Í samtali við fréttastofu segir Guðmundur Marteinsson framkvæmdastjóri Bónuss ástæðu lokunarinnar vera að leigusamningur milli Haga hf., eiganda Bónuss, og eigenda Korputorgs sé útrunninn.
Reynt hafi verið að fá hann framlengdan en eigendur hússins, ÍSAM, hafa aðrar áætlanir fyrir framtíð hússins.
ÍSAM hefur ákveðið, að sögn Guðmundar, að koma starfsemi sinni undir eitt þak á Korputorgi. Nú þegar hefur starfsemi Myllunnar og Frón verið færð á torgið.
Töpuðu dómsmáli
Guðmundur segir aðdraganda lokunarinnar hafa verið tæp þrjú ár. Hagar töldu sig eiga forkaupsrétt að þeim hluta Korputorgs sem hýsti Bónus vegna ákvæðis í leigusamningi. Hagar höfðuðu dómsmál árið 2017 þar sem félagið taldi að forkaupsréttur þeirra hafi verið virtur að vettugi þegar nýjir eigendur eignuðust Korputorg.
Guðmundur segir að sér finnist hreint ótrúlegt að Hagar hafi tapað málinu og þar með forkaupsrétti sínum. Málið fór alla leið fyrir Hæstarétt sem dæmdi seljendum Korputorgs í vil líkt og héraðsdómur og Landsréttur.
Guðmundur segir að rekstur verslunarinnar á Korputorgi hafi gengið vel og því sé leiðinlegt að þurfa að loka henni. Þrettán starfsmenn hafi starfað í versluninni en þeim verði fundin önnur störf innan fyrirtækisins og engum verði sagt upp.
Fá ekki að færa matvöruleyfi
Guðmundur segir að Högum standi til boða húsnæði nálægt Korputorgi sem myndi henta starfsemi Bónuss. Hingað til hefur flutningurinn strandað á því að ekki fæst leyfi hjá Reykjavíkurborg til að færa matvöruleyfi frá Korputorgi yfir á nýtt húsnæði.
Guðmundur segist þó vera vongóður um að leyfi fáist fljótlega og að Bónus muni geta opnað nýja verslun innan tíðar á svæðinu.
Tugir biðu fyrir utan í gærmorgun
Guðmundur segir að mikið hafi verið að gera í versluninni í gær og að meira og minna allt sé búið. Áður en búðin opnaði í gærmorgun höfðu tugir manna safnast saman fyrir utan búðina að sögn Guðmundar. „Þetta tók fljótt af,“ segir hann og vísar til þess að búðin hafi nánast tæmst á stuttum tíma.
Ef èg hefði vitað að ég myndi eyða næst seinasta sumarfrísdeginum mínum í lengstu Bónusferð sem ég hef farið í. (þar sem allt er á 30% afslætti), Þá hefði ég frekar fórnað fríinu. Ætli ég þurfi að fara í sóttkví eftir þessa ferð?
— Gisli Berg (@gisliberg) August 5, 2021
Aðspurður segir Guðmundur að það hafi verið nokkur fórnarkostnaður að bjóða 30 prósenta afslátt af öllum vörum þegar búðinni var lokað. Hann segir þó að bæði neytendur og fyrirtækið græði á því.
„Kúnninn er í raun að hjálpa að tæma,“ segir Guðmundur.
Þá segir hann sig geta dregið lærdóm af rýmingarsölunni. „Ef varan selst ekki á 30% afslætti, á hún þá heima í vöruvali Bónuss?“ veltir hann fyrir sér.