Marsspá Siggu Kling - Ljónið Sigga Kling skrifar 3. mars 2023 06:02 Elsku Ljónið mitt, þann sjöunda mars mun svo margt breytast hjá þér og sú orka verður hjá þér í töluverðan tíma. Þetta tengist ástinni, trúnni sem þú hefur og lífinu öllu. Það er eins og þú sért að stíga inn í öðruvísi, betra og hjartanlegra líf en þú hefur. Að sjálfsögðu ekki á einum degi, heldur eitt skref í einu, eina mínútu í senn. Þú finnur að þér hitnar í hjartanu og þú færð svo sterkan skilning á öðru fólki og það þýðir bara að loksins ertu farinn að skilja sjálft þig betur.
Ljónið er frá 23. júlí til 22. ágúst. Það er eins og þú sért að fara inn í níunda sporið í tólf spora kerfinu. Þú bætir fyrir það sem ÞÉR finnst þú hafir gert, þú finnur auðmýktina flæða yfir þig, svona svipað og þegar maður fær að vita að krabbameinið í líkama okkar sé horfið. Þá sérðu allt í öðru ljósi og getur þakkað fyrir allt það sem fyrir þig hefur komið og erfiðleikana sem yfir þig hafa flætt. Þú losnar úr þeim viðjum sem haldið hafa þér niðri og elskar af öllu hjarta. Þú gefur fólki þann tíma sem það þarf til þess að sættast og sjá þig í björtu ljósi. Vormánuðir gefa þér betri undirstöðu og það öryggi sem þér finnst þú eiga skilið, hvort sem það tengist efnislegum gæðum eða ást frá hjartanu. Það er allskyns dót og drasl að fara í taugarnar á þér, heldur betur. Þú hendir og gefur hluti sem þú bjóst alls ekki við að þú myndir láta frá þér. Það gerist líka atburður á þessu tímabili sem gerir þig sterkari, af því að þú þarft þess. Þetta er eitthvað sem er ekki hægt að koma í veg fyrir, heldur er partur af þínum örlögum og annarrar manneskju. Þú átt eftir að finna það að það verður reynt að tæla þig til að taka þátt í neikvæðri orku sem er ekki gædd góðvilja. Þú munt strax frá boð til hugans um að segja nei og þú munt líka strax finna ef verið er að ljúga að þér. Þetta er ofboðslega gott tímabil, en þú þarft að hafa fyrir því og þú getur farið í gegnum fjöll með því að segja: „Ég get, ég ætla og ég skal“ og ekkert mun þá trufla þig. Það er mikil fegurð yfir persónu sem kemur eins og engill til þín þegar að líða tekur á vorið og er send til að hjálpa þér Knús og kossar, Sigga Kling
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Lífið samstarf Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Tónlist Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Lífið Útför Gunnars Þórðarsonar Lífið Hátíðin Kveldúlfur í annað sinn um helgina Tónlist Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Lífið Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Lífið Fleiri fréttir Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Sjá meira