Skoðun

Fram­tíðin ræðst af að­gerðum

Gísli Rafn Ólafsson skrifar

Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna í Glasgow. COP-26, hófst í gær og stendur yfir til 11. nóvember. Því má búast við að orð eins og hamfarahlýnun, útblástur, kolefnisspor og orkuskipti verði ofarlega á blaði næstu daga og vikur. Sagan sýnir okkur þó að þegar fram líða stundir hverfa þessi mál í skugga líðandi stundar og gleymast, allt þar til næstu hamfarir af völdum hlýnandi loftslags dynja yfir.

Í aðdraganda alþingiskosninga í lok september héldu mörg okkar að loftslagsmálin yrðu ofarlega á baugi. Staðan í loftslagsmálum er orðin flestum ljós og ákallið um að grípa til metnaðarfullra aðgerða hljómar um allan heim. Kjósendur virðast þó hafa talið önnur mál mikilvægari að þessu sinni, því tveir stærstu flokkarnir að loknum kosningum skila nánast auðu í loftslagsmálum. Falleinkunn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar í úttekt Ungra umhverfissinna talar sínu máli.

Unga fólkið hlustar

Vísindasamfélagið hefur lengi varað okkur við loftslagsvánni en mörg, ekki síst af minni kynslóð, hafa ekki enn meðtekið varnaðarorðin. Unga fólkið heyrir hins vegar þessa viðvörun vel, kannski vegna þess að það mun súpa seyðið af aðgerðarleysi stjórnmálanna. Þess vegna hefur unga fólkið risið upp - um allan heim - og krafist aðgerða. Þrátt fyrir að aðgerðirnar hafi látið á sér standa hefur unga fólkið engu að síður haft mótandi áhrif á umræðuna og náð eyrum margra stjórnmálamanna.

Við sem eigum börn og barnabörn sem eru að taka sín fyrstu skref í þessari breyttu veröld, þurfum að setja framtíð þeirra í forgang. Neysluhyggja og trú á endalausan aðgang að náttúruauðlindum minnar kynslóðar hefur sett framtíð þeirra í hættu. Hér á Íslandi eru áhrif þessara hnattrænu loftslagsbreytinga byrjuð að gera vart við sig, en þau okkar sem hafa ferðast og búið við miðbaug sjáum afleiðingarnar ágerast með hverju árinu.

Skýr sýn til framtíðar

Það er kominn tími fyrir okkur sem erum í stjórnmálum að horfast í augu við hinn nýja raunveruleika. Kominn tími til þess að taka erfiðar ákvarðanir og grípa til aðgerða gegn þeim hættum sem við stöndum frammi fyrir. Við erum þjóð sem býr á landi þar sem að hamfarir eru reglulegir vágestir. Við verðum að passa okkur að láta þessa vá ekki taka okkur í bólinu.

Við þurfum að vinna saman, þvert á flokkslínur og byggja upp samstöðu um raunverulegt átak í baráttunni gegn þessari loftslagsvá. Ef við sameinumst, hugsum stórt og höfum framtíð barna okkar og barnabarna að leiðarljósi, þá getum við tekist á við þessa ógn. Við getum lagt okkar að mörkum og með skýra sýn á nýsköpun tengdri loftslagsvá getum við hæglega orðið að leiðtoga á alþjóðavettvangi í þessari baráttu.

Píratar lögðu fram slíka sýn í kosningabaráttunni, bæði í loftslagsstefnunni okkar (sem Ungir umhverfissinnar töldu vera þá bestu) og nýsköpunarstefnu flokksins (sem er í 20 liðum og hverfist um græna nýsköpun um land allt). Ég hlakka til að tala máli þeirra beggja inni á þingi því ég hef einlæga trú á að innihald þeirra leggi grunn að farsælla og grænna samfélagi til framtíðar. Börnin okkar eiga það skilið.

Höfundur er þingmaður Pírata í Suðvesturkjördæmi.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×