Samhliða því lýsti ríkisstjórn Joes Biden, forseta Bandaríkjanna, yfir áhyggjum af því hvernig verið væri að grafa undan lýðræði Hong Kong. Þetta var gert í aðdraganda fyrsta fundar ráðamanna í Kína við meðlimi ríkisstjórnar Bidens sem munu fara fram í Alaska á næstunni.
Samskipti Bandaríkjanna og Kína hafa beðið hnekki á undanförnum árum og hafa ráðamenn í Peking kallað eftir því að þau verði núllstillt með ríkisstjórn Bidens, ef svo má að orði komast. Að fundurinn geti verið notaður til grunns frekari viðræðna.
Hvíta húsið segir hins vegar að Alaskafundurinn, sem á að hefjast á morgun sé einsdæmi og að frekari viðræður við Kínverja og möguleg samvinna velti á því að Kommúnistaflokkur Kína breyti hegðun sinni.
„Við hlökkum til tækifærisins að gera kínverskum starfssystkinum okkar grein fyrir áhyggjum okkar varðandi ýmsar aðgerðir þeirra,“ sagði Antony Blinken, innanríkisráðherra Bandaríkjanna, á fundi í Tókíó í Japan í morgun, samkvæmt frétt Reuters.
Vísaði Blinken sérstaklega til aðgerða Kína í Hong Kong og ítrekaði að Bretar hefðu lýst því yfir að þær væru í trássi við samkomulag þeirra við Kínverja þegar nýlendan var afhent Kína árið 1997.
Blinken og Lloud Austin, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, eru á ferðalagi um Asíu og fóru þeir í morgun frá Japan til Suður-Kóreu. Þar fundaði Blinken með Cung Eui-young, utanríkisráðherra Suður-Kóreu, og ræddu þeir einnig málefni Kína.

„Kína beitir þvingunum og ógnunum til að grafa markvisst undan sjálfstæði Hong Kong, grafa undan lýðræði í Taívan, fremja mannréttindabrot í Xinjiang og Tíbet og gera tilkall til Suður-Kínahafs, sem brýtur gegn alþjóðalögum,“ hefur New York Times eftir Blinken.
Talsmaður utanríkisráðuneytis Kína segir nýjustu viðskiptaþvinganir Bandaríkjanna vegna Hong Kong til marks um fyrirætlanir þeirra að hafa afskipti af innanríkismálefnum Kína.
Þvinganirnar byggja á lögum sem samþykkt voru í fyrra og meðal annars meina þau viðkomandi aðilum aðgang að fjármálakerfi Bandaríkjanna. Meðal þeirra 24 sem aðgerðirnar beinast að er Wang Chen, einn af meðlimum forsætisnefndar Kommúnistaflokks Kína (Politburo).