Iceguys reyndu við Hasselhoff Bjarki Sigurðsson skrifar 2. nóvember 2026 09:09 Strákarnir í Iceguys ásamt Söndru Barilli eða Mollý, Jay Kahn fyrirliða 5fünf og leikstjórateymi Atlavíkur með Hannes Þór Halldórsson fremstan í flokki. Hildigunnur Ólafsdóttir Hannes Þór Halldórsson leikstjóri kvikmyndarinnar um Iceguys segist hafa lagt allt í sölurnar til að tryggja að myndin yrði stærri í sniðum en sjónvarpsþættirnir. Strákarnir hafi hver sína skoðun, enda hver að gera vel á sínu sviði. Meðal þess sem hann hafi gert var að setja sig í samband við alvöru þýska strákahljómsveit og reyna að ná tali af bandaríska stórstirninu David Hasselhoff.
Þetta er meðal þess sem fram kom í kvikmynda- og sjónvarpshlaðvarpinu Tveir á toppnum í umsjón Þórarins Þórarinssonar og Odds Ævars Gunnarssonar. Kvikmyndin um Iceguys var frumsýnd á dögunum með pompi og prakt í Háskólabíói. Myndin er endapunkturinn eftir þrjár sjónvarpsseríur og fylgir Iceguys eftir í alþjóðlegri strákabandskeppni. Hélt aldrei að þýsku strákarnir yrðu til Hannes Þór segir frá því í þættinum að upprunalega hafi staðið til að ráða leikara, helst í yngri kantinum, til að leika helstu keppinauta Iceguys í strákabandskeppninni frá Þýskalandi. Hann hafi ákveðið að gamni sínu að athuga hvaða strákagrúppur væru til í landinu. Þannig bárust böndin að Team 5ünf, höfuðandstæðingum Iceguys í myndinni, þar sem þeir mæta alvöru og mjög virku „boybandi“ frá Þýskalandi. „Við settum okkur í samband við þá og ég hélt að þetta myndi aldrei gerast,“ segir Hannes sem fyrir fram taldi möguleikann á því að fá til liðs við sig vinsælt þýskt band með öllum þeim pakka sem slíku fylgir. „En þeir tóku bara ekkert eðlilega vel í þetta frá fyrsta degi og nokkrum vikum seinna eru þeir bara komnir hingað til Íslands í tólf tíma tökudaga. Engir stjörnustælar og ekki neitt voru bara frábærir.“ Án þess að á nokkurn sé hallað er óhætt að segja að Jay Kahn, fyrirliði þeirra þýsku, sé fremstur í flokki senuþjófa í myndinni og sínu fyrsta kvikmyndahlutverki. „Og svo voru þeir bara svo góðir,“ segir Hannes Þór um þá þýsku. „Að ég bara fann það í hverri einustu senu sem við vorum að mynda með þeim að við værum með eitthvað gott í höndunum hérna.“ Strandvarðastjörnuna David Hasselhoff bar á góma í umræðunum um þessa kostulegu keppinauta Iceguys enda ekki laust við að í hallæristöktum fimmmenninganna örli á einhverjum skyldleika við Hasselhoff. Pælingin virðist heldur ekki alveg úr lausu lofti gripin því Hannes upplýsti að tilraunir hafi verið gerðar til þess að fá David Hasselhoff til þess að vera kynnirinn í Battle of the Boybands-þættinum í bíómyndinni. „En það bara náðist ekki í hann.“ Baywatch stjarnan hefði gegnt stóru hlutverki í Iceguys myndinni ef allt hefði gengið upp. EPA/SEBASTIEN NOGIER Rúrik fylgist með af sundlaugarbökkum Þá nefnir Hannes í þættinum að sumir tökudagar hafi verið meira krefjandi en aðrir, langir tökudagar og mikið í húfi. Stemningin í hópnum hafi hins vegar alltaf verið góð. Þetta eru væntanlega fimm ólíkir menn og persónuleikar? „Já, en þeir eru allir léttir og það er einhvern veginn stemning í hópnum og jú, jú, auðvitað eru þeir ólíkir. Bara eins og við erum öll. En það er mikil samheldni í hópnum þeirra og það sama á við um okkur í Atlavík,“ segir Hannes um Ísgæjana annars vegar og félaga sína í leikstjóraþríeyki myndarinnar, þá Hannes Þór Arason og Allan Sigurðsson. „Auðvitað takast menn stundum á og svona en það er alltaf mjög grunnt á því og við finnum bara lausnir og erum helvíti þétt teymi. Það þarf að finna leiðir til að vinna saman og vera fljótir að kasta fýlunni í ruslið,“ heldur hann áfram og segist telja hið sama eiga við um strákana í Iceguys. „Ég held það sé það sama hjá þeim og auðvitað takast menn alveg á. Ég meina, Árni hefur miklar skoðanir og getur verið ákveðinn. Þetta er ekkert alltaf einhver harmónía. Rúrik er með sínar skoðanir, alltaf einhvers staðar úti í heimi á einhverjum sundlaugarbakka að senda manni eitthvað um hvernig hlutirnir eigi að vera gerðir. Hann er líka bara metnaðarfullur og vill bara að hlutirnir séu góðir og gerðir vel. Þannig að jú, jú. Það er ekkert einfalt í þessu Iceguys-dóti. Þeir eru fimm og þeir eru allir með sína samninga og sitt orðspor.“
Bíó og sjónvarp Kvikmyndagerð á Íslandi Tónlist Þýskaland Mest lesið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun Arnór Sig kominn á fast Lífið Iceguys reyndu við Hasselhoff Bíó og sjónvarp Skaut sig óvart í fótinn Bíó og sjónvarp Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Lífið Orðrómur um ástir breskra Traitors-stjarna Bíó og sjónvarp 50+: Sjúkdómasamkeppnin í matarboðinu Áskorun Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Lífið Fleiri fréttir Skaut sig óvart í fótinn Iceguys reyndu við Hasselhoff Orðrómur um ástir breskra Traitors-stjarna Biðjast afsökunar og kippa umdeildum þáttum úr birtingu Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Andlát Panettiere úrskurðað sem slys Enn og aftur dæmdur í fangelsi Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Glee snýr aftur Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Stelpurnar snúa aftur Horfa fram á sögulegt tap Diggers Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Elma seld til útlanda Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Sjá meira