Fundu loðnu mjög víða við landgrunnsbrúnina Kristján Már Unnarsson skrifar 30. janúar 2021 21:35 Rannsóknaskipið Árni Friðriksson, flaggskip Hafrannsóknastofnunar. Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson. Umfangsmestu loðnuleit til þessa á Íslandsmiðum lýkur í kvöld þegar rannsóknarskipið Árni Friðriksson klárar síðasta leitarlegg sinn á Víkurál, syðst á Vestfjarðamiðum, djúpt vestur af Kollsvík. Tvö rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar og sex fiskiskip frá útgerðum stefna síðan öll til lands og tvö þegar lögst að bryggju. „
Okkar skip ljúka við sitt í kvöld og sigla þá heim,“ segir Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar. Núna taka við útreikningar á stærð loðnustofnsins út frá þeim viðbótarupplýsingum sem fengist hafa í leiðangrinum og segir Sigurður stefnt að því að ljúka þeim reikningum á þriðjudag. Innan sjávarútvegsins eru vonir bundnar við það að leiðangurinn skili þeim árangri að unnt verði að auka loðnukvóta úr 61 þúsund tonnum og upp í jafnvel 200-300 þúsund tonn. „Við vorum að sjá loðnu mjög víða við landgrunnsbrúnina,“ segir leiðangursstjórinn Birkir Bárðarson en telur þó ekki unnt að leggja mat á það á þessu stigi hvort tilefni verði til að hækka veiðiráðgjöfina. Hlykkir sem sjást á leitarferlunum á vef Hafrannsóknastofnunar gefa hugmynd um hvar skipin voru að sjá loðnu. Hlykkirnir koma fram þar sem skipin setja út lítið troll og toga til að ná sýnum af loðnunni. Leitarferlar og staðsetning skipanna á tíunda tímanum í kvöld. Hafísjaðarinn sést undan Vestfjörðum.Hafrannsóknastofnun Á Grænlandssundi, sem hafís huldi í byrjun janúar, sá Árni Friðriksson aðallega ungloðnu sem ekki er hluti af hrygningarstofninum núna. Fullorðna loðnan var austar og á nokkuð hefðbundinni farleið, að sögn Birkis. Jóna Eðvalds SF, sem leitaði djúpt austur af landinu, sá hins vegar enga loðnu þar. „Það sem er óvenjulegt miðað við undanfarin ár er hvað hún er snemma á ferðinni,“ segir Birkir. Þá sé loðnan farin að ganga inn á grunnslóð fyrir austan. Birkir Bárðarson fiskifræðingur er leiðangursstjóri.Egill Aðalsteinsson Hrognahlutfall í loðnunni hafi mælst milli fimm og níu prósent af þyngd hennar. Við hrygningu sé það milli tuttugu og þrjátíu prósent og segir Birkir stefna í að loðnan fari að hrygna um miðjan mars. Hitt rannsóknaskipið, Bjarni Sæmundsson, var í kvöld statt norður af Hornströndum á heimleið til Hafnarfjarðar. Hákon ÞH var kominn inn til Akureyrar, Börkur NK var út af Héraðsflóa, Aðalsteinn Jónsson SU út af Glettingi, Ásgrímur Halldórsson SF stefndi inn á Norðfjörð, Bjarni Ólafsson AK var kominn inn til Norðfjarðar en Jóna Eðvalds SF var á siglingu um líklega gönguslóð loðnunnar undan sunnanverðum Austfjörðum. Núverandi kvóti dugar vart nema í 1-2 veiðiferðir á hvert þeirra átján íslensku skipa sem búið er að úthluta kvóta. Af 61 þúsund tonnunum fá norsk skip bróðurpartinn vegna milliríkjasamninga en grænlensk og færeysk fá einnig hlut. Íslendingar fá hins vegar megnið af því sem bætist við umfram þetta. Hér má sjá loðnuleitina skýrða í fréttum Stöðvar 2 fyrir helgi:
Sjávarútvegur Langanesbyggð Vopnafjörður Múlaþing Fjarðabyggð Hornafjörður Vestmannaeyjar Akranes Vísindi Tengdar fréttir Átta skip í ákafri loðnuleit: „Nú á hún ekki að sleppa“ Loðnuleitin sem hófst um síðustu helgi er orðin mun umfangsmeiri en áður var gert ráð fyrir. Í fyrstu var miðað við þrjú til fjögur skip en núna eru þau orðin átta talsins, tvö rannsóknarskip Hafrannsóknastofnunar og sex uppsjávarveiðiskip frá útgerðum; öll að leita loðnunnar. 27. janúar 2021 17:32 Ráðherra fagnar að tekist hafi að afstýra loðnubresti Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun grein fyrir því að hann hefði í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar undirritað reglugerð um veiðar á loðnu. 26. janúar 2021 10:34 Loðnustofninn metinn nægilega sterkur til að hefja loðnuveiðar Loðnuveiðar íslenskra skipa geta hafist að nýju eftir tveggja ára hlé, samkvæmt nýju mati Hafrannsóknastofnunar á ástandi loðnustofnsins, sem birt var í dag, eftir mælingar á loðnutorfum sem fundust á Austfjarðamiðum um síðustu helgi. Stofnunin leggur til að veiðikvóti verði aukinn úr 22 þúsund tonnum upp í 54.200 tonn, sem dugar til að hægt verði að gefa út kvóta til íslenskra skipa. 22. janúar 2021 17:23 Fyrsta loðnan veiðist á Íslandsmiðum í þrjú ár Fyrsta loðnan sem veiðist á Íslandsmiðum í þrjú ár fékkst á Austfjarðamiðum í gærkvöldi þegar grænlenska skipið Polar Amaroq fékk milli tuttugu og þrjátíu tonn í einu kasti. Síldarvinnslan í Neskaupstað á þriðjungshlut í grænlensku útgerðinni en yfirmenn um borð eru íslenskir. 21. janúar 2021 20:31 Mest lesið Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Viðskipti innlent Vá en æðislegt: Fundurinn fellur niður í dag! Atvinnulíf Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Viðskipti innlent Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Sjá meira
Átta skip í ákafri loðnuleit: „Nú á hún ekki að sleppa“ Loðnuleitin sem hófst um síðustu helgi er orðin mun umfangsmeiri en áður var gert ráð fyrir. Í fyrstu var miðað við þrjú til fjögur skip en núna eru þau orðin átta talsins, tvö rannsóknarskip Hafrannsóknastofnunar og sex uppsjávarveiðiskip frá útgerðum; öll að leita loðnunnar. 27. janúar 2021 17:32
Ráðherra fagnar að tekist hafi að afstýra loðnubresti Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun grein fyrir því að hann hefði í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar undirritað reglugerð um veiðar á loðnu. 26. janúar 2021 10:34
Loðnustofninn metinn nægilega sterkur til að hefja loðnuveiðar Loðnuveiðar íslenskra skipa geta hafist að nýju eftir tveggja ára hlé, samkvæmt nýju mati Hafrannsóknastofnunar á ástandi loðnustofnsins, sem birt var í dag, eftir mælingar á loðnutorfum sem fundust á Austfjarðamiðum um síðustu helgi. Stofnunin leggur til að veiðikvóti verði aukinn úr 22 þúsund tonnum upp í 54.200 tonn, sem dugar til að hægt verði að gefa út kvóta til íslenskra skipa. 22. janúar 2021 17:23
Fyrsta loðnan veiðist á Íslandsmiðum í þrjú ár Fyrsta loðnan sem veiðist á Íslandsmiðum í þrjú ár fékkst á Austfjarðamiðum í gærkvöldi þegar grænlenska skipið Polar Amaroq fékk milli tuttugu og þrjátíu tonn í einu kasti. Síldarvinnslan í Neskaupstað á þriðjungshlut í grænlensku útgerðinni en yfirmenn um borð eru íslenskir. 21. janúar 2021 20:31