Morten Beck telur sig eiga inni fjórtán milljónir hjá FH Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 10. mars 2023 17:00 Morten Beck [til vinstri] í leik með FH. Vísir/Bára Dröfn Danski framherjinn Morten Beck hefur ákveðið að fara í mál við knattspyrnudeild FH þar sem hann telur sig eiga inni 14 milljónir íslenskra króna hjá félaginu.
Frá þessu var greint í hlaðvarpsþættinum Dr. Football fyrr í dag. Þáttastjórnandi, Hjörvar Hafliðason, sagði að lögfræðingur leikmannsins færi fram á hámarkssekt og að FH yrði dæmt í tveggja ára félagaskiptabann. Hjörvar segir málið snúast um samning Beck við FH. Framherjinn hafi talið sig vera launþega þegar hann hafi í raun verið á verktakagreiðslum. Messi til Miami, Kili Kili til Real og Kane í United. https://t.co/gWwBc9vxEH— Dr. Football Podcast (@drfootballpod) March 10, 2023 „Hann er farinn með FH í dómsalinn. Hann (Beck) vill meina að FH skuldi sér fyrir meira en tvö tímabil, alls 14 milljónir,“ sagði Hjörvar í þætti dagsins. Samkvæmt honum viðurkennir FH að félagið skuldi Morten Beck pening en ekki jafnháa upphæð og kemur fram hér að ofan. „Af gögnum málsins að dæma hefur hann rétt fyrir sér og líklegt að FH-ingar þurfi að borga. Þetta er skítamál fyrir Hafnfirðinga,“ sagði Hjörvar einnig. Í frétt Fótbolti.net um málið segir: „Valdimar Svavarsson formaður FH staðfestir að félagið hafi fengið kröfur en það hafni þeim alfarið. Málið fari í ákveðinn farveg og félagið ætli ekki að tjá sig um það efnislega að svo stöddu.“ Morten Beck spilaði með FH frá 2019 til 2021 en á meðan hann var samningsbundinn liðinu var hann lánaður til ÍA. Þá lék hann með KR tímablið 2016.
Fótbolti Íslenski boltinn FH Besta deild karla Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Íslenski boltinn „Ég verð að spila“ Enski boltinn Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Fótbolti Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Körfubolti Fleiri fréttir Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings „Engan bilbug á okkur að finna“ Umfjöllun: Þór - Stjarnan 1-3 | Lífsnauðsynlegur sigur Garðbæinga „Ákvað að kontra hann í samúel“ Gerði sínu gamla liði mikinn grikk Leik lokið: ÍBV – Keflavík 6-1 | Flugeldasýning í fyrsta sigri Eyjamanna Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings