Jóhann Árni á leið í Stjörnuna Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 5. desember 2021 22:00 Jóhann Árni í leik gegn Stjörnunni sumarið 2020. Nú stefnir í að hann muni klæðast bláu á næstu leiktíð. Vísir/HAG Svo virðist sem Stjarnan mæti með mikið breytt lið til leiks í Pepsi Max-deild karla í knattspyrnu næsta sumar en það virðist sem Jóhann Árni Gunnarsson sé á leið í Garðabæinn.
Jóhann Árni er fæddur árið 2001 og lék með Fjölni í Pepsi Max-deildinni sumarið 2020 er Fjölnir féll án þess að vinna leik. Hann lék svo með liðinu í Lengjudeildinni síðasta sumar en virðist nú á leið til Stjörnunnar. Fótbolti.net greindi fyrst frá skiptunum sem hafa þó ekki enn verið staðfest. Jóhann Árni buinn að kveðja félaga sína í Fjölni. Jóhann er að ganga til liðs við Stjörnuna pic.twitter.com/bN9Y6qUmTG— Arnar Laufdal (@AddiLauf) December 5, 2021 Jóhann Árni á að baki 19 leiki fyrir yngri landslið Íslands sem og 80 KSÍ leiki fyrir Fjölni. Hefur hann skorað 20 mörk fyrir félagið sem verður að teljast ágætt fyrir leikmann sem leikur nær alltaf í stöðu miðjumanns og er þekktur fyrir að skapa færi fyrir samherja sína. Hinn tvítugi Jóhann Árni hefur verið orðaður við KR undanfarið en virðist nú á leið í Garðabæinn. Svo virðist sem Ágúst Gylfason, nýráðinn þjálfari Stjörnunnar, ætli að sækja leikmenn úr öllum áttum. Goðsögnin Óskar Örn Hauksson gekk í raðir félagsins frá KR fyrir skemmstu og þá kom Sindri Þór Ingimundarson frá 3. deildarliði Augnabliks. Stjarnan var að sækja Sindra Þór Ingimarsson frá Augnablik, byrjar núna eftir 10 mínútur gegn Breiðablik.— Hrafnkell Freyr Ágústsson (@hrafnkellfreyr) December 4, 2021 Stjarnan endaði í 7. sæti Pepsi Max deildar karla sumarið 2021.
Fótbolti Íslenski boltinn Stjarnan Pepsi Max-deild karla Fjölnir Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira