Deildu um leigu á gistiheimili vegna brúðkaups í Svarfaðardal Atli Ísleifsson skrifar 13. apríl 2023 10:01 Húsabakki í Svarfaðardal. Wikipedia Commons/Ahjartar Héraðsdómur Reykjaness hefur leitt til lykta deilu rekstrarfélags gistiheimilisins Húsabakka í Svarfaðardal á Tröllaskaga og manns um leigu á herbergjum í tengslum við brúðkaup sem haldið var í ágúst síðastliðinn. Bæði var deilt var um nýtingu á hótelherbergjum, afslætti og að ekki hafi allir gestir fengið þá gistingu sem lofað var.
Rekstrarfélagið ákvað að leita til dómstóla þar sem það vildi meina að skuldbindandi samningur hafi verið gerður um að gestir mannsins myndi gista í öllum gistirýmum gistiheimilis bæði föstudag og laugardag umrædda helgi gegn greiðslu ákveðinnar fjárhæðar. Maðurinn hafi hins vegar einungis greitt hluta hennar, þó að hann teldi sig hafa greitt fyrir leiguna að fullu þar sem hann hafi gert rekstraraðilum ljóst að ekki yrði þörf á að nýta öll gistiherbergin og því ætti að greiða lægri upphæð. Hann vildi sömuleiðis meina að hann ætti rétt á afslætti eða skaðabótum vegna annmarka á þjónustu á gistiheimilinu. Upphaflegt verðtilboð, fyrir leigu á öllu gistiheimilinu, nam 718 þúsund krónum. Fram kemur í dómi að rekstraraðila hafi mátt vera ljóst að tilboðinu hafi verið hafnað af manninum þar sem hann hafi tilkynnt rekstraraðilum þegar nær dró að ekki væri þörf á að nýta öll herbergin. Úr Svarfaðardal.Wikipedia Commons/Árni Hjartarson Dómari taldi hins vegar rétt að miða við upphaflegt verðtilboð, að frádregnum um 56 þúsund krónum sem rekstrarfélagið hafi fengið vegna útleigu herbergja til annarra en brúðkaupsgesta. Þurfti að gista á Dalvík vegna plássleysis Varðandi kröfu mannsins um að hann ætti rétt á bótum eða afslætti vegna vanefnda kemur fram að tveir brúðkaupsgesta hafi ekki fengið þau herbergi sem þeim hafi verið ætlað. Í öðru tilvikinu hafi starfsmaður gistiheimilisins fyrirvaralaust látið færa farangur brúðkaupsgesta sem þau höfðu komið sér fyrir í og yfir í minna herbergi til að rýma fyrir einstaklingum utan gestahóps mannsins. Þannig hafi einn í fjölskyldunni þurft að gista á dýnu á gólfinu. Þá hafi annar brúðkaupsgesta misst herbergi sitt vegna mistaka í bókunum starfsmanna gistiheimilisins og neyðst til að gista á Dalvík vegna plássleysis á Húsabakka. 120 þúsund króna afsláttur en 250 þúsund í málskostnað Dómari féllst á að aðstæður á gistiheimilinu hafi ekki verið forsvaranlegar eða í samræmi við það sem maðurinn mátti vænta er hann gekk til samninga. Dómari taldi því manninn eiga rétt á 120 þúsund króna afslætti. Niðurstaða dómara var því sú að maðurinn ætti að greiða 541.946 krónur, að frádreginni innborgun sem gerð var í lok september síðastliðinn, upp á 438.639 krónur. Manninum var hins vegar gert að greiða 250 þúsund krónur í málskostnað.
Dalvíkurbyggð Brúðkaup Neytendur Ferðamennska á Íslandi Mest lesið Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent „Lán á bara að vera lán“ Viðskipti innlent Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Viðskipti innlent Sveru dósirnar snúa aftur Neytendur Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Viðskipti innlent Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Viðskipti innlent ChatGPT virkar á ný Viðskipti erlent Komin með ný nöfn Viðskipti innlent Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Viðskipti erlent Fleiri fréttir Sveru dósirnar snúa aftur Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Bensínlítrinn hefur hækkað á ný „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Vara við skordýrum í chia-fræjum Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Ástandið minni á 2007 Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Kalla inn pylsur vegna prentvillu Breytingar á fyrsta farrými Innkalla te sem innihélt ál Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Sjá meira