Spáð að þessi verði fyrsta rafknúna farþegaflugvélin Kristján Már Unnarsson skrifar 9. október 2022 14:14 Rafmagnsflugvélin Alice komin á loft í fyrsta flugtakinu 27. september síðastliðinn. Eviation Þegar rafmagnsflugvélin Alice hóf sig til flugs fyrir tólf dögum frá Grant County-alþjóðaflugvellinum í Washington-ríki í Bandaríkjunum sagði CNN-fréttastofan að hún væri fyrsta farþegaflugvél heims, sem alfarið væri rafknúin, til að taka flugið. Þetta fyrsta reynsluflug hennar varði í átta mínútur og fór hún í 3.500 feta hæð.
Tveimur mánuðum áður höfðu Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flogið sem fyrstu flugfarþegarnir hérlendis með fyrstu rafmagnsflugvél Íslendinga, hinni tveggja sæta TF-KWH. Sú er af gerðinni Pipistrel Velis. Rafmagnsflugvélin TF-KWH dregin út úr flugskýli Geirfugls í Fluggörðum í sumar. Frumkvöðlarnir Friðrik Pálsson og Matthías Sveinbjörnsson draga vélina ásamt sænska flugkennaranum Rickard Carlsson.Einar Árnason Með flughæfisskírteini Flugöryggisstofnunar Evrópu varð Pipistrel fyrsta rafmagnsflugvél heims til að hljóta alþjóðlega vottun til almannaflugs. Hún má því teljast fyrsta rafknúna farþegaflugvélin. Litla Pipistrel-vélin er hins vegar ætluð sem kennsluflugvél, fyrir einn flugkennara með einn flugnema. Þótt flugmaður geti jafnframt nýtt hana til að fljúga með einn farþega mun hún seint teljast valkostur í arðbært farþegaflug á vegum flugfélaga. Rafmagnsflugvél Eviation er tveggja hreyfla og eru hreyflarnir aftast á vélinni.Eviation Eftir fyrsta flugið þann 27. september síðastliðinn telst Alice núna einna líklegust til að verða fyrsta rafmagnsflugvélin sem flugfélög munu taka í notkun til almenns farþega- og vöruflugs. Framleiðandinn, fyrirtækið Eviation, ísraelskt að uppruna en staðsett í Bandaríkjunum, hyggst þó gefa sér nægan tíma til að tryggja að þegar að þeim tímapunkti kemur verði hún orðin öruggur farkostur. Eviation áætlar að taka næstu fjögur til fimm ár til frekari þróunar og flugprófana og stefnir að því að hún verði tilbúin til afhendingar árið 2027. Fyrsta flugið varði í átta mínútur og fór hún í 3.500 feta hæð. Áætlað er að hún geti flogið í allt að 32.000 feta hæð.Eviation Alice er gerð til að bera níu farþega og tvo flugmenn. Flughraði hennar í farflugi er áætlaður verða 480 kílómetrar á klukkustund og flugdrægið 460 kílómetrar, sem þýðir að hún gæti hentað íslensku innanlandsflugi. Áætlað er að 30 mínútur taki að hlaða rafgeymana á milli flugferða og að hún þurfi 840 metra langa flugbraut til flugtaks. Fyrstu flugferðinni fagnað á Grant County-flugvellinum í Washington-ríki.Eviation Eviation hyggst bjóða flugvélina í þremur útfærslum; sem níu sæta farþegaflugvél, sem fimm sæta forstjóraflugvél með lúxusinnréttingu og sem vöruflutningavél. Fyrsta flugfélagið til að kaupa hana var hið bandaríska Cape Air, sem pantað hefur 75 eintök. Deutsche Post hefur pantað 12 flugvélar til að nýta í samstarfi við DHL fyrir pakkasendingar. Þá tilkynnti GlobalX Airlines í september að það hefði pantað 50 flugvélar. Hér má sjá myndband Eviation af fyrsta flugi rafmagnsflugvélarinnar Alice:
Fréttir af flugi Orkuskipti Orkumál Loftslagsmál Bandaríkin Samgöngur Umhverfismál Ísrael Tengdar fréttir Viljayfirlýsing Icelandair gerir ráð fyrir fimm rafknúnum flugvélum Icelandair gerir ráð fyrir að fá fimm rafmagnsflugvélar í innanlandsflugið í viljayfirlýsingu, sem félagið skrifaði undir í síðustu viku. Ráðamenn Icelandair telja raunhæft að orkuskiptin í farþegafluginu hefjist fyrir lok þessa áratugar. 22. september 2022 22:22 Forsetinn fyrstur farþega í rafmagnsflugvél Blað var brotið í íslenskri flugsögu í gær með fyrsta farþegaflugi rafmagnsflugvélar hér á landi. Forseti Íslands og forsætisráðherra voru fyrstu farþegar vélarinnar og segja flugið marka vatnaskil í vegferð Íslands í átt að hreinni orku í loftsamgöngum. 24. ágúst 2022 06:30 Flugvél flýgur í fyrsta sinn í sögunni á íslenskri raforku Fyrsta rafmagnsflugvél Íslendinga hóf sig til flugs í fyrsta sinn á Íslandi nú síðdegis frá flugvellinum á Hellu á Rangárvöllum. Þetta var jafnframt í fyrsta sinn sem flugvél flaug á íslenskri orku en ekki innfluttu jarðefnaeldsneyti. 8. júlí 2022 22:33 Mest lesið Skuldar félagi Einars 44 milljónir og gæti misst 295 milljóna hús Viðskipti innlent Fegurð er glæpur kom út í mínus Viðskipti innlent „Alls konar fólk heyrt í mér um alls konar hluti“ Viðskipti innlent Atvinnumissir: „Ég kunni nú ekki við að spyrja Jón beint“ Atvinnulíf Segir engar breytingar hafa verið gerðar á uppskrift SS pylsna Neytendur Þrjár verslanir í Múlunum sektaðar eftir rassíu Neytendastofu Neytendur Nýtt trend: Engir yfirmenn á vinnustaðnum Atvinnulíf Þetta kostar skyndibiti á Íslandi Neytendur Tupperware lýsir yfir gjaldþroti Viðskipti erlent Bæta við níunda áfangastað sínum á Spáni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stýrivextir lækkaðir í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í fjögur ár Tupperware lýsir yfir gjaldþroti Snúa við dómnum og dæma Bonnesen í fangelsi Gera Apple að greiða tvær billjónir í skatta Skaut samstundis niður tillögur um efnahagslega björgun Evrópu Bein útsending: Apple kynnir nýjustu græjurnar Hætta steðjar að lífsgæðum Evrópubúa Volvo heykist á algjörri rafvæðingu árið 2030 Þessari rafmagnsflugvél er ætlað að flytja 90 farþega Zuckerberg harmar að hafa látið undan þrýstingi Bidens Breska stjórnin samþykkir að efla London City-flugvöll Sádar sagðir byrjaðir að skrúfa fyrir kranann Susan Wojcicki er látin Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra Sjá meira
Viljayfirlýsing Icelandair gerir ráð fyrir fimm rafknúnum flugvélum Icelandair gerir ráð fyrir að fá fimm rafmagnsflugvélar í innanlandsflugið í viljayfirlýsingu, sem félagið skrifaði undir í síðustu viku. Ráðamenn Icelandair telja raunhæft að orkuskiptin í farþegafluginu hefjist fyrir lok þessa áratugar. 22. september 2022 22:22
Forsetinn fyrstur farþega í rafmagnsflugvél Blað var brotið í íslenskri flugsögu í gær með fyrsta farþegaflugi rafmagnsflugvélar hér á landi. Forseti Íslands og forsætisráðherra voru fyrstu farþegar vélarinnar og segja flugið marka vatnaskil í vegferð Íslands í átt að hreinni orku í loftsamgöngum. 24. ágúst 2022 06:30
Flugvél flýgur í fyrsta sinn í sögunni á íslenskri raforku Fyrsta rafmagnsflugvél Íslendinga hóf sig til flugs í fyrsta sinn á Íslandi nú síðdegis frá flugvellinum á Hellu á Rangárvöllum. Þetta var jafnframt í fyrsta sinn sem flugvél flaug á íslenskri orku en ekki innfluttu jarðefnaeldsneyti. 8. júlí 2022 22:33