Innlent

Ingi­björg á­fram for­maður FEB

Atli Ísleifsson skrifar
Ingibjörg H. Sverrisdóttir tók fyrst við embætti formanns FEB árið 2020.
Ingibjörg H. Sverrisdóttir tók fyrst við embætti formanns FEB árið 2020. FEB

Ingibjörg H. Sverrisdóttir var í gær endurkjörin formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni (FEB) á aðalfundi félagsins sem haldinn var í Gullhömrum í Reykjavík í gær.

Þorkell Sigurlaugsson hafði áður dregið framboð sitt til baka degi fyrir aðalfund í kjölfar „rætinnar gagnrýni“ líkt og fjallað var um í frétt Vísis í gær.

Í félaginu eru um 14 þúsund félagsmenn en félagið er stærsta aðildarfélag Landssambands eldri borgara á hérlendis.

Haft er eftir Ingibjörgu að hún sé afar þakklátt fyrir það mikla traust sem sér hafi verið sýnt sem formaður síðustu tvö árin. Muni hún halda áfram baráttu sinni fyrir bættum hag og réttindum eldra fólks. „Þá langar mig að nota tækifærið og þakka fráfarandi stjórn fyrir frábært samstarf og vinnu í þágu eldra fólks fyrir félagið. Jafnframt óska ég nýrri og glæsilegri stjórn félagsins til hamingju en ég hlakka mjög til samstarfsins,“ segir Ingibjörg.

Á fundinum voru eftirtaldir aðilar kjörnir í stjórn og varastjórn.

Til tveggja ára í aðalstjórn voru kjörnir:

  • Kári Jónasson með 113 atkvæði
  • Kolbrún Stefánsdóttir með 100 atkvæði
  • Sigurbjörg Gísladóttir með 85 atkvæði

Þrír voru kosnir í varastjórn til eins árs en þeir eru:

  • Viðar Eggertsson með 68 atkvæði
  • Halldór Frímannsson með 62 atkvæði
  • Jón Kristján Árnason með 19 atkvæði

Tengdar fréttir

Þor­kell dregur fram­boðið til baka í kjöl­far „rætinnar gagn­rýni“

Þorkell Sigurlaugsson hefur ákveðið að draga framboð sitt til formanns Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrennis (FEB) til baka. Hann segir að eftir umhugsun og samtöl við stuðningsfólk hafi honum ekki þótt við hæfi að bjóða sig fram gegn sitjandi formanni og þá hafi hann ekki viljað trufla framboð sitt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar þar sem hann sækist eftir 2. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×