Opið bréf til Ivu Marínar Regn Sólmundur Evudóttir skrifar 28. febrúar 2023 08:00 Kæra Iva Marín. Ég var að horfa á viðtalið við þig í Íslandi í dag, og ég minntist þess þegar við kynntumst fyrst í MH, og hvað þú hefur alltaf verið vel máli farin. Það hentar eflaust vel í lögfræðinni. Ég man að þú varst ein af fyrstu manneskjunum til þess að óska mér til hamingju með nýtt nafn á Facebook á sínum tíma, fyrir 4 árum. En þær minningar verða mjög flóknar þegar þú stendur fast á því að þú hafir réttinn til þess að vanvirða trans og kynsegin fólk, þar með talið mig. Þú heldur því fram að fólk megi ekki leggja kröfur á fólkið sem það umgengst, en hvað eru mörk annað er kröfur? Myndi þér vera sama ef öll sem þú umgengst færu stanslaust yfir þín mörk, á þeim forsendum að það mætti ekki ætlast til af þeim að virða mörkin? Engum myndi líða vel í samfélagi þar sem má ekki setja mörk, eða krefjast þeirrar grundvallarvirðingar að mörkin þeirra séu virt. Þú talar um að jaðarsetning sé ekki til, en svo talar þú líka um að berjast fyrir réttindum kvenna og samkynhneigðra, sem svo sannarlega gefur til kynna að þar sé jaðarsetning að baki, og sú jaðarsetning er vissulega til staðar. Þetta viðtal við þig gerir mig mjög ringlað. Þarna eru margar þversagnir, þótt þú komir þeim mjög gáfulega frá þér. Hvernig getur fólk tekið því öðruvísi en sem svo að þú sért hatursfull í garð trans fólks, þegar þú tekur þátt í að stofna Íslandsdeild stærstu transhaturssamtaka í heiminum? Væri ég ekki kvenhatari ef ég stofnaði slík samtök um kvenhatur á Íslandi? En mér þykir reyndar of vænt um konur, og fólk almennt, til að detta það í hug. Þó að þú hafir dregið þig í hlé frá téðum samtökum hefur þú aldrei beðist afsökunar, né sýnt á neinn hátt að þér þyki fyrir því að slík haturssamtök voru stofnuð af þér á Íslandi. Síðan var nafnið þitt fyrir stuttu á undirskriftalista samtakanna sem þú stofnaðir, sem vildu fjarlægja ákvæðið um að banna bælingarmeðferðir á grundvelli kynvitundar. Með öðrum orðum skrifaðir þú undir yfirlýsingu sem styður notkun bælingarmeðferða á trans fólki. Um daginn var 16 ára stúlka myrt af jafnöldrum sínum í Bretlandi, fyrir það eitt að vera trans. Við erum búin að eiga metár eftir metár í morðum og hatursglæpum gegn trans fólki. Í nokkrum fylkjum í Bandaríkjunum hafa verið lögð fram frumvörp til að banna drag (aftur!), og það eru enn margar þjóðir með dauðarefsingu við hinseginleika. Anti-trans baráttan, sem þú ert hluti af, kemur niður á öllu hinsegin fólki, þar á meðal þér sjálfri. Með fleiri háværum röddum, bæði á heimsvísu og á Íslandi, sem öskra eftir útrýmingu trans fólks, áköll um að banna fólki að vera það sjálft, að ásaka það um glæpi sem það hefur ekki framið, verð ég hræddara og hræddara um öryggi mitt, vina minna og alls hinsegin fólks yfir höfuð. JK Rowling, sem þú studdir svo stolt árið 2020, gefur allan hagnað sinn til samtaka sem ýta undir hatur á trans fólki, sem hefur þær afleiðingar að fólk flykkist saman til að hata trans fólk meira. Oftast út af fáfræði, og einu upplýsingarnar sem þau fá um trans fólk eru frá þessum háværu röddum sem spúa út úr sér rangfærslum, sem elur á hatri hjá fólki. Þú getur ekki haldið því fram að þú virðir fólk ef þú leggur metnað í að grafa undan réttindum þess og hagsmunum með hatursorðræðu. Og þá kemur að hatursorðræðunni. Málfrelsi er mikilvægt, en það sem virðist vera algengur misskilningur um málfrelsi, er að engar afleiðingar fylgi orðum. En málfrelsi þýðir að þú getur sagt hvað sem þú vilt, og haft þær skoðanir sem þú vilt, en þarft þá að gangast við afleiðingum þess sem er sagt. Orðum fylgja afleiðingar, alltaf. Við byggjum samfélagið að miklu leyti með orðum, og þú veist það sjálf. Það er ástæða fyrir því að fólk er ósammála þér, og það er ástæða fyrir því að fólk er reitt. Ég myndi persónulega ekki ráða rasista, kvenhatara né nasista í vinnu, þrátt fyrir skoðanafrelsi, og ég held að flest myndu ekki vilja setja nafn fyrirtækis síns við eitthvað sem þau eru ósammála, á mannréttindagrundvelli. Ég efa t.d. stórlega að þú myndi vilja hafa manneskju í vinnu hjá þér sem hataði blindar lesbíur. Ég myndi samt alveg ráða manneskju þeirrar skoðunar að ananas á pizzu væri það versta sem hafði komið fyrir vestræna matargerð, þrátt fyrir að vera mjög ósammála, því það er skoðun sem stangast ekki á við grunndvallarmannréttindi fólks. Það eru ekki mannréttindi að fá að vera birt í auglýsingaherferð, en það eru mannréttindi að fá að lifa í samfélagi sem virðir tilverurétt mans. Þú hlýtur að vera sammála því, þú ert nógu klár til þess. Kær kveðja, Regn. Höfundur er listakvár og aktívisti. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Málefni trans fólks Tjáningarfrelsi Mest lesið Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Skoðun Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar