Innlent

Þessar til­lögur urðu fyrir vali Reyk­víkinga í í­búa­kosningunni Hverfið mitt

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Pétanque-völlur var settur í Gufunes eftir að íbúar í Reykjavík völdu hann í kosningunni Hverfið mitt.
Pétanque-völlur var settur í Gufunes eftir að íbúar í Reykjavík völdu hann í kosningunni Hverfið mitt. Reykjavíkurborg

Niðurstöður úr íbúakosningunni Hverfið mitt liggja nú fyrir en metþátttaka var í kosningunni í ár. Þegar kosningunni lauk á hádegi var kosningaþátttakan rúm 16 prósent.

Hugmyndir sem íbúar Reykjavíkurborgar gátu valið um voru 277 talsins, bæði stórar og smáar en 111 þeirra hlutu kosningu og verða framkvæmdar. Öll hverfi Reykjavíkur slógu sín þátttökumet en mesta þátttakan var á Kjalarnesi en þar á eftir komu Árbær og Norðlingaholt.

Þátttaka Reykvíkinga í kosningunni hefur aldrei verið meiri.Reykjavíkurborg

Verkefnið Hverfið mitt hefur notið vaxandi fylgis síðustu ár og þróast í takt við ábendingar frá borgarbúum og víða úr borgarkerfinu sjálfu. Alls tóku 18.389 íbúar þátt í kosningurinn í ár en á kjörskrá voru 112.306 Reykvíkingar. 

„Við viljum þakka borgarbúum fyrir að taka þátt í kosningunni, og leggja sitt af mörkum í átt að auknu íbúalýðræði. Það er það sem þetta gengur allt út á að stuðla að betri hverfum með innsýn og aðkomu borgarbúa“ segir Eiríkur Búi Halldórsson, verkefnastjóri.

Þátttaka íbúa milli ára hefur aukist gífurlega í íbúakosningunni Hverfið mitt.Reykjavíkurborg

Hér að neðan má sjá lista yfir þær tillögur sem voru valdar í hverju hverfi fyrir sig: 

Árbær og Norðlingaholt

  • Ævintýra og útivistarsvæði við Rauðavatn
  • Fleiri bekki og ruslatunnur á völdum stöðum í hverfinu
  • Ærslabelgur í Árbæjarhverfi
  • Infrarauðir saunaklefar í Árbæjarlaug
  • Vaðlaug í Árbæjarlaug
  • Jólaþorp á Árbæjarsafni
  • Gróðursetja fleiri tré í Norðlingaholti
  • Ærslabelgur í Norðlingaholti
  • Grænt leiksvæði og æfingatæki í Norðlingaholti

Breiðholt

  • Jólaljós í tré milli Efra- og Neðra Breiðholts
  • Nýjar ruslatunnur í hverfið
  • Bætt lýsing á völdum stöðum í hverfinu
  • Jólaljós við Seljatjörn
  • Ærslabelgur í Seljahverfi
  • Gróðursetja fleiri tré á völdum stöðum í Breiðholti
  • Fleiri bekki í hverfið
  • Þrekstigi úr Neðra Breiðholti upp í Efra Breiðholt
  • Trampólíngarður
  • Ærslabelgur í Efra Breiðholti
  • Trjá- og gróðursöfn víðsvegar um hverfið
  • Áningarstaður í Elliðaárdal
  • Vatnspóstar á valda staði í hverfinu
  • Fegra umhverfi í Bakkahverfi og Stekkjahverfi
  • Ærslabelgur í Neðra Breiðholt
  • Útiborðtennisborð

Grafarholt og Úlfarsárdalur

  • Ærslabelgur í Leirdal
  • Gróðursetja fleiri tré í Úlfarsárdal
  • Stígur frá Úlfarsárdal upp að Hafravatni
  • Áningarstaður með grilli
  • Körfuboltavöllur við Ingunnarskóla
  • Fjallahjólastígur á Úlfarsfelli
  • Rathlaupabraut milli Reynisvatns og Rauðavatns

Grafarvogur

  • Jólaljós á völdum stöðum í hverfinu
  • Sjósundsaðstaða við Geldinganes 
  • Trampólíngarður 
  • Aparóla í Gufunesi 
  • Nuddfoss í Grafarvogslaug 
  • Ærslabelgi á völdum stöðum í Grafarvogi 
  • Stigi ofan í fjöruna við Gufunes 
  • Fjallahjólasvæði í Gufunesi 
  • Fleiri bekki í hverfið 
  • Betri lýsing í Gufunesi 
  • Lýsa upp göngustíg meðfram Strandvegi •
  • Bílastæði við Geldinganes 
  • Aparóla í norðanverðum Grafarvogi

Hlíðar

  • Endurbæta leik– og dvalarsvæði á Klambratúni 
  • Fleiri blóm í hverfið 
  • Umbætur á grenndarstöðvum 
  • Gróðurbætur við Miklubraut 
  • Niðurgrafin trampólín á Klambratún 
  • Trjágróður meðfram Kringlumýrarbraut 
  • Útiæfingatæki á Klambratún 
  • Ungbarnarólur 
  • Fleiri bekki í hverfið 
  • Útigrill á Klömbrum 
  • Körfuboltavöllur við Hlíðaskóla 
  • Stígatenging frá Bólstaðarhlíð að Kringlumýrarbraut 
  • Hjólaviðgerðastandar í hverfinu 
  • Almenningsstæði fyrir rafmagnshlaupahjól

Háaleiti og Bústaðir

  • Bætt lýsing í Fossvogi 
  • Grænt svæði og torg við Grímsbæ 
  • Ærslabelgir 
  • Fleiri bekki í hverfinu 
  • Sleðabrekka fyrir neðan Grímsbæ 
  • Reiðhjólaskýli og hjólagrindur við Víkingsheimilið 
  • Púttvöllur 
  • Betri lýsing á göngustíg milli Hvassaleitis og Kringlu 
  • Göngustíg frá Kringlumýrarbraut inn í Álftamýri 
  • Minigolfvöllur 
  • Frisbígolf við göngustíg í Múlahverfi 
  • Trjágöng við Háaleitisbraut 
  • Útieldun í Úlfaskógi (Garðaflöt)

Laugardalur

  • Bætt lýsing á stígum í Laugardalnum 
  • Jólaland í Laugardalnum 
  • Ærslabelgur 
  • Trjágróður við Sæbraut 
  • Gróðurbætur við Sæbraut 
  • Fleiri bekki í hverfið 
  • Bætt lýsing við Laugarnesskóla 
  • Yfirbyggður grillskáli í Laugardalnum 
  • Sjósundsaðstaða á Laugarnestanga 
  • Jólaljós á Skeiðarvog 
  • Almenningsgarður með aðgengi fyrir alla 
  • Aparóla 
  • Endurbæta körfuboltavöll við Laugarnesskóla 
  • Betri grenndarstöð á horni Kleppsvegar og Hjallavegar 
  • Útgönguleið úr suð-austurenda Fjölskyldu- og Húsdýragarðs 
  • Upplýsingaskilti um náttúru og skipulag Laugardals

Kjalarnes

  • Ærslabelgur 
  • Bekkir við sjó 
  • Gróðursetja tré í Grundarhverfi 
  • Frisbígolfvöll kringum íþróttasvæðið

Vesturbær

  • Lóðin við Sundlaug Vesturbæjar fyrir alla fjölskylduna 
  • Grænni Reykjavík 
  • Opið grænt svæði á Hagatorgi 
  • Sjósundsaðstaða við Ægisíða 
  • Lítinn pott á Ægisíðu 
  • Ærslabelgur í hverfinu 
  • Fleiri bekki í hverfið 
  • Teqball völlur hjá Hagaskóla

Miðborg

  • Sérstakir safnkassar fyrir sprautunálar 
  • Grænt svæði við Frakkastíg (Frakkland) 
  • Vindheld torg 
  • Bæta lýsingu í Einarsgarði og Hljómskálagarði 
  • Endurbæta leikvöll í Hljómskálagarðinum 
  • Betrumbæta grænt svæði við Snorrabraut 
  • Útiæfingatæki í Hljómskálagarðinn 
  • Útiaðstaða við Gömlu spennistöðina 
  • Skreytum hús með húsum 
  • Gamaldags götuljós í Miðstrætið 
  • Fleiri hjólastæði í Miðborginni



Fleiri fréttir

Sjá meira


×