Kennari sakaður um kynferðislega áreitni og ruddalegt athæfi gagnvart stúlku Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. janúar 2021 11:06 Brot mannsins eru sögð hafa átt sér stað síðla árs 2017 og á fyrri hluta árs 2018. Vísir/Vilhelm Karlmaður á Norðurlandi eystra hefur verið ákærður af Embætti héraðssaksóknara fyrir kynferðisbrot gegn barni og barnaverndarlagabrot á árunum 2017 og 2018. Í ákærunni á hendur manninum segir að barnið hafi verið nemandi hans.
Karlmaðurinn er ákærður fyrir kynferðisbrot gegn barni sem honum var trúað fyrir til kennslu með því að hafa ítrekað á tímabilinu 19. desember 2017 til 11. maí 2018 í samskiptum við stúlku áreitt hana kynferðislega í gegnum Facebook. Bæði er kennarinn sakaður um að hafa áreitt hana með kynferðislegum ummælum og sömuleiðis kynferðislegu myndefni. Með háttsemi sinni hafi hann sært blygðunarsemi stúlkunnar og sýnt henni ósiðlegt athæfi. Jafnframt er kennarinn sakaður um að hafa brotið barnaverndarlög með því að hafa á tímabilinu 30. nóvember 2017 til 11. maí 2018 í samskiptum við stúlkuna sent henni skilaboð með ummælum, táknum og myndefni þar sem hæðst er að jaðarsettum hópum s.s. á grundvelli fötlunar, þjóðernis, litarháttar, kynþáttar, trúarbragða og kynhneigðar. Þannig hafi hann sýnt henni ruddalegt og ósiðlegt athæfi. Einkaréttarkrafa liggur fyrir í málinu en upplýsingar um hana fengust ekki afhentar frá Héraðsdómi Norðurlands eystra. Málið verður þingfest í dómnum á morgun.
Dómsmál Ofbeldi gegn börnum Akureyri Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Sjá meira