Lífið

Annað barn á leiðinni hjá Kardashian og Thompson

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Barnið var getið áður en upp komst að Thompson hefði eignast barn á meðan hann var með Kardashian.
Barnið var getið áður en upp komst að Thompson hefði eignast barn á meðan hann var með Kardashian. Getty/Hollywood To You/Star Max/GC Images

Raunveruleikastjarnan Khloe Kardashian á von á öðru barni með körfuknattleiksmanninum Tristan Thompson. Samkvæmt erlendum miðlum var barnið getið í nóvember á síðasta ári en staðgöngumóðir gengur með það.

Heimildarmaður People segir Kardashian og Thompson ekki byrjuð saman aftur en þau eiga fyrir hina fjögurra ára True. Samband þeirra var mjög stormasamt, ekki síst vegna ítrekaðra framhjáhalda Thompson, sem gat annað barn á meðan hann var enn með Khloe.

Kardashian sleit síðast sambandinu við Thompson í janúar, þegar upp komst að kona að nafni Maralee Nichols hefði eignast dóttur Thompson í desember síðastliðnum.

Samband Kardashian og Thompson var til umfjöllunar í nýjustu raunveruleikaþáttaröðinni um Kardashian og fjölskyldu og þá var sýnt frá því þegar Khloe og systir hennar Kim ræddu kosti staðgöngumæðrunar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.