Formaður VR þarf að hafa reynslu og það hefur Ragnar Þór Ingólfsson Rannveig Sigurðardóttir skrifar 5. mars 2021 10:31 Kæru VR félagar, kjósum formann með framtíðarsýn, ekki þann sem ætlar að velta sér upp úr fortíðinni. Ragnar Þór Ingólfsson er verkalýðssinni og hefur unnið vel fyrir VR og látið verkin tala og nú eru kosningar til stjórnarstarfa í VR dagana 8. til 13 mars. Ég hef nú látið af áralöngum trúnaðarstörfum fyrir VR en ég hef alla tíð verið þekkt fyrir mínar skoðanir og segi: Mitt mat er að enginn sem ekki hefur reynslu af verkalýðsmálum ætti að gefa kost á sér til stjórnarstarfa eða formennsku. Það stekkur enginn inn af götunni og ætlar að stjórna stærsta stéttarfélagi landsins án þekkingar. Mín skoðun hefur alltaf verið að þeir sem ætla að vinna að hag launamanna þurfa að hafa þekkingu. Þekkinguna öðlast þeir sem hafa gengt trúnaðarmannastöðu á vinnustað, setið síðan í trúnaðarráði VR og þá ætti leiðin að liggja til stjórnarsetu fyrir félagið. Verkalýðsmál eru rammpólitísk, en alls ekki flokkspólitísk og það hoppar enginn í formannssætið bara sí svona, þó að fyrir liggi reynsla í stjórnum í foreldrafélagi, íþróttafélagi eða kvenfélagi. Við frambjóðendur segi ég: Vertu félagi þínu trúr og gakktu menntaveg verkalýðsmála til að vinna fyrir mig og aðra félagsmenn VR. Bið alla félagsmenn að huga vel að þessum málum áður en þeir kjósa sér nýja forystu. Félagsmenn nýtið kosningaréttinn VR til heilla og kjósið Ragnar Þór. Hann fær svo sannarlega mitt atkvæði. Höfundur er fyrrverandi stjórnarmaður í VR og margt fleira Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Formannskjör í VR Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Kæru VR félagar, kjósum formann með framtíðarsýn, ekki þann sem ætlar að velta sér upp úr fortíðinni. Ragnar Þór Ingólfsson er verkalýðssinni og hefur unnið vel fyrir VR og látið verkin tala og nú eru kosningar til stjórnarstarfa í VR dagana 8. til 13 mars. Ég hef nú látið af áralöngum trúnaðarstörfum fyrir VR en ég hef alla tíð verið þekkt fyrir mínar skoðanir og segi: Mitt mat er að enginn sem ekki hefur reynslu af verkalýðsmálum ætti að gefa kost á sér til stjórnarstarfa eða formennsku. Það stekkur enginn inn af götunni og ætlar að stjórna stærsta stéttarfélagi landsins án þekkingar. Mín skoðun hefur alltaf verið að þeir sem ætla að vinna að hag launamanna þurfa að hafa þekkingu. Þekkinguna öðlast þeir sem hafa gengt trúnaðarmannastöðu á vinnustað, setið síðan í trúnaðarráði VR og þá ætti leiðin að liggja til stjórnarsetu fyrir félagið. Verkalýðsmál eru rammpólitísk, en alls ekki flokkspólitísk og það hoppar enginn í formannssætið bara sí svona, þó að fyrir liggi reynsla í stjórnum í foreldrafélagi, íþróttafélagi eða kvenfélagi. Við frambjóðendur segi ég: Vertu félagi þínu trúr og gakktu menntaveg verkalýðsmála til að vinna fyrir mig og aðra félagsmenn VR. Bið alla félagsmenn að huga vel að þessum málum áður en þeir kjósa sér nýja forystu. Félagsmenn nýtið kosningaréttinn VR til heilla og kjósið Ragnar Þór. Hann fær svo sannarlega mitt atkvæði. Höfundur er fyrrverandi stjórnarmaður í VR og margt fleira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar