Lífið

Lagði til frumlega leið til að draga úr upplýsingaóreiðu

Snorri Másson skrifar

Jakob Birgisson grínisti lagði orð í belg í Íslandi í dag á miðvikudaginn var um þau alvarlegu tíðindi að verðbólguvæntingar fari þrátt fyrir alla viðleitni Seðlabankans enn versnandi.

Bent var á mögulega upplýsingaóreiðu á vegum stjórnvalda, en á vef Stjórnarráðsins mátti á dögunum lesa að 450 milljarða króna útgjöld ríkisins í mótvægisaðgerðir í heimsfaraldrinum hafi „rutt brautina fyrir efnahagsbata“ sem var sagður hafa hafist 2021.

Ríkið þarf að leggja sitt af mörkum til að draga úr hvort tveggja upplýsingaóreiðu og verðbólgu að sögn Jakobs Birgissonar grínista.Vísir/Egill

Spurt var hvaða efnahagsbati það væri, að búa við mjög illviðráðanlega verðbólgu sem hlyti einmitt öðrum þræði að skýrast af umræddum sögulegum útgjöldum hins opinbera, sem prentaði peninga eins og aldrei fyrr.

„Þetta er auðvitað einhver útfærsla á orðalagi. Fallega orðað - og skemmtilegt,“ segir Jakob - en hér duga ekki orðin tóm. Jakob lagði til aðgerðir sem ríkisvaldið gæti strax ráðist í til að bæði draga úr hamslausum ríkisútgjöldunum og upplýsingaóreiðu.

„Það sem væri sniðugast að gera væri að byrja á að reka alla aðstoðarmenn ráðherra. Bara reka þá alla, af því að þeir eru að valda upplýsingaóreiðunni. Ég held að þeir skipti annars engu máli. Reka þá. Og síðan alla upplýsingafulltrúa og fjölmiðlafulltrúa í ráðuneytunum,“ segir Jakob.

Þetta væri skref gegn verðbólgunni. Þess virði að prófa, að sögn Jakobs.


Tengdar fréttir

Erum á leið í „verstu sviðsmyndina“ með vextina hærri lengur en áður var talið

Þrátt fyrir vaxtahækkun og harðari tón peningastefnunefndar fyrr í þessum mánuði þá hafa verðbólguvæntingar fjárfesta á skuldabréfamarkaði haldið áfram að versna verulega í skugga harðra átaka á vinnumarkaði sem hafa valdið enn meiri óvissu um verðbólguþróunina, að sögn sjóðstjóra og sérfræðinga á fjármálamarkaði. Markaðsvextir á stuttum ríkisskuldabréfum eru að nálgast átta prósent og hafa ekki verið hærri í meira en áratug.

Fjármálaráðherra segir Seðlabankann hafa vanmetið verðbólguna

Fjármálaráðherra segir Íslendinga vera að taka út lífskjör sem ekki væru langtíma forsendur fyrir sem birtist meðal annars í mikilli einkaneyslu. Seðlabankinn sitji sennilega uppi með að hafa hækkað vexti of hægt og vanmetið verðbólguna of oft. Formaður Viðreisnar segir ríkisstjórnina stinga höfðinu í sandinn og hún bjóði ekki upp á neinar aðgerðir gegn verðbólgunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.