Lífið

Ævin­lega þakk­lát heil­brigðis­starfs­fólki eftir „mesta til­finninga­rússí­bana­kok­teil“ lífsins

Eiður Þór Árnason skrifar
Dóra Björt Guðjónsdóttir og Sævar Ólafsson ásamt barninu.
Dóra Björt Guðjónsdóttir og Sævar Ólafsson ásamt barninu. Aðsend/Vísir

Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi og oddviti Pírata í Reykjavík, fæddi dreng á þriðjudag. Barnið, sem hún á með Sævari Ólafssyni íþróttafræðingi, var 16,5 merkur og 52 sentímetrar að lengd.

Sá litli lét ekki bíða eftir sér en settur dagur var í dag, á baráttudegi verkalýðsins þann 1. maí. Dóra segir drenginn vera baráttubarn í víðum skilningi en hann kom jafnframt í heiminn í miðri kosningabaráttu. Fyrir átti Sævar son úr fyrra sambandi.

„Hann er svo undurfallegur og bjartur og lýsir upp hjörtun okkar. Ég hef aldrei upplifað slíka ást,“ segir hún í Facebook-færslu þar sem hún greinir frá fæðingunni. Fæðingin og fyrstu dagarnir hafi þó reynst fjölskyldunni krefjandi þar sem fyrirhuguð heimafæðing hafi endað upp á Landspítala „í töluverðum hasar.“ Þá hafi hann verið lagður inn á vökudeild spítalans tveimur dögum eftir að hann kom í heiminn vegna slappleika.

„Allt hefur þó gengið upp og við fjölskyldan fengum að fara heim í dag, á settum degi. Við njótum þess að vera saman og kynnast. Hann setur allt lífið vissalega í alveg nýtt samhengi,“ segir Dóra.

Hún vilji í ljósi dagsins í dag og nýliðinnar reynslu foreldranna nefnda botnlausa virðingu sína fyrir vinnu og mikilvægi heilbrigðisstarfsfólks.

Klökk og þakklát

„Heilbrigðisstarfsfólk er okkur til halds og trausts á okkar bestu og erfiðustu stundum og stendur vörð um okkar allra dýrmætasta og hefur sannarlega gert það í okkar tilfelli. Ég vil þakka ljósmæðrum, hjúkrunarfræðingum, fæðingarlæknum og barnalæknum bæði Bjarkarinnar og Landspítala frá innstu hjartarótum fyrir að grípa mig og fjölskylduna mína á ögurstundu. Fagleg og styrk hjálparhönd þeirra í bland við botnlausa umhyggju og hlýju sem við höfum hlotið síðustu daga frá þessu yndislega fólki gerir mig klökka.“

Starfsfólkið hafi ekki einungis tryggt fjölskyldunni rétta meðhöndlun og meðferð heldur líka veitt sáluhjálp, ráðgjöf og öxl til að gráta á.

„Undursamlegar ljósmæður og hjúkrunarfræðingar hafa bæði fyrir, undir og eftir fæðingu og á meðan dvöl okkar á vökudeild stóð hlustað á mig, ráðlagt mér, sýnt mér endalausan skilning og stuðning og hafa bókstaflega gripið mig í sinn faðm þegar tárin hafa streymt niður vangana í rosalegasta tilfinningarússíbanakokteil lífs míns.“

Að lokum segir Dóra að hún verði þessu fólki ævinlega þakklát og þau eigi allt gott skilið.

„Það á skilið miklu meira en það fær. Gleðilegan 1. maí. Baráttan lifir. Velkominn í heiminn elsku barnið mitt.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.