Sementsskortur á landinu sem gæti komið byggingaiðnaðinum illa Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 26. október 2021 16:04 Vandræði við innflutning sements hefur komið söluaðilum illa. Einn þeirra hefur bara undan að þjónusta um helming viðskiptavina sinna. Vísir/Hanna Sementsskortur er yfirvofandi á landinu, sem valdið hefur steypuframleiðendum verulegum vandræðum. Framkvæmdastjóri Steypustöðvarinnar segir að fyrirtækið geti nú aðeins þjónustað helming viðskiptavina sinna og gæti skorturinn haft veruleg áhrif á byggingariðnað á landinu.
Skortinn megi rekja til ýmissa þátta, þar á meðal vandamála hjá framleiðendum í Evrópu, himinháa kolefnisskatta, sem hafa gert sementsframleiðslu dýrari, og flutningsvanda. Vísir hefur í haust fjallað um ýmsan vöruskort sem hrellir landsmenn, þar á meðal skort á áldósum, magnesíumskort, sem hefur einna helst áhrif á bílaframleiðendur, brokkólí og blómkálsskort og landlægan sellerískort svo fátt eitt sé nefnt. Geta þjónustað um helming viðskiptavina Nú herjar sementsskortur á landið, sem gæti haft gífurleg áhrif á byggingariðnaðinn. Björn Ingi Victorsson, framkvæmdastjóri Steypustöðvarinnar segir í samtali við Vísi, að fyrirtækið geti um þessar mundir aðeins þjónustað um helming viðskiptavina sinna vegna skortsins. „Við höfum ekki undan að sinna pöntunum sem koma inn. Við getum kannski þjónustað svona helming. Þetta er ekki búið að vera svona lengi hjá okkur en það eru samt rúmar tvær vikur eftir af þessum hryllingi,“ segir Björn Ingi. Björn segir skortinn geta haft veruleg áhrif á rekstur fyrirtækisins. „Ég er með meira en þrjú hundruð manns í vinnu og þetta stoppar jafnt og þétt. Þetta er mikið tjón, þú getur ímyndað þér það, með 320 manns í vinnu. Það fer að styttast í að þetta stoppi. Ég á samt enn sement en bara lítið og þarf að keyra það frá Reyðarfirði með tilheyrandi kostnaði,“ segir Björn Ingi. „Þrátt fyrir þetta erum við að leita lausna og erum nokkuð jákvæðir að það leysist úr þessu mjög fljótlega.“ Björn Ingi Victorsson, framkvæmdastjóri Steypustöðvarinnar. Aðsend Skipin komi en farmurinn ekki fullur Innflutningsaðilar eiga von á sementssendingu til landsins þann 10. nóvember en óvíst er hve mikið sement muni koma til landsins í þeirri sendingu. Í haust hafi það verið viðvarandi vandamál að sementssendingar hafi ekki verið jafn stórar og gert hefur verið ráð fyrir. „Við erum að fá mismikið í hverjum farmi en þetta eru svona eitt til tvö skip á mánuði sem við erum að fá. Það sem hefur breyst er að við höfum ekki verið að fá fulla farma því það hefur borið á skorti hjá okkar byrgja í Danmörku. Það er það sem er að búa til þetta gat núna, við höfum ekki verið að fá fulla farma en skipin eru að skila sér,“ segir Magnús Eyjólfsson, framkvæmdastjóri Aalborg Portland á Íslandi, í samtali við fréttastofu. Aalborg Portland flytur inn sement frá Danmörku og er annar tveggja stóru innflutningsaðila sements hér á landi. Fyrirtækið þjónustar meðal annars steypustöðvarnar Steypustöðina og Steinsteypuna en Sementsverksmiðjan er hinn stóri innflutningsaðilinn. Vona að leysist úr hnútnum 10. nóvember Magnús segir skortinn stafa af mikill eftirspurn eftir sementi á öllum markaðssvæðum Aalborg Portlands en á sama tíma sé erfitt að fá skip til að flytja sementið á milli staða. Fyrirtækið sé með föst skip sem sinni reglulegum flutningum en erfitt hafi reynst að fá önnur skip til flutninga. „Þetta er mjög erfitt fyrir okkar viðskiptavini og þeirra viðskiptavini, sem eru byggingaverktakar, það er alveg ljóst ef þeir ná ekki að viðhalda fullum afköstum í steypuframleiðslu og uppsteypu,“ segir Magnús. Tafir hafa orðið á afhendingu sements vegna flutninga á milli landshluta.Vísir/Vilhelm Hann gerir þó ráð fyrir að ástandið sé aðeins tímabundið og það batni þegar næsta sementssending kemur til landsins. „Ég á ekki von á öðru en að þetta leysist í kring um 10. nóvember. En við erum núna að flytja sement á milli landshluta, við erum með síló í Helguvík, á Akureyri og Reyðarfirði þannig að við erum að flytja sement á milli landshluta hingað á Suðvesturhornið. “ Skorturinn sé ekki einskorðaður við Ísland og nefnir Magnús það að fyrir stuttu hafi verið alger sementsskortur í Færeyjum, sem varð í heila viku. Þá sé verið að skammta sement í Danmörku og margar steypustöðvar þar þurfi að sætta sig við minni skammta en þær þurfi. Eiga erfitt að standa við skuldbindingar sínar Gunnar H. Sigurðsson, framkvæmdastjóri Sementsverksmiðjunnar, sagði í samtali við Kjarnann í gær að innflutningur á sementi hafi dregist verulega saman í haust. Mikil óvissa sé íkortunum varðandi afhendingaráætlanir og eigi Sementsverksmiðjan erfitt með að standa við skuldbindingar sínar þessa stundina. „Við höfum flutt inn minna en við viljum og fáum ekki það magn sem við óskum okkur,“ sagði Gunnar í samtali við Kjarnann. Mikill skortur, að sögn Gunnars, sé á vörunni í Norður-Evrópu allri og framleiðsla á sementi á Norðurlöndunum hafi dregist saman á undanförnum áratugum. Áskorunin felist mest í því að fá meira sement til landsins. Ekki náðist í Gunnar, eða nokkurn hjá Sementsverksmiðjunni, við vinnslu þessarar fréttar.
Húsnæðismál Efnahagsmál Neytendur Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Byggingariðnaður Tengdar fréttir Tíu milljarða króna sementsverkefni í Ölfusi Stefnt er að því að flytja milljón tonn af íblöndunarefni í sement úr landi frá Þorlákshöfn. 25. október 2021 13:02 Skortur á magnesíum mun líklegast hafa mikil áhrif á framleiðslu bíla Þegar þú sest upp í bílinn þinn að morgni til þá hugsar þú sennilega ekki um öll hráefnin sem notuð eru við framleiðslu bílsins. Þá sérstaklega málminn sem notuð er í undirvagn og byggingu bílsins. Mikill magnesíum skortur mun hugsanlega þvinga allar bílaverksmiðjur til að hætta framleiðslu fyrir lok árs, samkvæmt sérfræðingum. 20. október 2021 07:01 Verðhækkanir gætu „því miður“ orðið þrálátari en vonast var til Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir að fáir hafi búist við því að vöruskortur og tilheyrandi verðhækkanir vegna kórónuveirufaraldursins yrðu jafnþrálatar og langvarandi og raun ber vitni. Tekið gæti ár að vinda ofan af vandanum. 18. október 2021 11:50 Mest lesið „Væri samt mjög til í að vera betri söngvari“ Atvinnulíf Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent BYKO opnar nýja og glæsilega timburverslun Samstarf „Við bara tókum íslensku brjáluðu bjartsýnina á þetta“ Atvinnulíf Gerðu tungumálarassíu hjá reiðhjólaverslunum Neytendur Fjórðungur Z-kynslóðarinnar hyggst flytja til útlanda Atvinnulíf Trúir ekki að menn loki fiskvinnslu til að mótmæla veiðigjöldum Viðskipti innlent Stúdentar taka til: Z-kynslóðin er að velja sér fyrirtæki framtíðarinnar Atvinnulíf Play komið með flugrekstrarleyfi á Möltu Viðskipti innlent Ný íbúðabyggð með betri loftgæðum Samstarf Fleiri fréttir Trúir ekki að menn loki fiskvinnslu til að mótmæla veiðigjöldum „Þetta er afnotagjald“ Play komið með flugrekstrarleyfi á Möltu Jón Ólafur í framboði til formanns SA Eigendaskipti hjá Fótbolta.net Feðgarnir nú aftur einu hluthafarnir í Eyri Invest Eyjólfur Árni hættir hjá SA Hagnaðist um tvo milljarða: Ljóst að greinin megi ekki við hækkunum Verðbólga heldur áfram að hjaðna Versta sviðsmyndin sé að lenda á milli Evrópu og Bandaríkjanna í tollastríði Íhuga að sameina lífeyrissjóði „Reiðarslag fyrir þau þorp þar sem stundaðar eru veiðar og vinnsla“ Tollastríðið gæti vel haft áhrif á lífskjör almennings Salóme tekur við af stofnanda Ísorku Helgi ráðinn sölustjóri Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Kemur nýr inn í fjármálastöðugleikanefnd Mikil óvissa í alþjóðamálum gæti reynt á þjóðarbúið Segir útlitið svart fyrir sjávarútveginn og breytingarnar illa unnar „Íslenskur sjávarútvegur er burðarás í atvinnulífinu“ Lýsa yfir verulegum áhyggjum af tvöföldun veiðigjalda Allt að tvöfalda veiðigjöldin og segja útgerðina þola það vel Aflinn verði verkaður annars staðar eftir breytingar stjórnarinnar Sækja á sjötta milljarð króna Laun eftir kjarasamningi „gervistéttarfélags“ sögð tugum þúsunda lægri Spá 1,8 prósent hagvexti í ár og 2,7 prósent verðbólgu á næsta ári Helgi fær ekki áheyrn Hæstaréttar Hans leiðir vinnu við mögulega sameiningu HA og Háskólans á Bifröst Hagnaður Isavia rúmir fimm milljarðar Aðalsteinn verður aðstoðarritsjóri við hlið systur sinnar Sjá meira
Tíu milljarða króna sementsverkefni í Ölfusi Stefnt er að því að flytja milljón tonn af íblöndunarefni í sement úr landi frá Þorlákshöfn. 25. október 2021 13:02
Skortur á magnesíum mun líklegast hafa mikil áhrif á framleiðslu bíla Þegar þú sest upp í bílinn þinn að morgni til þá hugsar þú sennilega ekki um öll hráefnin sem notuð eru við framleiðslu bílsins. Þá sérstaklega málminn sem notuð er í undirvagn og byggingu bílsins. Mikill magnesíum skortur mun hugsanlega þvinga allar bílaverksmiðjur til að hætta framleiðslu fyrir lok árs, samkvæmt sérfræðingum. 20. október 2021 07:01
Verðhækkanir gætu „því miður“ orðið þrálátari en vonast var til Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir að fáir hafi búist við því að vöruskortur og tilheyrandi verðhækkanir vegna kórónuveirufaraldursins yrðu jafnþrálatar og langvarandi og raun ber vitni. Tekið gæti ár að vinda ofan af vandanum. 18. október 2021 11:50