Reikna með ári í viðbót og átta milljón spítalainnlögnum í Bretlandi Eiður Þór Árnason skrifar 15. mars 2020 22:24 1.144 hafa nú greinst með kórónuveiruna í Bretlandi og hafa alls 21 látið lífið. Vísir/AP
Gert er ráð fyrir því að faraldur kórónuveirunnar í Bretlandi muni vara fram á næsta vor og gæti leitt til þess að 7,9 milljónir manna verði lagðir inn á sjúkrahús. Þetta kemur fram í leynilegri samantekt breskra heilbrigðismálayfirvalda sem The Guardian hefur undir höndum. Er þetta sagt vera í fyrsta skipti sem forsvarsmenn þeirra sjáist viðurkenna að faraldurinn geti varið í tólf mánuði til viðbótar. Benda gögnin til þess að bresk yfirvöld geri ráð fyrir því að allt að áttatíu prósent Breta muni sýkjast af veirunni fyrir lok þess tímabils. Chris Whitty, helsti heilbrigðisráðgjafi breskra stjórnvalda, hefur áður lýst þeirri tölu sem verstu mögulegu útkomu og sagt að hið raunverulega smithlutfall ætti eftir að reynast lægra. Að sögn The Guardian kemur það hins vegar skýrt fram í samantekinni að gert sé ráð fyrir því að áttatíu prósent þjóðarinnar fái veiruna. „Reiknað er með því að allt að áttatíu prósent þjóðarinnar muni sýkjast af COVID-19 á næstu tólf mánuðum og allt að fimmtán prósent (7,9 milljónir manns) gæti þarfnast innlagnar á sjúkrahús,“ segir í skjalinu. 1.144 hafa nú greinst með kórónuveiruna í Bretlandi og hafa alls 21 látið lífið af völdum hennar.
Bretland Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Innlent Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Innlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira