Erlent

Evrópu­sam­bandið biðlar til AstraZene­ca að standa við gefin lof­orð

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
AstraZeneca mun ekki afhenda Evrópusambandinu þá bóluefnaskammta sem samið var um að yrðu afhentir á fyrsta ársfjórðungi þess árs, ef ekkert breytist. Evrópusambandið hefur kallað eftir því að lyfjaframleiðandinn afhendi sambandinu skammta sem framleiddir hafa verið á Bretlandi.
AstraZeneca mun ekki afhenda Evrópusambandinu þá bóluefnaskammta sem samið var um að yrðu afhentir á fyrsta ársfjórðungi þess árs, ef ekkert breytist. Evrópusambandið hefur kallað eftir því að lyfjaframleiðandinn afhendi sambandinu skammta sem framleiddir hafa verið á Bretlandi. Vísir/EPA

Evrópusambandið hefur biðlað til lyfjaframleiðandans AstraZeneca að afhenda því fleiri skammta af bóluefni framleiðandans við Covid-19 en ætlað er. Fyrirtækið er sagt ekki geta afhent skammtana sem samningar segja til um vegna vandræða við framleiðslu.

AstraZeneca er sagt hafa tilkynnt Evrópusambandinu í síðustu viku að sambandinu yrðu afhentir 60% færri skammtar en samningar segja til um á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Ástæðan er sögð framleiðsluvandi í verksmiðjum fyrirtækisins í Evrópu, en sambandið hefur kallað eftir því að því verði afhentir skammtar sem framleiddir eru á Bretlandi.

Evrópusambandið og AstraZeneca munu funda á næstu dögum vegna málsins. Evrópusambandið greindi þó frá því í dag að lyfjaframleiðandinn hafi hætt við fundinn en AstraZeneca hefur síðan þá mótmælt því og sagt að fulltrúar þess muni sitja fundinn.

AstraZeneca er ekki eini bóluefnaframleiðandinn sem hefur þurft að fresta afhendingu bóluefnaskammta, en Pfizer og BioNTech hefur einnig þurft að fresta afhendingu vegna framleiðsluvanda.

Pfizer og BioNTech munu þó leysa framleiðsluvandann í samstarfi við franska lyfjaframleiðandann Sanofi, sem hefur boðið framleiðendunum afnot af verksmiðju þess í Frankfurt. Sanofi mun í sínum húsakynnum framleiða um 125 milljón bóluefnaskammta og hefst framleiðslan þar í júlí.

Stella Kyriakides, heilbrigðismálastjóri ESB, sagði á blaðamannafundi í dag að nauðsynlegt værri að verksmiðjur AstraZeneca á Bretlandi framleiddu bóluefni fyrir sambandið. Það væri hluti af samning lyfjaframleiðandans við Evrópusambandið og þyrfti hann að standa við skuldbindingar sínar.

„Öll 27 aðildarríki Evrópusambandsins eru sammála því að AstraZeneca verði að standa við gefin loforð samkvæmt okkar samningum,“ sagði hún á fundinum.


Tengdar fréttir

Heltust úr bólu­efna­lestinni en rétta nú fram hjálpar­hönd

Franska lyfjafyrirtækið Sanofi hyggst aðstoða lyfjafyrirtækið Pfizer við framleiðslu á hundrað milljón skömmtum af bóluefni þess síðarnefnda gegn kórónuveirunni. Fyrstu Pfizer-skammtarnir frá Sanofi eru þó ekki væntanlegir fyrr en í júlí.

Segja fréttir um takmarkaða virkni byggja á mistúlkun gagna

Þýska heilbrigðisráðuneytið og AstraZeneca hafna fréttum þess efnis að bóluefni lyfjafyrirtækisins gegn Covid-19 virki ekki eins og áður hafði verið talað um. Forsvarsmenn AstraZeneca segja fréttirnar „fullkomlega rangar“  en samkvæmt heilbrigðisráðuneytinu er um að ræða mistúlkun á gögnum.

Segja bóluefni AstraZeneca ekki virka fyrir 65 ára og eldri

Bóluefni AstraZeneca er sagt ekki munu fá markaðsleyfi í Evrópu til bólusetningar þeirra sem eru 65 ára og eldri. Ástæðan mun vera sú að bóluefnið tryggi eldra fólki ekki næga vörn gegn sjúkdómnum. Þessum fullyrðingum neitar aftur á móti AstraZeneca.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×