Ók í krapa og er óökufær Stefán Ó. Jónsson skrifar 17. janúar 2020 11:47 Færðin hefur verið slæm á Suðurnesjum síðustu daga. lögreglustjórinn á suðurnesjum
Ökumaður missti bifreið sína út af Reykjanesbraut í gær. Þar hefur örlað á hálkublettum að undanförnu, sem tónar við viðvörun Vegagerðarinnar í morgun um hálku í öllum landshlutum. Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum er þess getið að ökumaðurinn hafi ekið bíl sínum í snjókrapa á Reykjanesbraut, skammt frá Kúagerði. Það hafi orðið til þess að hann missti stjórn á bifreiðinni og hafnaði um 20 metra utan vegar. Bíllinn er sagður óökufær eftir útafaksturinn en ökumaður virðist hafa sloppið nokkuð vel. Þrátt fyrir að hafa fundið til einhverra eymsla er hann sagður hafa sjálfur getað leitað á Heilbrigðisstofnun Suðurunesja, þar sem hann fékk aðhlynningu meina sinna. Þangað þurfti jafnframt að flytja tvo ökumenn sem lentu í árekstri á Garðvegi í Suðurnesjabæ. Lögreglan segir að kalla hafi þurft út dráttarbifreið til að flytja bíla þeirra af vettvangi. Þá er unglingur sagður hafa ekið bifreið aftan á aðra á Hringbraut í Reykjanesbæ í morgun. Þar sem ökumaðurinn var ekki orðinn átján ára segist lögreglan hafa leyst málið með aðkomu forráðamanns.
Lögreglumál Reykjanesbær Samgönguslys Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Fleiri fréttir Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Sjá meira