Lífið

Fór með hraði á Land­­spítalann og beint í hjarta­­þræðingu

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Jói Fel ber sig vel og segist þakklátur heilbrigðisstarfsfólki.
Jói Fel ber sig vel og segist þakklátur heilbrigðisstarfsfólki. Instagram/Joifel

Jói Fel bakari, kokkur og athafnamaður ber sig vel eftir að hafa farið með skyndi í hjartaþræðingu. Hann segist hafa fengið svima, byrjað að svitna, verk í handlegg og sem leiddi upp í brjóst. Blessunarlega hafi hann beint farið á bráðamóttökuna.

Eiginkona Jóa er hjúkrunarfræðingur og fór með hann beinustu leið upp á bráðamóttökuna á Landspítalanum í Fossvogi. Þar var hann skoðaður í bak og fyrir, í kjölfarið keyrður í sjúkrabíl á Landspítalann og kominn í aðgerð aðeins fáeinum mínútum síðar.

„Þó svo sjúkrahúsin séu full og mikið álag fannst mér eins og ég væri eini sjúklingurinn. Tveimur tímum eftir að ég fann fyrir verkjum var ég búinn í bráðaaðgerð. Þurfti að fara í hjartaþræðingu og var CX æðin 100% stífluð sem er víst ein af þessu stóru aðal æðum,“ skrifar Jói Fel á Instagram.

Jói vinnur að opnun nýs veitingastaðar um þessar mundir og segir að starfsfólk muni sjá um „allt saman“ þangað til hann nær sér að fullu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.