Óli Maggadon bjó í 20 ár á Arnarholti og fór á tónleika með Kjarval Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 14. nóvember 2020 18:55 Ólafur Magnússon eða Óli Maggadon eins og hann var kallaður (1901-1975), einn af svokölluðum kynlegu kvistunum á götum borgarinnar eins og segir í myndatexta Ljósmyndasafns Reykjavíkur Vísir/Ljósmyndasafn Reykjavíkur, ljósm: Karl Christian Nielsen
Þrír læknar sem sögðu engra aðgerða þörf á Arnarholti töldu einangrunarvist í svokallaðri sellu eðlilega eftir yfirheyrslur á starfsfólki. Ólafur Magnússon, sem var þekktur í borgarlífinu sem Óli Maggadon, var meðal vistamanna á Arnarholti en þar bjó hann í 20 ár. Í vikunni hafa komið fram í fjölmiðlum óhugnalegar lýsingar starfsmanna Arnarholts frá árinu 1971 á veru vistmanna. Þá hefur komið fram að strax árið 1951 var farið að gera athugasemdir um að hælið samrýmdist hvorki kröfum um mannúð né heilsufræði. Eftir áeggjan Steinunnar Finnbogadóttur borgarfulltrúa ákvað borgin 1971 að skipa nefnd til að rannsaka ásakanir um slæman aðbúnað vistmanna. Í nefndina voru skipaðir læknarnir Árni Björnsson Gunnlaugur Snædal og Halldór Steinsen. Þeir héldu 9 fundi og yfirheyrðu tugi núverandi og fyrrverandi starfsmenn. Þeir komust að því að því að engra aðgerða væri þörf. Þetta kemur fram í skjali nefndarinnar með yfirskriftinni Álit nefndar, sem kannaði hagi Arnarholts. Lyfjum þakkað að minna sé um einangrun en áður Í úttekt læknanna hrekja þeir nánast allar ávirðingar sem fram höfðu komið um framkomu við sjúklina, meðferð þeirra, aðbúnað og því sem beindist að starfsfólki. Þeir segja til að mynda að ásökun um hrottaskap eigi annað hvort ekki við rök að styðjast eða að ekki hægt að komast að hinu sanna. Þá hafi einangrun í svokallaðri sellu aðeins verið beitt tvisvar frá 1969 og þá vegna áfengisvímu og deleríum. Þau einangrunartilfelli sem nefndin hafi kannað sérstaklega vegna framkominna ávirðinga um tilefnislausa sellunotkun hafi að mati nefndarinnar ekki verið neitt óeðlileg. Minni notkun á einangrun er þakkað nýjum lyfjum og annars konar vistfólki en áður tíðkaðist. Fram hafi komið að starfsfólk hafi í yfirheyrslum sagt mikla þörf á bættum húskynnum. Læknarnir komast þó að þeirri niðurstöðu að þó húsakynnin séu erfið að hreinlæti sé vel framfylgt. Þá hafi starfsólk látið í ljós óskur um ráðningu vinnuþjálfara og tengsl við félagsráðgjafa og annan lækni auk geðlæknis. Mynd sem birtist í Morgunblaðinu þegar sagt var frá andláti Ólafs.Vísir Meðal þeirra sem var vistamaður á Arnrholti var Ólafur Magnússon sem fæddist 1901. Hann var þekktur í þjóðlífinu sem Óli Maggadon. Hann lést árið 1975 og hafði þá búið 20 ár á Arnarholti. Í andlátstilkynningu í Morgunblaðinu 23. febrúar 1975 kemur fram að þar hafi hann átt góða daga til hinstu stundar. Hann hafi ekki getað notið Þorrablóts vistmanna síðustu daganna en það hafi verið opið inn til hans og þá hafi verið spilaður Óla-polki sem gladdi hann mjög, eins og segir í Morgunblaðinu. Óla er minnst í veftímaritinu Lemúrnum í grein um Furðufuglanna í bænum: Oddur sterki og Óli Maggadon. Þar kemur fram að hann hafi notið mikilla vinsælda hjá starfsmönnum Reykjavíkurhafnar sem hafi verið hans kjörsvæði. Hann hafi gjarnan hrópað til erlendra skiphafna, „La falla“ og þá hafi akkerið verið látið falla. Óli hafi verið glaðlyndur og góðviljaður og notið velvildar veitingaþjóna í borginni sem gjarnan viku að honum góðmeti. Óli hafi haft mikla matarlyst og hafi einu sinni sporðrennt 12 rjómakökum og svo síðar 20 síldaflökum með lauk. Þá kemur fram að hafi Kjarval boðið honum með sér á tónleika með Stefáni Íslandi. Sátu þeir kollegar á fremsta bekk og klöppuðu óspart að loknu hverju lagi, eins og segir í vefritinu Lemúrnum.
Reykjavík Félagsmál Heilbrigðismál Eldri borgarar Vistheimili Tengdar fréttir „Það sér á að í Arnarholti eru olnbogabörnin“ Borgarstjóri ætlar að láta rannsaka starfsemi Arnarholts og jafnvel fleiri vistheimili sem borgin rak vegna upplýsinga um illa meðferð á vistmönnum. Forsætisráðherra fagnar rannsókn og býður fram aðstoð. 11. nóvember 2020 20:50 „Hún er upphafið og hún er endirinn“ Dóttir Steinunnar Finnbogadóttur, ljósmóður og borgarfulltrúa Samtaka frjálslyndra og vinstrimanna, lýsir því að móðir hennar hafi verið úthrópuð í samfélaginu fyrir að beita sér fyrir rannsókn á starfsemi Arnarholts á Kjalarnesi. 11. nóvember 2020 11:32 „Hræðilegt að heyra af þessu“ Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar, segir að borgaryfirvöld muni í dag óska eftir gögnum varðandi starfsemi vistheimilisins Arnarholts frá árinu 1971 sem fjallað var um í fréttum RÚV í gærkvöldi. 11. nóvember 2020 10:32 Hræðilegar lýsingar á því sem fram fór á vistheimilinu Arnarholti Fárveikt fólk sem dvaldi á vistheimilinu Arnarholti á Kjalarnesi til ársins 1971 var sett í einangrun í litlum fangaklefa í refsingarskyni. 11. nóvember 2020 07:30 Mest lesið „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Innlent Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Innlent Ari missti af fyrsta fundinum Innlent Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Innlent Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi Innlent Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Innlent Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Innlent Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Innlent Fleiri fréttir Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Sjálfstæðismenn formenn sjö ráða af átta Baldur og Herjólfur sigla til Eyja Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Dýrum stefnt í hættu Unnur Brá sveitarstjóri í Borgarbyggð og Skorradalshreppi Beri skylda að skila Dananum hugsanlega á Þingvöllum Tímamót í borginni, innbrot í kjúklingabú og forritari á barnsaldri „Ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér eru því sjálfu til skammar“ Sumaráætlun Herjólfs frestað Leit að eftirmanni Höllu Bergþóru hafin Fær annan skóla undir sinn væng Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Skjálftahrinan mallar enn Ari missti af fyrsta fundinum Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Situr rúma viku á þingi fyrir sumarfrí „Heiður lífs míns að vera borgarstjóri“ Fordæma innbrot í Reykjabú Mun örugglega leita ráða hjá Heiðu „Greiddi smyglurum verulegar upphæðir til að komast á leiðarenda“ Ljósið fékk langtímasamning Ætlar ekki í varaformannsframboð Verði hægt að sækja um skilnað án þess að gefa upp ástæðu Yfir 70 þúsund horfðu á kappræðurnar á Sýn Sjá meira
„Það sér á að í Arnarholti eru olnbogabörnin“ Borgarstjóri ætlar að láta rannsaka starfsemi Arnarholts og jafnvel fleiri vistheimili sem borgin rak vegna upplýsinga um illa meðferð á vistmönnum. Forsætisráðherra fagnar rannsókn og býður fram aðstoð. 11. nóvember 2020 20:50
„Hún er upphafið og hún er endirinn“ Dóttir Steinunnar Finnbogadóttur, ljósmóður og borgarfulltrúa Samtaka frjálslyndra og vinstrimanna, lýsir því að móðir hennar hafi verið úthrópuð í samfélaginu fyrir að beita sér fyrir rannsókn á starfsemi Arnarholts á Kjalarnesi. 11. nóvember 2020 11:32
„Hræðilegt að heyra af þessu“ Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar, segir að borgaryfirvöld muni í dag óska eftir gögnum varðandi starfsemi vistheimilisins Arnarholts frá árinu 1971 sem fjallað var um í fréttum RÚV í gærkvöldi. 11. nóvember 2020 10:32
Hræðilegar lýsingar á því sem fram fór á vistheimilinu Arnarholti Fárveikt fólk sem dvaldi á vistheimilinu Arnarholti á Kjalarnesi til ársins 1971 var sett í einangrun í litlum fangaklefa í refsingarskyni. 11. nóvember 2020 07:30