegn framkvæmdinni en án árangurs. Það eru þó eflaust margir sem koma til með að fagna henni, ekki síst íbúar Vatnsendahverfis í Kópavogi sem sjá fram á að umferð í gegnum hverfið muni minnka þegar vegurinn verður tilbúinn eftir þrjú ár en verklok eru tímasett 1. ágúst 2026. Hér sést veglína Arnarnesvegar milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar. Vegagerðin segir markmiðið með framkvæmdinni að auka umferðaröryggi vegfarenda og stytta ferðatíma, auk þess að létta verulega á umferð um Vatnsendaveg. Í Kópavogi, austan Reykjanesbrautar, búa hátt í 15.000 manns. Þá muni vegkaflinn bæta viðbragðstíma fyrir neyðaraðila í efri byggðum Kópavogs og Reykjavíkur til muna. Hér má sjá frétt Stöðvar 2: Hér má sjá myndband Vegagerðarinnar:
Vegagerð Samgöngur Kópavogur Reykjavík Hjólreiðar Umferðaröryggi Tengdar fréttir Spara milljarð á lægsta boði í breikkun Reykjanesbrautar Íslenskir aðalverktakar áttu lægsta boð í breikkun Reykjanesbrautar milli Hafnarfjarðar og Hvassahrauns, upp á nærri fjóra milljarða króna. Tilboðið reyndist meira en einum milljarði króna undir kostnaðaráætlun. 5. apríl 2023 20:50 Býður út Arnarnesveg um Vatnsendahæð Vegagerðin hefur boðið út gerð Arnarnesvegar um Vatnsendahæð ásamt tengingu við Breiðholtsbraut. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist í sumar en verkinu skal að fullu lokið 1. ágúst 2026. Tilboð verða opnuð 18. apríl. 16. mars 2023 02:24 Fallið frá hugmyndum um mislæg gatnamót Fallið hefur verið frá hugmyndum um að ráðast í framkvæmd mislægra gatnamóta á mótum Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar. Þess í stað felur ný útfærsla í sér brú og ljósastýrð vegamót sem eigi að hafa minna rask í för með sér. 14. október 2020 14:21 Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira
Spara milljarð á lægsta boði í breikkun Reykjanesbrautar Íslenskir aðalverktakar áttu lægsta boð í breikkun Reykjanesbrautar milli Hafnarfjarðar og Hvassahrauns, upp á nærri fjóra milljarða króna. Tilboðið reyndist meira en einum milljarði króna undir kostnaðaráætlun. 5. apríl 2023 20:50
Býður út Arnarnesveg um Vatnsendahæð Vegagerðin hefur boðið út gerð Arnarnesvegar um Vatnsendahæð ásamt tengingu við Breiðholtsbraut. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist í sumar en verkinu skal að fullu lokið 1. ágúst 2026. Tilboð verða opnuð 18. apríl. 16. mars 2023 02:24
Fallið frá hugmyndum um mislæg gatnamót Fallið hefur verið frá hugmyndum um að ráðast í framkvæmd mislægra gatnamóta á mótum Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar. Þess í stað felur ný útfærsla í sér brú og ljósastýrð vegamót sem eigi að hafa minna rask í för með sér. 14. október 2020 14:21