Peningar óþokkans runnu til góðgerðarmála Jakob Bjarnar skrifar 14. maí 2021 15:03 Óþokkinn narraði stúlkuna til að senda sér myndir af sér fáklæddri gegn greiðslu. Málið er til rannsóknar en greiðsla netníðingsins hefur verið látin renna til góðgerðarmála. NORDICPHOTOS/GETTY Móðir lét peninga sem dóttir hennar fékk fyrir kynferðislegar myndir af sér til níðings á netinu renna til SOS barnaþorpa á Íslandi.
Þetta kemur fram á heimasíðu samtakanna. Framlagið, sem kemur að góðum notum, koma ekki til af góðu. Kynferðisbrotamaður setti sig í samband við stúlku á netinu. Hún er á efsta stigi í grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn sannfærði stúlkuna um að senda honum kynferðislegar myndir af sér gegn greiðslu. Móðir stúlkunnar tilkynnti netglæp þennan til lögreglunnar sem nú hefur málið til rannsóknar. Móðirin, sem óskaði nafnleyndar við SOS, vildi á einhvern hátt skila peningunum sem stúlkan fékk fyrir myndirnar og var henni ráðlagt að gefa peninginn til góðgerðarmála. „Henni fannst verkefni SOS á Íslandi gegn kynferðislegri misneytingu á börnum í Tógó vera sérstaklega viðeigandi í þessu tilfelli og ákvað því að styrkja það. Við hjá SOS virðum ósk móðurinnar um nafnleynd. Henni fannst þó mikilvægt að segja frá þessari erfiðu reynslu og vekja athygli á þessari ógn sem svo sannarlega er til staðar hér á Íslandi,“ segir á heimasíðu samtakanna.
Kynferðisofbeldi Netglæpir Lögreglan Barnavernd Réttindi barna Tógó Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Allt of margir með hugann annars staðar í umferðinni Innlent Óeirðir í Valensía og kallað eftir afsögn ráðamanna Erlent Baráttan hafin á TikTok: Traktor í skeifunni, kaldar kveðjur og endurkoma Innlent Missti stjórn á bílnum þegar klæðingin umvafði dekkin Innlent Hætta sem sáttasemjarar í deilu Ísraela og Hamas Fréttir Ætlar 1750 kílómetra á þrektækjum á einni viku í minningu vina Innlent Yazan og fjölskylda leita að nýju húsnæði Innlent Bjartsýn eftir fund í Virginíu vegna Söndru sem afplánar 37 ára dóm Innlent Lögreglan bannaði bjór á B5 Innlent Fleiri fréttir Allt of margir með hugann annars staðar í umferðinni Ætlar 1750 kílómetra á þrektækjum á einni viku í minningu vina Baráttan hafin á TikTok: Traktor í skeifunni, kaldar kveðjur og endurkoma Engin miðlæg skráning slysa í ferðaþjónustu Yazan og fjölskylda leita að nýju húsnæði Úrbætur í kjölfar slyss á Breiðamerkurjökli og vikulöng þrekraun Grunaður um sölu fíkniefna og brot á útlendingalögum Missti stjórn á bílnum þegar klæðingin umvafði dekkin Lögreglan bannaði bjór á B5 Leikskólastarfsmenn í Hafnarfirði greiða atkvæði um verkfall Um 60 kennarar hjá Fræðsluneti Suðurlands Bein útsending: Sigmundur kynnir innihaldið Öryrkjar fá 1,7 skattfrjálsa milljarða Ætla ekki að slíta viðræðum Engin ákvörðun um hvalveiðar og maurasýrumengun á Bíldudal Kallar eftir sams konar úrræði og Breivik og árásarmaður hennar sæta Bjartsýn eftir fund í Virginíu vegna Söndru sem afplánar 37 ára dóm Helmingi þætti óeðlilegt ef Bjarni gæfi út hvalveiðileyfi Þúsund lítrar af sýru láku á Bíldudal Ríkisstjórnin bjó sjálf til flóttamannavandamál Tveir handteknir eftir hópslagsmál Mansalsmál Gríska hússins: Vann sjö daga í viku hverri og svaf í kjallaranum Sakar Snorra um að tendra bál fordóma Nýju húsnæði Myndlistaskólans lokað Ísland meðal Evrópulanda þar sem lyfjatengd andlát eru hlutfallslega flest Nánast engin læknisþjónusta ef til verkfalls kemur Mikill eldur í iðnaðarhúsnæði á Akureyri Lyfjatengd andlát, rauð Bandaríki og glimmerveisla í Eldborg Tóku fyrstu skóflustunguna að nýjum skóla Óvíst hvort umsókn um hvalveiðileyfi verði afgreidd fyrir kosningar Sjá meira