Lífið

Beyoncé skín skært fyrir Tiffany & Co

Elísabet Hanna skrifar
Beyoncé skín skært í herferð fyrir skartgripafyrirtækið.
Beyoncé skín skært í herferð fyrir skartgripafyrirtækið. Skjáskot/Youtube

Söngkonan Beyoncé skín skært klædd demöntum frá toppi til táar í nýju myndbandi frá skartgripafyrirtækinu Tiffany & Co. Í því má sjá hana dansa og syngja á fullum skemmtistað af fólki ásamt því að sitja á baki glitrandi hests. 

Beyoncé hefur reglulega starfað með fyrirtækinu í gegnum árin. Undanfarið hefur hún verið að taka þátt í herferð sem ber heitið Lose Yourself in Love. Myndbandið sem um ræðir ber heitið „Summer Renaissance“ og vitnar í lagið sem er af nýju plötu söngkonunnar Renaissance. Því er leikstýrt af Grammy verðlaunahafanum Mark Romanek.

Myndbandið má sjá í heild sinni hér að neðan:

Veita skólastyrk

Partur af samstarfi hjónanna Beyoncé og Jay-Z með skartgripafyrirtækinu er verkefnið Tiffany Atrium sett af stað. Það veitir skólastyrk í listum og skapandi greinum. Fram að þessu hafa sextíu nemendur hlotið styrkinn.  

Hjónin hafa áður tekið þátt í myndbandi fyrir fyrirtækið, bæði saman, í október í fyrra. Það hlaut nafnið Date night og dró innblástur frá kvikmyndinni Breakfast at Tiffany's.


Tengdar fréttir

Ólga vegna nýrrar tón­listar Beyoncé

Beyoncé gaf út plötuna „Renaissance“ nú á dögunum en ekki hafa allir verið sáttir við lög plötunnar. Beyonce hefur neyðst til þess að breyta tveimur lögum á nýju plötunni og hefur Monica Lewinsky nú blandað sér í málið.

Beyoncé gefur út fyrsta lagið af væntanlegri plötu

Söngkonan Beyoncé gaf út fyrsta lagið af væntanlegri plötu sinni í gær og heitir lagið Break My Soul. Platan sem kemur út í lok júlí mun bera heitið Renaissance og verður fyrsta sóló platan hennar síðan 2016.

Beyoncé tilkynnir næstu plötu sína

Beyoncé hefur tilkynnt næstu plötu sína, Renaissance, sem kemur út þann 29. júlí næstkomandi. Platan er sjöunda sóló-plata tónlistarkonunnar og sú fyrsta frá 2016 þegar hin mjög svo vinsæla Lemonade kom út.

Beyoncé tilnefnd til Óskarsins - Allar tilnefningarnar

Tilnefningar til Óskarsins voru gefnar út í dag og sáu þau Tracee Ellis Ross og Leslie Jordan um að kynna þær. Hátíðin mun fara fram þann 27. mars og var spennan fyrir tilnefningunum gríðarlega sérstaklega þar sem Íslendingar áttu möguleika á tilnefningu fyrir Dýrið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.